10.05.1976
Efri deild: 101. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3864 í B-deild Alþingistíðinda. (3179)

177. mál, námslán og námsstyrkir

Frsm. meiri hl. (Axel Jónsson):

Herra forseti. Menntmn. þessarar hv. d. hefur haft þetta mál til meðferðar um nokkurt skeið, og eins og fram er tekið í nál. á þskj. 646 frá meiri hl. n. fjölluðu menntmn. beggja d. um málið á sameiginlegum fundum og til fundar við nefndirnar komu fulltrúar frá menntmrn. og námsmönnum og veittu ýmsar upplýsingar og greindu frá viðhorfum sínum. Menntmn. hefur rætt frv. á mörgum fundum og fengið umsögn fulltrúa í Þjóðhagsstofnuninni um málið. Mætti hann einnig á fundi n, og gaf frekari skýringar, Fulltrúar námsmanna mættu einnig á fundi n. N. varð ekki sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl., undirritaðir nm., leggur til að frv. verði samþ. með þeim brtt, sem fluttar eru á sérstöku þskj. Minni hl. skilar séráliti. Fjarverandi við afgreiðslu málsins var Bragi Sigurjónsson.

Hæstv. menntmrh. gat ítarlega þeirra nýmæla sem í frv. felast frá gildandi lögum, og vitna ég til framsöguræðu hans hér í hv. þd. 24. febr. s.l. Eins og fram kom hjá hæstv. ráðh. var fyrsta löggjöfin um Lánasjóð ísl. námsmanna sett 1961. Ljóst er af þeim umr., sem fram fóru á hinu háa Alþ. um málið þá, að af hálfu þeirra, sem að lagasetningunni stóðu, var það hugsun þeirra þá að byggja upp kerfi námslána sem innan fárra ára gæti orðið að verulegu leyti sér fjárhagslega nóg. Þá var það ekki hugsun löggjafans að námslánin yrðu að mestu leyti fjármögnuð með framlögum úr ríkissjóði, þó sú hafi orðið raunin á. Hæstv. menntmrh. sagði í sinni framsöguræðu efnislega á þá leið, að nú væri svo komið að aldrei hefði það verið fjarlægara en nú að Lánasjóður ísl. námsmanna gæti orðið sterkur. Líkur mætti færa fyrir því að sjóðurinn endurheimti að raungildi um eða innan við 10% af útlánuðu fé miðað við meðalverðbólgu á Íslandi. Því væri það markmið, sem menn höfðu í upphafi um námslánakerfið, orðið mjög fjarlægt.

Lögin hafa verið endurskoðuð 1967, 1968 og 1972. Umgetin endurskoðun miðast fyrst og fremst við það að lögin tækju til námsmanna fleiri skóla eða að tilteknir skólar hefðu breytt um heiti. Fer ég ekki frekar út í það, en staðreyndin er að þrisvar sinnum hefur lögunum verið breytt vegna þess að í þeim var upptalning á þeim skólum sem námsmenn í ættu rétt á lánum frá sjóðnum. Það er því með tilliti til fenginnar reynslu og tilliti til örra breytinga á menntunarkerfi landsins talið rétt að hverfa frá upptalningu skólanna, en setja í þess stað heimild til ráðh. til þess að ákveða með reglugerð til hvaða skóla lögin taka.

Svo sem að líkum lætur hefur Lánasjóðurinn mjög aukið umfang sitt á undanförnum árum. Nú er talið að um 3350–3400 námsmenn njóti styrkja og lána úr sjóðnum, þar af rúmlega 1000 erlendis. Árið 1970 voru veittar á fjárlögum 75 millj. kr. til námslána, árið 1974 402 millj., árið 1974–1975 úthlutaði lánasjóðurinn um 680 millj. kr. Á fjárlögum 1976 eru 840 millj. til Lánasjóðsins og þar að auki lántökuheimild fyrir ríkissjóð til að ábyrgjast 600 millj. kr. lán fyrir Lánasjóðinn. Framlag á fjárlögum og lántökuheimild eru því samtals 1440 millj. og síðan tekjur sjóðsins af endurgreiðslum og vöxtum um 15–20 millj., þannig að ráðstöfunarfé sjóðsins getur verið innan við 1500 millj., nánast 1460 millj. kr. Fram hefur komið hjá fulltrúum námsmanna að þeir telji sig geta fært rök að því að til þess að fullnægja að þeirra dómi eðlilegri þörf þyrfti 2 600 millj. til útlána og styrkja.

