10.05.1976
Efri deild: 100. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3863 í B-deild Alþingistíðinda. (3177)

237. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Frsm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Félmn. hefur tekið frv. þetta, sem hér er til umr., til meðferðar og m.a. hefur n. fengið á fund sinn ráðuneytisstjóra félmrn. og framkvæmdastjóra Sambands ísl. sveitarfélaga. N. leggur til að frv. þetta verði samþ. með breyt. sem till. eru gerðar um á þskj. 679. Fjarverandi afgreiðslu málsins var Steingrímur Hermannsson.

Hér er um að ræða frv. til l. um breyt, á lögum um tekjustofna sveitarfélaga varðandi tvö atriði, aukaframlag úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélaga annars vegar og fólksfækkunarframlag hins vegar, og eru efnisatriði þessa frv. í 1. og 2. gr.

Í 1. gr. er fjallað um aukaframlag úr Jöfnunarsjóði. Samkv. frv. þessu er þar um að ræða það helsta nýmæli í þessari gr., að hér er gert ráð fyrir að heimilað sé að greiða aukaframlög til sveitarfélaga sem verða fyrir fjárhagstjóni vegna ákvæða laga nr. 94 frá 30. des. 1975, um breyt. á lögum vegna nokkurra verkefna sveitarfélaga og kostnaðar við þau. Þetta ákvæði er sett inn hér í samræmi við yfirlýsingu hæstv. félmrh. sem bann gaf þar um á fundi í hv. Nd. Alþ. hinn 19, des. s.l. Þá er einnig hér um það nýmæli að ræða í 1. gr. frv., að heimilað er að greiða aukaframlag samkv. 2, mgr. 1. gr. þótt ekki sé fullnægt skilyrðum samkv. stafliðum a–c í gr. þessari. Enn er það nýmæli í þessari gr., að félmrn. skal afla umsagnar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga áður en það ákveður aukaframlög til einstakra sveitarfélaga og verður að telja öflun slíkra umsagna eðlilega og sjálfsagða, segir í grg. með þessu frv. Og þá er loks að geta þess nýmælis, að gert er ráð fyrir að auka megi fé það, sem nota má til veitingar aukaframlaga úr Jöfnunarsjóði, frá því sem er í gildandi tekjustofnalögum, en þar segir m.a. að draga skuli frá úthlutunarfé 5% af tekjum Jöfnunarsjóðs til þess að mæta aukaframlagsútgjöldum. En í þessu frv. er m.a. gert ráð fyrir að til þess að mæta útgjöldum samkv. 1. gr. frv. megi verja 6% af tekjum Jöfnunarsjóðs. Er talið að aukning á þessu fé megi telja nauðsynlega, m.a. með tilliti til aukinna greiðslukvaða samkv. 2. mgr. 1. gr. frv. Það, sem ég hef nú rakið, varðar aukaframlag sem veita skal sveitarfélögum.

Í 2. gr. frv., eins og ég áður gat um, eru ákvæði um fólksfækkunarframlag. Í gildandi lögum er gert ráð fyrir að fólksfækkunarframlagið skuli nema sem svarar meðalútsvari á íbúa í landinu næst liðið ár margfaldað með íbúafækkunartölunni. Í 2. gr. þessa frv. felst sú breyt., að fólksfækkunarframlagið er lækkað og það er gert ráð fyrir að miða við helming meðalútsvars á íbúa, en ekki á meðalútsvar íbúa í landinu eins og nú er. Það er um þetta atriði sem félmn. hefur gert brtt, á þskj. 679. Þar er lagt til að þessu orðalagi sé breytt, það sé ekki að framlagið skuli nema helmingi meðalútsvars, heldur allt að meðalútsvari. Þetta þýðir það, að það er raunverulega lagt í vald félmrh. að taka ákvörðun um það hvað fólksfækkunarframlagið getur verið mikið. Það skal vera veitt ef skilyrðum er fullnægt, en það er hvorki tekið fram að það skuli vera nákvæmlega helmingur meðalútsvars né sem svarar fullu útsvari á íbúa í landinu, heldur að það skuli nema allt að meðalútsvari. Það er þá á valdi ráðh. að kveða á um upphæðina. Í 2. gr. frv. er gert ráð fyrir að sveitarstjórnir verði að hafa sótt um aukaframlag fyrir 15. júlí ár hvert. Þessari dagsetningu er breytt þannig, að félmn, gerir till. um á þskj. 679 að í staðinn fyrir „15. júlí“ komi: árslok, þ.e.a.s. að það þurfi að senda umsókn fyrir árslok.

Ég tel að ég hafi hér gert grein fyrir aðalefni þessa frv. svo og efni þeirra brtt., sem félmn. leggur til á þskj. 679.