10.05.1976
Efri deild: 101. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3884 í B-deild Alþingistíðinda. (3189)
257. mál, jarðalög
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Það eru aðeins fáein orð. Ég vil eindregið hvetja forseta til að fresta endanlegri afgreiðslu þessa máls þannig að unnt sé að kanna það til hlítar hvert er álit lögfróðustu manna um þetta efni. Ég er nefnilega ekki sammála seinasta ræðumanni um að hér sé fyrst og fremst um að ræða stefnuatriði eða stefnubreytingu. Ég hallast eindregið að því að samþykkt þessarar frvgr. sé stjórnarskrárbrot. Ég greiddi því atkv. með brtt. þess efnis að fella þetta ákvæði niður, en vegna þess að ég var víst fyrstur í nafnakalli, þá kom ég ekki við að gera grein fyrir atkv. mínu þar sem ég hafði ekki fengið stjórnarskrána í hendur, en eftir að við höfum fengið hana í hendur, þá tel ég að þetta liggi nokkuð ljóst fyrir. Það segir í stjórnarskránni í fyrsta lagi að ekki megi leggja skatta á almenning án þess að lög liggi fyrir og í öðru lagi að ekki megi selja eða afhenda fasteignir án þess að lög liggi fyrir. Ég bið menn aðeins að hugleiða hvernig málið líti við varðandi skattlagningu. Dettur mönnum í hug að heimilt væri að samþ. hér á Alþ. að hér eftir skyldi ríkisstj. ráða allri skattlagningu án nokkurra skattlagningarákvæða og hún hefði í hendi sér að ákveða hversu háar prósentutölur væru í skattstigum eða á hverja skyldu lagðir skattar og á hverja ekki. Að sjálfsögðu væri slíkt stjórnarskrárbrot, og það er það sem stjórnarskrárgjafinn var með í huga, að hann taldi sjálfsagt að í hvert sinn sem skattur væri á lagður, þá fjallaði Alþ. um það og veitti sina heimild. Það stenst því ekki að gefa svo almenna heimild til framkvæmdavaldsins að hún feli í sér næstum því hvað sem er. Nákvæmlega sama gildir þegar um er að ræða sölu fasteigna, að hingað til hefur það verið föst regla að Alþ. samþ. sölu á hverri einstakri fasteign fyrir sig og það stenst ekki frá sjónarmiði stjórnarskrárinnar að gefa svo almenna heimild að það sé ekkert tiltekið um hvaða fasteignir löggjafaratriðið fjallar eða til hvers heimildin nær.
Ég er sem sagt þeirrar skoðunar að þetta standist ekki og vil eindregið hvetja hæstv. forseta til að fresta umr. a.m.k. til morguns þannig að menn fái ráðrúm til að skoða þetta betur.