Herra forseti. Ég nefndi þessar tölur til að benda á þá gífurlegu þenslu sem átt hefur sér stað í útlánum Lánasjóðsins og þrátt fyrir það er ekki um það að ræða að talið sé að Lánasjóðurinn hafi getað fullnægt hinni svokölluðu umframfjárþörf námsmanna. Meginorsök þess, að svona hefur til tekist, er hin mikla verðbólga undanfarandi ára og þar sem lánin úr sjóðnum voru ekki verðtryggð skiluðu þau sér í sífellt minnkandi raungildi til Lánasjóðsins, og nú er svo komið, eins og ég hef áður vikíð að, að aðeins um 10% lánanna skila sér í raun. Önnur veigamikil ástæða er fyrir því, hvernig fjármálum Lánasjóðsins er komið, er að Lánasjóðurinn hefur á liðnum árum fært út kvíarnar þannig að nemendur æ fleiri skóla hafa öðlast rétt til lántöku úr sjóðnum. Munar hér miklu á því, sem var upphaflega í lögunum, og því sem nú er. Það er því öllum ljóst að breyta þarf frá núgildandi ákvæðum um endurgreiðslur.

Haustið 1972 skipaði menntmrn, nefnd til að endurskoða lögin um námslán og námsstyrki, N. skilaði álitsgerð 7. apríl 1973. Menntmrn. lét síðan semja frv. upp úr þeirri álitsgerð, að mestu samhljóða henni nema hvað varðaði ákvæði um vexti. Frv. þetta náði ekki afgreiðslu hér á hv. Alþ. Þó var menntmn, þessarar hv. d. á fundum sínum búin að ganga frá brtt. við frv. Þar er fyrst gerð till. um verðtryggingu lánanna að hluta ásamt með vöxtum, að vísu lágum.

Eins og ég hef áður getið náði þetta frv. ekki afgreiðslu hér á hv. Alþingi vorið 1974, og ræði ég ekki frekar um það né þær brtt, sem fyrir hugaðar voru við það, nema frekara tilefni gefist til.

Lögin voru á ný tekin til endurskoðunar haustið 1974, og 30. júlí 1975 var skipuð n. til að vinna að endurskoðun laganna. Í skipunarbréfi n. var tekið fram að nefndarstörfum skyldi hagað þannig að unnt yrði að leggja fram og afgr. ný lög fyrir lánasjóðinn hið fyrsta. Í n. voru skipaðir Torfi Ásgeirsson deildarstjóri í menntmrn. og var hann formaður n. Aðrir nm. voru Ellert B. Schram alþm., Finnur Birgisson arkitekt, Gunnar Vagnsson, formaður stjórnar Lánasjóðs ísl. námsmanna, Halldór Ásgrímsson alþm., Höskuldur Ásgeirsson nemandi í framhaldsdeild Fiskvinnsluskólans og Örn Marinósson deildarstjóri í fjárlaga- og hagsýslustofnun. N. kannaði málið frá ýmsum hliðum og lagði fram útreikninga, till. og skýringar. Er þetta frv. byggt á undirbúningsstarfi n. í veigamiklum atriðum. Meginbreytingin frá gildandi lögum er tvíþætt. Námslán skulu nú vera verðtryggð, en vaxtalaus og endurgreiðslur þeirra að hluta miðaðar við tekjur lánþega að námi loknu.

Eins og ég tók fram í upphafi máls míns gerði hæstv. menntmrh. ítarlega grein fyrir frv. í framsögu fyrir því. Fulltrúar námsmanna hafa einnig lagt fram frv. og grg. Þá hefur kjarabaráttunefnd námsmanna sent opið bréf til alþm. sem felur í sér gagnrýni á frv. til l. um námslán og námsstyrki, eins og segir í upphafi þess. Fjöldamargar ályktanir og erindi frá ýmsum hópum námsmanna hafa einnig borist.

Eins og áður er getið sendi menntmn. þessarar hv. d. frv. þetta svo og frv. námsmannanna til athugunar hjá Þjóðhagsstofnuninni. Einnig kom Hallgrímur Snorrason, er gerði umrædda athugun í Þjóðhagsstofnuninni, á fund nefndarinnar.

Herra forseti. Ég vik nú að fyrrgreindum atriðum svo og brtt. meiri hl. menntmn. sem eru, eins og fyrr segir, á þskj. 646.

Um 1. og 2. gr. frv. er ekki umtalsverður ágreiningur milli frv. þess, sem hér er til umr., og frv. námsmannanna. Námsmenn fallast á þá breyt. frá gildandi lögum að ekki verði um að ræða upptalningu á skólum eins og verið hefur og verið hefur tilefni þess að lögunum hefur þrisvar sinnum verið breytt.

