07.05.1976
Sameinað þing: 85. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3795 í B-deild Alþingistíðinda. (3115)
196. mál, leir í Dalasýslu til iðnaðarframleiðslu
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir upplýsingarnar og greið svör Í þessu máli. Af þeim kemur fram að á síðustu árum hefur eitt og annað verið rannsakað í þessum efnum að opinberri hálfu, og ber að þakka það. Ég bæti því ekki miklu við það sem ég sagði áðan, vil þó benda á að þau þrjú meginskilyrði, sem Guðmundur heitinn myndhöggvari nefndi hér á árum fyrr að þyrftu að vera til staðar, hafa nú breyst mjög til batnaðar, þ.e.a.s. það er búið að rannsaka nú að nægilegt hráefni er á þessu svæði, samgöngur eru batnandi, óneitanlega, og verður að segja að næg raforka sé fyrir hendi, eins og er a.m.k. Ég vek athygli á því að þetta mál virðist enn þarfnast nokkurra rannsókna. En um leið vil ég einnig segja og benda hv. þm. á hvað ýmsu hefur farið fram á þessu sviði á undanförnum árum. Listmunagerð úr leir hefur fleygt fram á síðustu árum. Þetta er sá iðnvarningur sem er hvað líklegastur til þess að flytja á erlendan markað, og það eru taldir miklir og vaxandi möguleikar á útflutningi á þessari vöru til annarra landa.
Og vafalaust er það, að leir verður hagnýttur í framtíðinni til ýmissa annarra og margvíslegra nota, bæði beint og óbeint, svo sem listamaðurinn og brautryðjandinn Guðmundur frá Miðdal benti á. Það er vaxandi áhugi á rannsókn og hagnýtingu innlendra jarðefna. Má nefna sem dæmi þáltill. hv. 1. þm. Suðurl. á þskj. 467. Möguleikarnir til rannsókna og úrvinnslu vaxa ár frá ári. Land okkar hefur verið talið fátækt að jarðneskum verðmætum, en það er enn lítt kannað. Það er „álfu vorrar yngsta land“, eins og skáldið sagði, ónumið á margan hátt og auðugt af fyrirheitum.