07.05.1976
Sameinað þing: 85. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3797 í B-deild Alþingistíðinda. (3117)

195. mál, skattfrelsi bókmennta- og tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Hv. fyrirspyrjandi, 9. landsk. þm., Sigurlaug Bjarnadóttir hefur greint frá hverjar fsp. eru og skal ég ekki endurtaka það, en geta þess að forsrn. skipaði 25. apríl 1972 n. til að kanna staðarval ríkisstofnana og athuga hverjar breytingar komi helst til greina í því efni. Rn. barst álit n. 29. nóv. 1975.

Í bréfi 19. maí 1975 setti n, fram hugmyndir um það hvernig með till. hennar skyldi farið. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Reynslan af störfum sams konar n. Í Noregi og Svíþjóð sýnir að mjög gagnlegt ef ekki nauðsynlegt er að till. n. verði til almennrar og opinberrar umfjöllunar í a.m.k. nokkra mánuði eða missiri áður en stjórnvöld taka ákvarðanir um afstöðu sína til einstakra tillagna. N. telur því rétt og farsælast að álitið verði fyrst gefið út án afstöðulýsingar stjórnvalda og hinum ýmsu hlutaðeigandi aðilum, ríkisstofnunum, landshlutasamtökum, samtökum opinberra starfsmanna o.fl. verði gefinn ríflegur tími til að gera sér grein fyrir eðli tillögugerðarinnar og móta afstöðu til einstakra liða. Reynslan í nágrannalöndum hefur sýnt að slík almenn og viðtæk umfjöllun gerir málið mun auðveldara viðfangs þegar til ákvarðana kemur.

N. þykir einnig rétt að kynna rn. á þessu stigi þrjár mismunandi aðferðir sem stjórnvöld geta beitt við fyrsta áfanga ákvarðanatöku um flutning ríkisstofnana. Allar þessar aðferðir eru bundnar við að hin almenna umr. hafi farið fram um nokkurt skeið.

Fyrsta aðferðin fæli í sér að setja á stofn flutningsráð ríkisstofnana“ sem n. gerir till. um eins og hv. fyrirspyrjandi gat um. „Flutningsráðinu væri síðan falið að vinna nánar úr áliti n. og undirbúa till. um nauðsynlega lagasetningu og reglugerðarbreytingu. Þessi leið hefði ýmsa kosti, ef stjórnvöld vildu koma málinu áleiðis, en teldu af ýmsum ástæðum ekki tímabært að ákveða strax flutning tiltekinna ríkisstofnana.

Önnur aðferð fæli í sér að ákveða flutning ríkisstofnana í samræmi við till. n., hluta þeirra eða allar, og láta þar við sitja. Flutningur ríkisstofnana væri þá ekki talinn vera varanlegt verkefni, heldur einstök afmörkuð aðgerð.

Þriðja aðferðin væri fólgin í samspili framkvæmdar á bæði fyrstu og annarri aðferð. Þessi leið kæmi til greina ef stjórnvöld teldu stofnanaflutning varanlegt verkefni og nægilega samstöðu fyrir hendi um tilteknar till. n. til að koma þeim þegar í framkvæmd.“

Hér var um tilvitnun að ræða í bréfi stofnananefndar. Í bréfi, sem forsrn. ritaði n. 9. des. 1975, segir:

„Rn. fellst á það sjónarmið, sem fram kemur í bréfi n, frá 19. maí 1975, að till. n. verði til almennrar og opinberrar umfjöllunar í a.m.k. nokkra mánuði eða missiri áður en stjórnvöld taka ákvarðanir um afstöðu sína til einstakra till. Í samræmi við þetta mun rn. hafa forgöngu um að áliti n. verði dreift til þm., landshlutasamtaka, fjölmiðla, viðeigandi stofnana o.fl., og hefur það þegar verið gert. Þegar þessir aðilar hafa mótað afstöðu sína til málsins og viðtækar opinberar umr. hafa farið fram um till. n. hefur mótast forsenda fyrir því að stjórnvöld taki ákvarðanir sínar.“

Þessu áliti n. var dreift til áðurgreindra aðila Í des. s.l. N. setti fram það sjónarmið í bréfi sínu 19. maí 1975 að aðilar fengju tíma til að ræða nál., síðan fengju stjórnvöld nokkurn tíma til að taka afstöðu til þess á grundvelli sjónarmiða sem fram hefðu komið, og loks yrðu till. lagðar fyrir Alþ. Ríkisstj. hefur ekki enn talið tímabært að taka afstöðu til hugmynda um flutning ríkisstofnana út á landsbyggðina og af hálfu ríkisvaldsins er ekki hafinn undirbúningur að slíkum flutningi. Ákvarðana í þessu efni er ekki að vænta fyrr en þeir mörgu aðilar, sem fengið hafa nál. um flutning ríkisstofnana til skoðunar, hafa sett fram sjónarmið sín að þessu leyti.