3, gr. frv. er að miklu leyti samhljóða 2. gr. gildandi laga, en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Stefnt skal að því að opinber aðstoð við námsmenn samkv. lögum þessum nægi hverjum námsmanni til að standa straum af árlegum námskostnaði þegar eðlilegt tillit hefur verið tekið til aðstöðu hans til fjáröflunar.“ Samsvarandi gr. í frv., sem er eins og áður segir 3. gr., er þannig, með leyfi hæstv. forseta: „Stefnt skal að því að opinber aðstoð við námsmenn samkv. lögum þessum nægi hverjum námsmanni til að standa straum af eðlilegum námsog framfærslukostnaði þegar tillit hefur verið tekið til tekna námsmanns og maka hans, fjölskyldustærðar, framfærslukostnaðar í því landi þar sem nám er stundað, lengdar árlegs námstíma og annarra atriða er áhrif kunna að hafa á fjárhagsstöðu námsmanns. Nánari ákvæði um úthlutun námslána og styrkja skulu sett samkv. ákvæðum 16, gr.“ Greinin er því ítarlegri og tekur til fleiri atriða en samsvarandi grein gildandi laga, m.a. í því að taka tillit til framfærslukostnaðar auk námskostnaðar. Þá er og tekið fram að taka beri tillit til tekna maka, fjölskyldustærðar, framfærslukostnaðar í því landi þar sem nám er stundað, lengdar árlegs námstíma og annarra atriða er áhrif kunna að hafa á fjárhagsstöðu námsmanna.

Í áður áminnstu opnu bréfi til alþm. frá kjarabaráttunefnd námsmanna kemur fram hörð gagnrýni á upphaf þessarar greinar. Með tilliti til þess ástands, sem er í fjármálum nú, og með vísun til þeirrar þróunar, sem átt hefur sér stað á undangengnum árum, tel ég þessa gagnrýni ekki sanngjarna. Ég hef áður vikið að því hve útlán Lánasjóðsins hafa stóraukist á undangengnum árum án þess að sjóðurinn fengi til baka nema örlítið brot í raungildi af útlánum sínum.

Í þessu sambandi ber að hafa í huga, þegar sagt er að ekki hafi nógu mikið miðað í áttina að settu marki á þessu tímabili, að þá hafa æ fleiri skólar bæst inn í námslánakerfið og hlýtur það að teljast veruleg bót. Það er mikilvægt að ná því marki að mæta að fullu umframfjárþörf námsmanna. Ég tel þó enn mikilvægara að fjölmargir aðilar, sem enga aðstoð fengu og báru því verulegar byrðar, hafa með breyttum ákvæðum notið námsaðstoðar. Þetta hljóta þeir að meta sem þessa hafa notið. Þetta hefur hins vegar eðlilega íþyngt Lánasjóðnum. Ég gat þess áður að á fjárlögum 1970 voru veittar 75 millj. til námslána, 1974 um 400 millj. og 1976 840 millj. auk lántökuheimildar til handa ríkissjóði í þessu skyni upp á 600 millj. kr.

Í þætti í Ríkisútvarpinu í vetur þar sem rætt var um námslán og námsstyrki af þeim hæstv. menntmrh., Gesti Guðmundssyni þjóðfélagsfræðinema, Steingrími Arasyni viðskiptafræðinema og Stefáni Pálssyni starfsmannastjóra, sem sæti á í stjórn Lánasjóðs ísl. námsmanna, kom eðlilega margt fróðlegt fram. M.a. svaraði Stefán Pálsson spurningu stjórnanda þáttarins um hvort námsmenn, sem stunduðu nám sitt erlendis, fengju hærri styrki eða lán og eftir hverju það færi. Stefán Pálsson svaraði þessari spurningu þannig, með leyfi forseta: „Það fer eftir framfærslu í hverju landi.“

Það er kannske rétt að fara lauslega yfir það hvernig framfærsla er reiknuð. Ársframfærsla í heimahúsum á Íslandi er reiknuð 443 þús. fyrir hvern námsmann. Fyrir námsmann utan heimahúsa á Íslandi eru það 581 þús. En ég reiknaði meðaltalstölu námsmanna erlendis og það er í kringum 600 þús. Námsaðstoðin við námsmenn erlendis og hérlendis hefur miðast við 85% af þessari tölu, en þess er þó að geta, að tekjur manna eru umreiknaðar eða þær eru ekki reiknaðar að fullu til námsnota. Og ef við lítum á það dæmi lítillega, þá er það svo að ef námsmaður á Íslandi hefði 400 þús. kr. tekjur, þá væru aðeins 28 2500 kr. reiknaðar til námsnota. Hann mundi fá 85% 298 þús. eða 254 þús. Hann hefði 400 þús. kr. tekjur raunverulega. Hann fær lán upp á 254 þús., en þó er framfærslukostnaður á Íslandi utan heimahúsa 581 þús. Hann fær 73 þús. kr. meira til ráðstöfunar en framfærslukostnaður er reiknaður. Það verður ávallt nokkurt matsatriði við hvað skal miðað þegar umframfjárþörf er metin. Ég læt svo útrætt um þetta atriði í gagnrýni námsmannanna. Þó að fullur vilji og skilningur sé á nauðsyn þess að hægt sé að koma til móts við námsmenn til að mæta eðlilegri umframfjárþörf þeirra, þá tel ég óskynsamlegt, eins og nú er háttað, að binda það skilyrðislaust í lögum.

