07.05.1976
Sameinað þing: 85. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3798 í B-deild Alþingistíðinda. (3118)
195. mál, skattfrelsi bókmennta- og tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda sérstaklega fyrir að hafa vakið máls á þessu efni hér sem vissulega er þess vert. Ég get ekki heldur stillt mig um að þakka hæstv. forsrh. alveg sérstaklega fyrir góð viðbrögð hans á sínum tíma þegar hann tók við embætti og n. var nær að veslast upp af ástæðum sem ég greini ekki nánar frá hér.
Hér var um till. að ræða sem gengu alllangt, allróttækar till. En ég held að allir þeir, sem hafa kynnt sér nál., geti verið sammála um að fyrir till. sé færður allgóður og traustur rökstuðningur, og það mælir þess vegna ekkert sérstaklega afgerandi á móti þeim till. sem n. setti fram. Ég tek það alveg sérstaklega fram hér, að mörgum úti á landi þykir einmitt sem svo, að við höfum of skammt gengið sem í þessa n. vorum settir. Ég tek undir það, þó ég sé einn af nm., að þarna hafi verið unnið mjög gott starf. En ég þakka það fyrst og fremst formanni n. sem vann hér mjög skipulega og sérstaklega vel allt undirbúningsstarf, þ.e. Ólafur Ragnar Grímsson. Hann lagði þarna traustan grunn sem á að vera auðvelt fyrir stjórnvöld að byggja á, og við í n. lögðum honum auðvitað lið eftir okkar getu.
Það er rétt að við lögðum á það áherslu að um þetta yrði almenn umr. og góð kynning. Ég hefði hins vegar viljað óska eftir því að einhver aðili annaðist þessa beinu kynningu að einhverju leyti, þetta yrði kynnt betur, t.d. í fjölmiðlum, en gert hefur verið, og ef rn. sæi sér sér fært að hafa beint samband við þá helstu aðila sem þetta mál varðar. Það skildist mér reyndar á hæstv. forsrh. að mundi vera gert. En á eitt vildi ég leggja aðaláherslu, og til þess kom ég hér raunar upp í ræðustól, að ég treysti á hæstv. ríkisstj. að hún leggi fram í þingbyrjun næst frv. um flutningsráð ríkisstofnana, vegna þess að það er forsenda þess að eitthvað verði í þessum málum gert skynsamlegt. Það bindur ríkisstj. ekki við eitt eða neitt ákveðið varðandi flutning á þessum stofnunum, útibú frá þeim eða deildir, en það kemur málinu á þá hreyfingu, á þann rekspöl sem getur orðið til þess að eitthvað verði úr framkvæmdum á till. nefndarinnar.