11.11.1975
Sameinað þing: 13. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í B-deild Alþingistíðinda. (320)

300. mál, samstarf við erlenda aðila um virkjanir og stóriðju á Austurlandi

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Hér var áðan minnst á fyrirtækið Norsk Hydro í svari hæstv. ráðh. Mér er afar kunnugt um bær viðræður sem Norsk Hydro átti við heimaaðila, þ. e. a. s. við hreppsnefnd og aðra framámenn í minni heimabyggð, Reyðarfirði. Þeir sýndu á því mikinn áhuga að koma þar upp álverksmiðju á tímabili, munu síðan hafa horfið frá því, a. m. k. höfum við, sem betur fer, ekki heyrt neitt frá þeim nýlega. Það fer þá fram bak við tjöldin ef svo er að þeir hafi enn þennan áhuga. Meiri hl. hreppsnefndar þá ákvað að taka upp viðræður og kanna þetta mál við Norsk Hydro. Ég var hins vegar andvígur því og hef ekki dregið neina dul á andstöðu mína við öll slík áform.

Hæstv. ráðh. vitnaði bæði hér og eins í svari við fsp. minni um daginn í viðræðunefnd um orkufrekan iðnað. Þá spurði ég alveg sérstaklega um sannleiksgildi ákveðinnar hviksögu sem hefur gengið eystra mjög ákveðið varðandi n. sem þegar væri komin á laggirnar af hálfu annaðhvort rn. eða þessarar viðræðunefndar annars vegar og erlendra aðila hins vegar. Mig langar til þess, af því að ég veit að hér er einn hv. þm. staddur, sem er þessu máli mjög kunnugur, er í þessari víðræðunefnd, að inna hann nánar eftir því, vegna þess að mér þótti ég ekki fá nógu ljós svör þá frá hæstv. ráðh. varðandi það hvort eitthvað væri í þessu hæft, hvort þessi víðræðunefnd um orkufrekan iðnað hefur tekið einhverja ákvörðun þar að lútandi, um einhverja samstarfsn. með þessum útlendingum. Það væri mjög kærkomið að fá algera neitun á þessari hviksögu. Hún hefur gengið mjög ákveðið og gott að fá svar um hana frá bæði hæstv. ráðh. og hv. þm. Steingrími Hermannssyni, sem ég veit að er fús til að gefa einnig um þetta upplýsingar.