Varðandi þá gagnrýni, sem fram kemur í fyrrgreindu bréfi kjarabaráttunefndar námsmanna um breytta tilhögun á skipan sjóðsstjórnar, vísa ég henni á bug. Það er ekki óeðlilegt að nemendur annarra skóla en Háskóla Íslands tilnefni einn mann í stjórnina í stað háskólaráðs. Varðandi það atriði, sem fram kemur í umgetnu bréfi kjarabaráttunefndar námsmanna, að hér sé á ferðinni tilhneiging ráðh. til að tryggja rn, meiri hl. í stjórn sjóðsins, þá fær það ekki staðist þegar litið er til gildandi laga og hvernig ráðh. hefur farið með rétt sinn samkv. þeim til tilnefningar á fulltrúa í sjóðsstjórnina.

Þá kem ég að því atriðinu sem auk upphafs 3. gr. er aðalágreiningsefni af hálfu námsmanna um frv. Það er um endurgreiðslurnar á lánunum.

Eins og ég hef áður vikið að, þá eru allir, sem raunhæft hugsa um málefni Lánasjóðsins, sammála um nauðsyn þess að verðtryggja lán úr honum til að tryggja fjárhagsgetu hans í framtíðinni.

Eins og ég hef áður að vikið fékk Þjóðhagsstofnunin frv. til athugunar og einnig frv. námsmanna. Ég ætla — með leyfi hæstv. forseta að lesa það sem þar segir:

„Afar lauslegar athugasemdir um frv. til 1. um námslán og námsstyrki:

1. Þær athugasemdir, sem hér fara á eftir, fjalla einkum um tilhögun endurgreiðslna námslána samkv. frv. til l. um námslán og námsstyrki svo og samanburð þeirra till, og till. kjarabaráttunefndar stúdenta. Hvað endurgreiðslur varðar eiga till. frv. og námsmanna það sameiginlegt, að gert er ráð fyrir að horfið sé frá núverandi kerfi óverðtryggðra og vaxtalágra lána að fullri verðtryggingu lána, en án vaxta. Jafnframt er í báðum till. gert ráð fyrir að endurgreiðslur verði tengdar tekjum. Tilhögun tekjutengingar endurgreiðslna er hins vegar það sem skilur í milli till. frv. og till, námsmanna. í till. námsmanna er gert ráð fyrir að endurgreiðslur verði að fullu háðar tekjum og ráðist af tekjum lánþega umfram viðmiðunartekjur sem ákveðnar eru með viðmiðun við útgjöld samkv. grunni framfærsluvísitölu að teknu tillíti til fjölskyldustærðar. í till. frv. er tekjutryggingin hins vegar takmörkuð með ákvæðum um verðtryggingar lágmarksendurgreiðslu sem öllum lánþegum er skylt að inna af hendi án tillits til tekna. Sameiginlegt einkenni beggja till. er hámark endurgreiðslna, þ.e. að heildarendurgreiðslur fara aldrei fram úr heildarskuld að viðbættri verðtryggingu. Báðar till. gera enn fremur ráð fyrir að endurgreiðslutíminn verði lengstur 20 ár og að þeim tíma liðnum verði eftirstöðvar lána óafturkræfar.

Við mat á þessum till. þyrfti að gæta þriggja sjónarmiða.

Í fyrsta lagi þyrfti að vera unnt að meta væntanlega greiðslubyrði lána jafnframt því sem ákveða þarf hver greiðslubyrði skuli eða skuli ekki vera. Í frv. er í reynd ekki að finna neina hugmynd um hver sé æskileg eða eðlileg greiðslubyrði, í grg, segir aðeins að till. eigi að tryggja að engum lánþega verði ofþyngt með endurgreiðslu. Enga nánari skilgreiningu á þessu er þó að finna í grg. Um mat greiðslubyrðar verður fjallað hér á eftir.

Í öðru lagi þarf að gæta þess sjónarmiðs áð endurgreiðslur verði verulegur hluti fjármögnunar Lánasjóðsins eða að Lánasjóðurinn fái umtalsverðan hluta námslána endurgreiddan á raunvirði, eins og segir í grg. frv. Hér er því gert ráð fyrir að sjóðurinn standi að verulegu, en þó ekki að öllu leyti undir eigin lánastarfsemi með endurgreiðslum. En enga ábendingu er að finna um það, hvaða hlutfall heildarendurgreiðsla af lánum eða fjármögnun geti talist fullnægjandi eða að skuli stefnt.

Í þriðja lagi virðist eðlilegt að þess sé gætt að eftirspurn eftir lánum úr sjóðnum sé að nokkru stýrt með lánskjörum. Hér er um það að ræða, að nauðsynlegt er að lánskjör séu nógu stíf til þess að tryggja að bægt verði frá sjóðnum lánsfjáreftirspurn þeirra sem ekki hafa beinlínis þörf fyrir námslán og/eða geta séð fyrir fjárþörf sinni með öðrum hætti. Þar með yrði jafnframt tryggð betri nýting fjármagns Lánasjóðs.

