10.05.1976
Efri deild: 101. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3887 í B-deild Alþingistíðinda. (3193)
257. mál, jarðalög
Forseti (Þorv. G. Kristjánsson):
Það hafa nokkrir þdm. eindregið óskað eftir því að þessu máli, sem hér er til umr. verði frestað. Þeir haf borið við að það jaðri við eða jafnvel sé um að ræða stjórnarskrárbrot ef frv. þetta er samþ. ein og það liggur fyrir. Ég tel að hér sé þess vegna um slíkt mál að ræða að það sé eðlilegt að fresta umr. og það reki ekki nauður til að ljúka þessu máli að þessum næturfundi. Í þessu felst af hálfu forseta enginn dómur um réttmæti þess sem hér hefur verið haldið fram, en hann telur rétt að málið verði athugað. Ég vænti að menn fallist á það að fresta umr. nú, en einn hv. dm. hefur kvatt sér hljóðs.