10.05.1976
Efri deild: 100. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3862 í B-deild Alþingistíðinda. (3173)
257. mál, jarðalög
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Fyrir þremur árum, þegar frv. þetta var til meðferðar hér á Alþ., að vísu í nokkuð breyttu formi, kom til atkv. brtt. frá okkur alþb.-mönnum sem var nákvæmlega eins orðuð, með nákvæmlega sama innihaldi og sú till. sem hér er borin upp til atkv. Hún var þá flutt í beinu framhaldi af svonefndu Votmúlamáli og hún var samþ. hér í d. með miklum meiri hl. atkv. af þáv. þm. stjórnarfl., hv. þm. Framsfl., SF og Alþb., auk þm. Alþfl. Ég er vissulega furðu sleginn yfir því að ýmsir þeir, sem sögðu já við þessari sömu till. fyrir þremur árum, segja nú nei. Að sjálfsögðu segi ég já.