Hér á eftir verður fjallað nokkru nánar um till. frv. um endurgreiðslur námslána í ljósi þessara þriggja sjónarmiða.

2. Eins og hér hefur komið fram er það einkum till. frv. um lágmarksendurgreiðslur sem skilur sig frá till. námsmanna. Rétt er að huga nokkru nánar að því hvað till. um lágmarksendurgreiðslur felur í sér almennt. Helsti galli þessa fyrirkomulags er væntanlega sá að mögulegt sé að greiðslubyrði lágmarksafborgunar og verðtryggingar verði of þung fyrir tekjulága lánþega með stóra fjölskyldu. Með skynsamlegri ákvörðun lágmarksafborgunar ætti hins vegar að vera unnt að koma í veg fyrir að slíkt verði almennt, og ætti þá að vera auðvelt að fást við þau einstöku tilfelli sem upp kynnu að koma og beita heimildarákvæðum 5. mgr. 8. gr. frv. Helstu kostir, sem felast í till. frv. um lágmarksafborganir, eru hins vegar þessar:

1) Með fyrirkomulagi þessu eru lánasjóðnum tryggðar meiri og jafnari endurgreiðslur en ella.

2) Enn fremur verða afborganir mun minna háðar því hversu samviskusamlega tekjur eru taldar fram til skatts.

3) Loks eru reglur um lágmarksendurgreiðslur gagnlegar í kerfi tekjutengdra lána til þess að hafa áhrif á eftirspurn eftir lánum úr sjóðnum.

Hér verður því jafnframt að hafa í huga að þessum eftirspurnaráhrifum fylgir tvenns konar vandi: Annars vegar að sá áhættuþáttur, sem hér kemur til, geti útilokað lánsfjáreftirspurn þeirra sem eru í erfiðri fjárhagsaðstöðu og ekki búast við háum starfstekjum að námi loknu, og hins vegar að kerfið geti bæði fyrirfram og eftir á raskað vali manna milli seljanlegrar og efnalegrar og óseljanlegrar eða andlegrar uppskeru námsins.

Að nokkru er það sameiginlegt einkenni till. frv. og till. námsmanna að í báðum kerfunum er beinlínis gert ráð fyrir óbeinum styrkveitingum til námsmanna, bæði í heild og einstaklingsbundið. Þetta er þó takmarkað með lágmarksafborgunum í till. frv., en vegna þeirra verður styrkjaþáttur kerfisins hins vegar að nokkru háður vilja manna til töku áhættu sem verður að teljast annmarki á öllum beinum styrkjakerfum. Styrkjaþáttur þess kerfis, sem felst í till. námsmanna, er hins vegar mjög mikill þar sem gert er ráð fyrir að afborganir á hverju einu ári geti orðið óverulegar eða fallið alveg niður við ákveðin tekjumörk. Þessu kerfi fylgir því lítil áhætta og hefur að þessu leyti því lítilleg eða engin áhrif á eftirspurn eftir lánum úr sjóðnum, jafnframt því sem fullljóst er að með þessu móti verða heildarendurgreiðslur í sjóðinn væntanlega mun minni en ella og skila sér síðar. Almennt má þó segja um bæði þau kerfi sem felast í till. frv. og till. námsmanna, að gera má ráð fyrir að þau hafi hamlandi áhrif á lánseftirspurn úr sjóðnum frá þeim, sem hafa rúman fjárhag og/eða búast við miklum tekjum strax að námi loknu, og hvetji til ásóknar í önnur lán. Þessu veldur að þeir, sem stefna í hátekjuhópa, geta eflaust margir séð fram á að lánskjör þau, sem Lánasjóður ísl. námsmanna býður, eru stífari en almennt gerist á peningamarkaði.

3. Upplýsingaskortur háir mjög allri talnalegri athugun á tekjutengdu námskerfi. Til þess að unnt sé að ætlast á um væntanlegt endurgreiðsluhlutfall námslána þarf til haldgóðar upplýsingar um tekjudreifingu lánþega að námi loknu. Slíkar tekjudreifingatölur eru ekki fyrir hendi og verða vart áætlaðar af nokkrum áreiðanleika að svo stöddu. Auk upplýsinga um tekjur þyrfti jafnframt að ætlast á um dreifingu lánþega eftir fjölskyldustærð og þar með tekjudreifingu þeirra eftir fjölskyldustærð, en slíkar upplýsingar eru ekki fáanlegar. Því er ljóst að allur reikningur tekjutengdra endurgreiðslna hlýtur að vera afar ótraustur. Útreikningar endurgreiðsluhlutfalls byggjast á hinn bóginn á áætlunum um lánveitingar sjóðsins, þ.e. um lánsfjárhæðir, fjölda lána og skiptingu á tekjuhópa að námi loknu. Við þetta verður að beita gögnum Lánasjóðs ísl. námsmanna um lánastarfsemina að undanförnu ásamt hugmyndum um þá stefnu sem líklegt virðist að tekin verði í lánveitingum sjóðsins.

