10.05.1976
Efri deild: 100. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3822 í B-deild Alþingistíðinda. (3145)

239. mál, Orkubú Vestfjarða

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ég lýsti því við 1. umr. þessa máls og ég vil ítreka þá skoðun mína við 2. umr., að með samþykkt þessa frv. er tvímælalaust mikilvægt spor stigið fram á við, og það á einkum við vegna þess, að hér er verið að sameina margar smáar rafveitur á Vestfjörðum, og þá alveg sérstaklega vegna þess, að hér er ætlunin að ráðast með sameiginlegu átaki Í mjög nauðsynlegar framkvæmdir á Vestfjörðum, þar sem eru hítaveituframkvæmdirnar og bygging fjarvarmaveitna þar sem óvissa ríkir um hvort heitt vatn fæst úr jörðu eða ekki.

En ég vil einnig ítreka hér það sjónarmið, sem ég setti fram við 1. umr. málsins, að samþykkt þessa frv. má ekki verða til þess að valda enn meiri ringulreið en orðin er í skipulagi raforkumála. Það eru tvímælalaust allt of margir aðilar hér á landi sem fást við rannsóknir og undirbúning að byggingu stórvirkjana. Það er alveg rétt, sem fram kom hjá hv. þm. Steingrámi Hermannssyni áðan, að gamla raforkumálaskrifstofan hefur verið klofin í tvennt og ástandið hefur verið þannig nú á undanförnum árum, t.d. hvað snertir virkjanir á Norðurlandi, að starfsmenn Orkustofnunar hafa verið á einni hæðinni að banna ákveðnar rafvirkjanir á Norðurlandi á nákvæmlega sama tíma og starfsmenn Rafmagnsveitna ríkisins hafa verið að hanna þessar sömu rafvirkjanir. Þar við bætist svo að þriðji aðilinn, þ.e.a.s. Laxárvirkjunarstjórn, á lögum skv. að hafa frumkvæði um orkuöflun á Norðurlandi og hefur því haft hugann við þessi verkefni. Og fjórði aðilinn, þ.e.a.s. Landsvirkjun, er einnig mjög virkur aðili að virkjanarannsóknum, einkum á Suðvesturlandi, og hefur marga starfsmenn sem vinna að því verkefni.

Ég tel að það megi ekki gerast að með samþykkt þessa frv. sé verið að stiga spor aftur á bak í þá átt að auka ringulreiðina í skipulagi raforkumála. Einnig er hitt, að of mikill verðmunur er á raforku hér á landi og hefur verið lengi. Ég bendi á það, að notandi rafmagns hér í Reykjavik borgar um þessar mundir liðlega 10 kr. fyrir hverja kwst., en notandi rafmagns á Vestfjörðum, Norðurlandi eða Austfjörðum, sem fær rafmagn frá Rafmagnsveitum ríkisins, borgar tæpar 16 kr. fyrir kwst. Þetta er að sjálfsögðu þegar bæði fastagjaldið og einingargjaldið er reiknað saman. Sem sagt, viðskiptavinir Rafmagnsveitna ríkisins verða að láta sér lynda að borga liðlega 50% hærra orkuverð, og þetta er að sjálfsögðu ástand, sem er algjörlega óþolandi. Ég tel hættu á því að með samþykkt frv. eins og hér er á ferðinni, frv. um Orkubú Vestfjarða, geti vestfirðingar átt það á hættu að verðmunurinn milli þess raforkuverðs, sem Orkubúið býður þeim, og svo aftur verð þess hér í Reykjavík, verði enn meiri en nú er. Ég bendi á það að vestfirðingar eiga enga verulega stóra virkjun, enga verulega hagkvæma virkjun sem framleiðir orku með sambærilegu verði og stóru virkjanirnar hér á landsvirkjunarsvæðinu eða virkjanir sem eru fyrirhugaðar, t.d. á Norðurlandi Kröfluvirkjun eða Blönduvirkjun eða aðrar virkjanir þar sem virkjunarkostnaður á kwst., þegar virkjunin er fullnýtt, er áætlaður milli 1.50 kr. og 1.80 kr. á núverandi verðlagi. Slíkir virkjunarvalkostir eru ekki til á Vestfjörðum. Ég tel því æðimikil rök fyrir því og ekki að ástæðulausu að óttast að um verði að ræða stórhækkun raforkuverðs á Vestfjörðum nema aðrar aðgerðir til verðjöfnunar komi til og þá þurfi þær að vera æðimiklar.

Ég tek líka undir það, sem fram kom í álitsgerð Rafmagnsveitna ríkisins og lesið var upp áðan af hv. þm., að mér er ekki fyllilega ljóst hversu djúpt það er, fjárhagsfenið sem vestfirðingar kynnu að vera að fara út í, nema þeir nytu miklu betri kjara í viðskiptum sínum og uppgjöri við Rafmagnsveitur ríkisins en nú eru horfur á.

Ég tek líka undir þau ummæli, sem fram komu hér áðan og höfð voru eftir orkumálastjóra, að hann vildi gjarnan sjá hvert yrði skipulagið í öðrum landshlutum á raforkumálum áður en gengið yrði frá skipulagi orkumálanna á Vestfjörðum. Og ég bæti því við, að ég vildi helst af öllu sjá hvert yrði heildarskipulag raforkumála á öllu landinu. Ég viðurkenni hins vegar að þessi mál eru nokkuð sérstaks eðlis á Vestfjörðum.

