10.05.1976
Efri deild: 100. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3837 í B-deild Alþingistíðinda. (3159)
251. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Þetta frv. er flutt af sex þm. í Nd., en fyrir næstum því hálfu öðru ári skipaði ég n. fulltrúa úr sjávarútvegi undir forsæti fiskimálastjóra til þess að undirbúa drög að frv. um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Eftir að sú n. hafði haldið fundi víðs vegar um landið var skv. tilnefningu þingfl. skipaðir 7 þm. í þessa n. til viðbótar og af þeim eru 5 flm. þessa frv., en einn flm, frv., hv. þm. Sighvatur Björgvinsson, tók sæti í þeim viðræðum sem áttu sér stað á milli þm. og sjútvrn. vegna fjarveru 1. landsk. þm., Jóns Árm. Héðinssonar, sem starfaði í fiskveiðilaganefnd. Af öðrum þm. hér í hv. þd. starfaði þar Steingrímur Hermannsson, hv. 2. þm. Vestf., form. sjútvn. Ed.
Þegar þmn. og fiskveiðilaganefndin höfðu lokið störfum og sent drögin í sjútvrn. með bréfi, að mig minnir dags. 5. febr., fór rn. yfir frumvarpsdrögin og hafði sérstakar aths. fram að færa hvað snerti þrjú tiltekin atriði. Það var hin lagalega uppsetning frv. og var leitað umsagnar Gauks Jörundssonar prófessors um það atriði. Hann skilaði eftir nokkurn tíma áliti sem þm. í n. féllust á að fara eftir við uppsetningu frv. Þá var einnig nokkur ágreiningur um veiðisvæði og tilhögun veiðileyfa og náðist einnig samkomulag um það atriði eins og það er nú í þessu frv. Enn fremur var nokkur ágreiningur eða skoðanamunur um lokun friðunarsvæða, veiðieftirlit og annað þess háttar, en varð einnig samkomulag um það orðalag sem er Í frv. Hins vegar gerðu rn. og þmn. enga breyt. á till. um veiðar á einstökum svæðum og er það óbreytt frá því sem fiskveiðilaganefnd og þmn. lögðu til, sem og um öll önnur atriði.
Þegar frv. kom til Nd. fylgdi því úr hlaði 1. flm. frv., hv. þm. Sverrir Hermannsson, og í sjútvn. voru gerðar á frv. tilteknar breyt., svæðabreytingar. Sérstaklega varð breyting á veiðisvæðinu við Suðausturland og sömuleiðis við Suðurland. Enn fremur var sett inn í frv. gildistaka laganna. Og í fjórða og síðasta lagi var sett inn ákvæði til bráðabirgða að skip, sem áður hefðu notið veiðiheimilda skv. stærðarmælingu 105 brúttórúmlestir og minni og 350 brúttórúmlestir og minni, skuli áfram njóta sömu veiðiheimilda skv. lögum þessum og skip 26 m og minni og 39 m og minni, eins og nú er tekið inn í þetta frv.
Ég ætla ekki að ræða frekar efnislega um frv. eða veiðar á einstökum svæðum. Ég tel að það sé réttara að gera í n. Að vísu starfaði sjútvn. Ed. lítillega með sjútvn. Nd., en ég legg ríka áherslu á að sjútvn. þessarar hv. d. hafi samráð við formann fiskveiðilaganefndar og reyni einnig að ná samstöðu, ef uppi eru till. og samkomulag verður um breyt. á frv. frá því sem það var afgr. í hv. Nd., þannig að það megi skapast samstarf á milli deilda og frv. þurfi ekki að fara oft á milli d. Við vitum að hér er um ákaflega erfið mál að ræða sem örðugt er að ná samkomulagi um, og enginn okkar getur fengið frv. afgr. eftir eigin höfði, heldur verðum við að leita samstarfs til að koma þessu mikilvæga máli fram.
Ég tel að það verði mjög slæmt ef frv. nær ekki fram að ganga því að hér er um mjög veigamiklar breyt. að ræða. Ég tel aftur mikinn feng að því að þær till. eða ábendingar, sem enn eru uppi, verði ræddar ítarlega í sjútvn. og reynt að ná samstöðu um þær breyt. sem helst er knúið á um. Í Nd. náðist fullkomin samstaða um þær brtt. sem þar voru gerðar og frv. var samþ. með shlj. atkv. í Nd. við 2. umr. og umræðulaust við 3. umr. Hins vegar komu fram ákveðnar ábendingar sem verða kynntar í sjútvn. þessarar hv. d. og taka verður ákvörðun um.
Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði þessu frv. vísað til hv. sjútvn.