Að öllu samanlögðu verður því að álykta að reikningur endurgreiðsluhlutfalls sé afar varhugaverður eins og sakir standa vegna þess hve mikil óvissa ríkir um hversu traustar reikningsforsendur eru í reynd. Á vegum kjarabaráttunefndar stúdenta hafa hins vegar verið gerðir útreikningar á endurgreiðslum og endurgreiðsluhlutföllum. Þessir reikningar eru reistir á safni tilbúinna og áætlaðra forsendna um meðaltekjur starfsstétta og ágiskunum um tekjur eiginkvenna, einkum samkv. skattaframtölum fyrir árið 1974 með áætlunum um hækkun til meðaltals 1975 og dreifingu eftir fjölskyldustærð. Ljóst er að hér er viða í besta falli um grófar ágiskanir að ræða. Jafnframt verður að benda á að hér er ekki gerlegt að ætlast á um beinar tekjudreifingartölur lánþegahópsins, heldur er einungis unnt að nálgast þá dreifingu með notkun meðaltekna starfsstétta. Forsendur um lánsfjárhæðir, lánafjölda og skiptingu eru áætlaðar eftir gögnum Lánasjóðs ísl. námsmanna. Samkv. þessum heimildum hefur verið reiknað meðallán 1975 miðað við að umframþörf væri brúuð að fullu og að áætluð fjárþörf námsmanna yrði þegar í upphafi hins nýja lánakerfis hækkuð til samræmis við niðurstöður kostnaðarkönnunar. Niðurstöður þessara útreikninga námsmanna gefa til kynna að um 54% útlána muni skila sér í sjóðinn á 20 ára endurgreiðslutíma. Hér verður ekki reiknað á þessum grunni fyrir till. frv. og því ekki settar fram neinar beinar samanburðartölur við útreikninga námsmanna um heildarendurgreiðslur.

Eins og að ofan segir eru heldur engin skýr ákvæði í frv. um afborganir umfram lágmark nema hvað snertir hámark afborgana miðað við tekjur. Þegar af þessum sökum verða reikningar endurgreiðsluhlutfalls hæpnari en ella. Hins vegar má m.a. með því að beita lánaforsendum stúdenta reikna það endurgreiðsluhlutfall sem einungis lágmarksafborganir gætu gefið. Þær eru að auki óháðar tekjum samkv. frv. og þarf því ekki að styðjast við neinar tekjudreifingarforsendur við slíka reikninga. Miðað við forsendur námsmanna um meðallán 410 þús., fjölda lána og skiptingu námshópa annars vegar og lágmarksafborganir samkv. frv., 50 þús. kr. á ári, hins vegar, fæst sú niðurstaða að heildarendurgreiðslur með lágmarksafborgunum á 20 árum gætu numið 54% af heildarskuld (athuga að hér hafa 50 þús. kr. miðað við framfærsluvísitölu 507 1. febr. 1976 verið færðar til ársmeðaltals 1975 til samræmis við meðallánatölu). Með lágmarksafborguninni einni fæst því hér sama niðurstaða og með öllum afborgunum í kerfi námsmanna. Væri hins vegar reiknað með 40 þús. kr. lágmarksafborgunum miðað við framfærsluvísitölu 507 yrði endurgreiðsluhlutfallið hins vegar um 44%.

Nú er þess að gæta að meðallánið 410 þús. kr. skiptir hér meginmáli. Eins og áður er sagt er það fundið miðað við fulla brúun umframfjárþarfar, og nýtt kostnaðarmat er því allmiklu hærra en meðallán Lánasjóðs ísl. námsmanna er í reynd. Samkv. uppl.ýslngum Lánasjóðs ísl. námsmanna má gera ráð fyrir að meðallán í þeirri úthlutun, sem nú er nýlokið, nemi um 320 þús. kr. Sé reiknað með þessu meðalláni fást mun hærri endurgreiðsluhlutföll eða 73% miðað við 50 þús. kr., 62% miðað við 40 þús. kr. og 55% miðað við 35 þús. kr. lágmarksafborgun á ári.

Þótt ekki sé ætlunin að fara mörgum orðum um þessar niðurstöður má e.t.v. gera við þær tvær athugasemdir. Í fyrsta lagi er ljóst að miðað við 40–50 þús. kr. lágmarksafborganir verður ekki um mikið svigrúm að ræða til að beita tekjutengdum aukaafborgunum þannig að tekjutengingarinnar gæti verulega. Í öðru lagi má ætla að miðað við hugmyndir um einhverja líklega tekjudreifingu lánþegahópsins muni flestallir námsmenn eiga að greiða einhverja aukaafborgun samkv. till. frv. Þetta hefur það tvennt í för með sér, að endurgreiðsluhlutfallið gæti orðið talsvert hærra en með lágmarksafborgunum eingöngu og aukaafborganir þyrftu sennilega ekki að fara í hámark til þess að megnið af lánunum skilaði sér til baka, og á hinn bóginn virðist ljóst að margir hópar greiddu lán sín á mun skemmri tíma en 20 árum.