Það má ekki einblína á raforkuöflunina og á raforkuhlið þessa máls. Ég tel að aðalatriði þessa frv. sé raunverulega það, að með samþykkt þess gefst óvenjulega gott tækifæri til að ráðast af krafti að stærsta og mikilvægasta verkefni þeirra vestfirðinga, að byggja upp hitaveitur eða fjarvarmaveitur á flestum þéttbýlisstöðum fjórðungsins. Ég tel að hvað þessa hlið málsins snertir sé það mjög til fyrirmyndar, og ég tel því ekki rétt að tefja framgang þessa máls eingöngu vegna þess að ég er ekki fyllilega ánægður með þá hlið málsins sem snýr að raforkuöflun og raforkudreifingu. Ég tel að sú hliðin, sem snýr að hitaveitunum, sé meginatriðið og að þó að skipulag raforkumálanna sé mjög óljóst enn og best hefði verið að koma þeim málum á hreint áður en frv. af þessu tagi hefði verið samþ., þá verðum við að bita í það súra epli að það dregst eitthvað að koma þeim málum á hreint, og þá er ekki ástæða til að tefja framgang þess mikla nauðsynjamáls að hitaveitur séu byggðar á Vestfjörðum og hafinn sé undirbúningur að því stórverkefni þegar í stað. En ég legg á það sérstaka áherslu að sú hliðin, sem snýr að raforkuöfluninni á Vestfjörðum og felst í þessu frv., er bráðabirgðaskipulag. Ég tel því að eðlilegast væri að í frv. væri bráðabirgðaákvæði sem einmitt lyti að því að skipulag þessara mála væri ekki endanlegt. Ég mun því leyfa mér að flytja brtt. við 2. umr. málsins, svo hljóðandi, að aftan við frv. komi ákv. til brb., svo hljóðandi:

„Stefnt skal að því að endurskipuleggja skipan raforkumála á landinu öllu með það fyrir augum að allir landshlutar tengist saman í eitt orkuveitusvæði, en ein samstarfsstofnun ríkis og sveitarfélaga annist virkjunarrannsóknir og taki ákvarðanir um nauðsynlegar virkjanir og selji jafnframt rafmagn í heildsölu til dreifingaraðila á sama verði um land allt. Meðan þessi skipan raforkumála er ekki orðin að veruleika annast Orkubú Vestfjarða virkjanarannsóknir og byggingu og rekstur raforkuvera á Vestfjörðum, en með nýrri skipan raforkumála skal ráðh. beita sér fyrir endurskoðun þessara laga.“

Ég vona, að efni þessa bráðabirgðaákvæðis sé alveg fullljóst. Hér er í örstuttu máli dregin fram stefna Alþb. í raforkumálum. Við teljum sjálfsagt og eðlilegt að landshlutarnir séu allir tengdir saman og að eitt orkuöflunarfyrirtæki annist orkuöflunina, en um leið verði tryggt að rafmagnið sé selt í heildsölu á sama verði um land allt, og við teljum að það sé ekki mögulegt að tryggja þetta markmið öðruvísi en einn virkjunaraðili eigi Í hlut. En ég vek athygli á því orðalagi, þar sem minnst er á þennan eina aðila, að þar er talað um samstarfsstofnun ríkis og sveitarfélaga. Við teljum að sjálfsögðu enga ástæðu til að slá því föstu að hér verði fyrst og fremst um ríkisfyrirtæki að ræða, heldur sjálfsagt og eðlilegt að þarna verði um að ræða einhvers konar samvinnufélag ríkisins annars vegar og landshlutasamtakanna hins vegar eða þá einfaldlega sveitarfélaganna.

Þessi stefna Alþb. hefur legið ljós fyrir um nokkurt skeið, og ég fagna því mjög að þetta sjónarmið virðist eiga ákveðna formælendur Í fleiri flokkum en Alþb. T.d. kom það mjög skýrt fram að miðstjórnarfundur Framsfl. hefur nú um helgina gert samþykkt í raforkumálum sem er nákvæmlega eins í öllum meginatriðum. Það er því ljóst að þessi stefna á sér marga formælendur. Ég leyfi mér að vona og er reyndar fullviss um að þessi stefna á einnig ýmsa talsmenn Í Sjálfstfl. Ég geri ráð fyrir því að Alþfl.- menn séu mjög svipaðrar skoðunar. Og ég harma það ef þróun mála hvað snertir skipulag raforkumála á eftir að þróast í átt til vaxandi ringulreiðar, enda þótt flest bendi til þess að meiri hl. Alþ. vilji stefna í allt aðra átt. Ég vil leyfa mér að vona að þeir hv. þm., sem eru efnislega fylgjandi því sjónarmiði sem fram kemur í þessu bráðabirgðaákvæði, styðji og stuðli að samþykkt þess. Ég er að sjálfsögðu reiðubúinn til að draga þessa brtt. aftur til 3. umr. ef einhver von væri um að samkomulag gæti um hana tekist eða óskír kæmu fram um að hún yrði tekin til nánari skoðunar, og leyfi mér að lokum, herra forseti, að leggja hana fram sem skriflega brtt.