10.05.1976
Efri deild: 101. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3889 í B-deild Alþingistíðinda. (3201)
238. mál, ferðamál
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Við 1. umr. um frv. til l. um skipulag ferðamála flutti ég till. sem var samhljóða till. sem ég flutti hér við afgreiðslu þessa máls fyrir þrem árum, nánar tiltekið árið 1973, og þá var þessi till. samþ. samhljóða hér í þingdeildinni. Nú hefur mál þetta verið afgr. við 2. umr. án þess að samgn. d. vildi sinna þessari till. í einu eða neinu, og flest bendir til þess að nú eigi að fella till. sem var samþ. hér samhljóða fyrir þrem árum, og vil ég eindregið óska eftir skýringu á þessari afstöðu þingmanna. Ég heyrði sagt hér áðan að einhver hefði laumað því að hv. n. að þessi till. ætti ekki við þessi lög, þessi till. ætti frekar heima í grunnskólalöggjöfinni. En hér er um misskilning að ræða. Þegar ég flutti till. mína á sínum tíma, þá kom fram nákvæmlega sama sjónarmið, að till. ætti heima í grunnskólalögunum. Og þá sömdum við um það, ég og þáv. menntmrh.. hvernig skyldi skipta tillögugreininni, hver hluti af henni ætti heima í grunnskólalögunum og hver ætti heima í lögunum um ferðamál, og ég flyt hér nú þann hluta sem allir voru þá sammála um að ætti heima í lögum um skipulag ferðamála. Sérstaklega minnist ég þess að þá hafði framsögu fyrir minni hl. samgn. hv. þm. Jón Árnason, og hann tók þátt í þessu samkomulagi og varð innilega sammála okkur um að brýna nauðsyn bæri til að samþ. þessa tillögu.
Þessi till. er hvorki stór né örlagarík fyrir þjóð eða land, en þetta er till. sem á sér praktískan tilgang og miðar að því einu að þegar byggðar eru heimavistarbyggingar, þá sé eitthvert tillit tekið til þess við hönnun húsnæðisins að byggingin yrði notuð að sumrinu til fyrir gistihópa eða ferðamannahópa, innlenda eða erlenda, þannig að heimavistirnar séu ekki frá öndverðu hannaðar þannig að þær komi að litlum sem engum notum 1/3 hluta af árinu. Þetta höfum við horft upp á nú á undanförnum árum æðioft. Ég veit að vísu að sums staðar hafa sveitarstjórnir haft frumkvæði að því að haga hönnun húsnæðisins þannig að hægt hefur verið að segja að um nothæft fyrsta flokks gistirými væri að ræða, en í æðimörgum tilvikum hefur reynslan orðið sú að sveitarstjórnir hafa sagt: Hvar eigum við að fá peninga til þess að borga dýr tæki á herbergi í heimavistum úr því að við fáum ekkert framlag úr ríkissjóði til þess arna? Við stöndum ekki í því, að leggja fram þá fjármuni. — Og þar af leiðandi hefur húsnæðið verið byggt án þess að tillit væri tekið til þessa sjónarmiðs.
Ég tel að það sé nauðsynlegt að í frv. um ferðamál sé beinlínis tekið inn ákvæði sem slái því föstu að það sé skylda Ferðamálaráðs að fylgjast með þessum málum og að það eigi að fara fram á það að byggingateikningum sé hagað svo að húsnæðið fullnægi lágmarkskröfum sem gerðar eru til rekstrar gistihúss þegar því sýnist að þörf sé á slíkri breytingu. Eins er nauðsynlegt að Ferðamálasjóði séu ætlaðir einhverjir fjármunir til þess að standa straum af lánveitingum í þessu skyni. Þess vegna er nauðsynlegt að setja í lögin ákvæði um þetta efni.
Ég endurtek það hér að mér er með öllu óskiljanlegt hvers vegna samgn. gat ekki hugsað sér að mæla með samþykkt þessarar till. enda þótt allir hv. dm. samþ. hana fyrir þrem árum. Mér er nær að halda að menn hafi ekki hugleitt þetta mál nægilega vel, fengið rangar upplýsingar. Vil ég eindregið fara þess á leit í fyrsta lagi að fá einhverjar skýringar á því hvers vegna menn treysta sér ekki til að samþykkja þessa breytingu nú, en ella, ef engar skýringar er að fá, að þeir þá styðji þessa fram komnu brtt.