Í framhaldi af þessu má minna á að bæði útreikningar námsmanna og þeir, sem hér hafa verið tíundaðir, eru miðaðir við meðalendurgreiðslu 20 ára og segja því ekkert til um tímaferli endurgreiðslna. Í hreinu tekjutengdu kerfi eins og í till. stúdenta má búast við vegna hækkandi launa með starfsaldri að endurgreiðslur skili sér fremur síðar en fyrr á endurgreiðslutímabilinu. Endurgreiðslur munu hins vegar skila sér fyrr í því kerfi sem frv. kveður á um, en það þýðir jafnframt þyngri greiðslubyrði en í till. námsmanna.

4. Hér að framan var almennt fjallað um kosti og galla lágmarksafborgana í tekjutengdu námslánakerfi, en e.t.v. mætti ræða nokkru nánar um það sérstæða fyrirkomulag lágmarksafborganna sem felst í frv. Þar er annars vegar gert ráð fyrir að árlegar lágmarksendurgreiðslur séu óháðar tekjum, eins og eðlilegt er, en hins vegar er svo gert ráð fyrir að þær séu óháðar heildarskuld lánþegans og er það öllu óvenjulegra. Þetta veldur því, að því lengri, sem heildarskuld lánþegans er þeim mun fyrr verður hann að inna hana af hendi. Í sjálfu sér virðist það ekki óeðlilegt að lágar skuldir innheimtist fyrr en háar. En hér verður þó að gæta að tvennu, að vegna aukaafborgananna, sem ráðast af tekjum, er við því að búast að lágar skuldir greiðist enn fyrr en ella og hins vegar að sá styrkjaþáttur, sem er innbyggður í kerfið, nær þannig ekki til lágra lána, þ.e. lána sem eru í heild sama fjárhæð eða lægri en lágmarksafborgunin í 20 ár.

Þannig má almennt segja að kerfið taki langt nám fram yfir skammt þar sem miklar skuldir sæta betri kjörum en litlar skuldir. Ljóst er einnig að á þeim tíma, sem það tekur að ljúka greiðslu námslána, verður greiðslubyrði lántakanda vegna lítillar skuldar hin sama og vegna mikillar skuldar. Hér verða ekki settar fram neinar hugmyndir um lausn þess vanda, ef vandi er talinn, en aðeins bent á að slík lausn gæti falist í tengingu lágmarksafborgana og heildarskuldar.

5. Að lokum verða hér settar fram örstuttar athugasemdir um einstaka þætti till. frv.:

a. Undanfarin 15 ár hefur kaupmáttur launa almennt aukist um yfir 4% að meðaltali á ári. Rétt virðist að reikna með að kaupmáttarþróun verði með einhverjum svipuðum hætti áfram, a.m.k. ef til lengri tíma er litið, en það hefði í för með sér að greiðslubyrði vegna lágmarksafborgananna léttist ár frá ári.

b. Í frv. eru engin ákvæði um skattalega meðferð verðtryggingar námslána. Það er hins vegar álitamál hvort verðtryggingin verði frádráttarbær við álagningu tekjuskatts og fyrir fram verður engu slegið föstu þar um. Rétt gæti því verið að álits ríkisskattstjóra verði leitað um þetta efni.

c. Ákvæði frv. um endurgreiðslu lána hjóna kunna að orka tvímælis og verið gæti að hér ætti samsvörun við ákvæði skattalaga betur við.“

Herra forseti. Þá vík ég að brtt, meiri hl. menntmn. á þskj. 646.

Fyrsta brtt. er við 8. gr. frv., um að gr. orðist eins og þar segir. Þar er í upphafi gr. lagt til að föst endurgreiðsla árlega lækki úr 50 þús. í 40 þús. kr. Léttir þessi breyting greiðslubyrði, sér í lagi þeirra sem lægri tekjur hafa og falla því síður undir ákvæðin um aukaafborganir, og er hér gengið til móts við óskir námsmanna. Í öðru lagi eru einnig í þessari mgr. ákvæði sem tryggja að þeir, sem skemur en 4 ár njóta námsaðstoðar, greiða ekki fulla uppbót á fastar greiðslur, heldur, eins og segir í gr., ekki hærri fjárhæð en 10 þús. kr. vegna hvers byrjaðs námsárs sem námsaðstoð hefur verið veitt til. Hér er einnig gengið til móts við óskir námsmanna og farið inn á þá braut, sem m.a. er bent á í athugasemdum Þjóðhagsstofnunarinnar um tengingu lágmarksafborgananna og heildarskulda. Hér er um breyt. að ræða sem kemur þeim sérstaklega til góða sem verða stuttan tíma í námi og hafa að námi loknu ekki háar tekjur. Þá er í þriðja lagi lögð til sú breyt. á þessari gr., þ.e. 3. mgr. 8, gr., að séu hjón bæði lántakar skuli þau greiða hálfa endurgreiðslu samkv. 1. mgr. af láni hvors um sig. Hér er einnig gengið til móts við óskir námsmanna og léttir þessi breyt. greiðslubyrði hjóna sem bæði eru lántakendur úr sjóðnum. Í fjórða lagi er breyt. sem gengur í þá átt að ákvæðin um fasta árlega afborgun svo og aukaafborganir taki einnig til sambýlisfólks sem skattlagt er samkv. 1. mállsl. 5. mgr. B-liðar 25. gr. laga nr. 68/1971, sbr. 9. gr. laga nr. 11/1975. Rétt þykir að leggja til að þeir aðilar, sem ákvæði fyrrgreindra laga taka til, þ. e, sambýlisfólk, njóti í þessum lögum sömu ákvæða og hjón, þó svo að ekki hafi komið fram beinar óskir um þetta af hálfu námsmanna.

Þá er lögð til sú breyt. á 9. gr., sem fram kemur í 2. mgr., sem er bein afleiðing þeirrar breyt. sem tekin er inn í 8. gr., 3. mgr. 8. gr., þ.e. að sambýlisfólk, sem skattlagt er samkv. áður umgetnum lögum, falli á sama hátt og hjón undir ákvæðin um viðmiðunartekjur. Með þessum breyt. er einnig mjög létt á um afborganir hjóna og sambýlisfólks sem bæði eru lántakendur úr sjóðnum, og vitnast í því efni til athugasemda sem fram koma hjá fulltrúa Þjóðhagsstofnunarinnar.

Þá vil ég aðeins víkja að því sem segir í niðurlagi athugasemda fulltrúa Þjóðhagsstofnunar, þ.e. b-lið, en þar segir svo, eins og ég áður las, með leyfi forseta: „Í frv. eru engin ákvæði um skattalega meðferð verðtryggingar námslána. Það er hins vegar álitamál hvort verðtryggingin verði frádráttarbær við álagningu tekjuskatts og fyrir fram verður engu slegið föstu þar um. Rétt gæti því verið að álits ríkisskattstjóra verði leitað um þetta efni.“

Ég leitaði álits ríkisskattstjóra um þetta mál og taldi hann með tilliti til þess hvernig með þessi mál væri farið, þá væru verðbæturnar frádráttarbærar á sama hátt og vextir, og vísað til úrskurðar ríkisskattanefndar nr. 804 frá 9. sept. 19&8, en þar var úrskurðað að greiddar verðbætur væru frádráttarbærar á sama hátt og vextir. Í því tilfelli var um að ræða verðtryggingu ásamt með lágum vöxtum, 4–5 1/2%, af húsnæðismálalánum. Hér er hins vegar um verðtryggingu að ræða er kemur alfarið í stað vaxta þar sem lánin eru vaxtalaus.

Þá er breyt. við 12, gr. frv. þar sem gengið er til móts við óskir námsmanna. Brtt. hljóðar svo:

„Greinin orðist svo:

Stjórn Lánasjóðsins sé heimilt að veita aðstöðujöfnunarstyrki til námsmanna sem verða að kosta sig fjarri heimili sínu vegna náms sem er aðstoðarhæft samkv. 1. og 2. gr., enda verði sams konar nám ekki stundað þar sem umsækjandi á heima. Jöfnunarstyrki til námsmanna á Íslandi skal ákveða með tilliti til ferðakostnaðar og húsnæðiskostnaðar á dvalarstað.

Fé því, sem veitt er á fjárlögum til námsstyrkja, skal m.a. varið til þess að vega upp á móti kostnaðarauka hjá þeim námsmönnum sem fara utan til náms, og skulu þeir að jafnaði ganga fyrir er stunda nám er eigi verður stundað hérlendis.“

3. mgr. er óbreytt frá upphaflegu frv.

Þá er og breyt. við 16. gr. frv. um að upphaf 3. mgr. orðist svo:

„Sjóðstjórn setur reglur um önnur atriði úthlutunar“ o.s.frv. Þykir betur á fara að nota orðið önnur í stað smærri, eins og er í frv.

Ég hef hér vikið að þeim breyt. sem meiri hl. menntmn. leggur til að gerðar verði á frv. Breyt. miða að því að létta greiðslubyrði þeirra, sem í erfiðari aðstöðu eru, og skapa aukið svigrúm til aðstöðujöfnunar námsmanna. Það er trú mín að verði fyrrgreindar breyt. samþ., þá verði greiðslugeta þeirra, sem lán taka úr Lánasjóðnum, ekki íþyngt um of, um leið og fjárhagsgrundvöllur Lánasjóðs námsmanna verður betur tryggður og því auknar líkur til þess að hann geti fyrr veitt raunverulega fulla umframaðstoð þeim sem þess þurfa.

Herra forseti. Ég legg til að frv. verði samþ. með þeim breyt. sem lagðar eru til á þskj. 646.