10.05.1976
Efri deild: 101. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3894 í B-deild Alþingistíðinda. (3206)
238. mál, ferðamál
Halldór Ásgrímsson:
Herra forseti. Hv. 5. þm. Norðurl. v. hefur rætt hér allmikið um brtt. sem hann hefur borið fram og óskað eftir skýringum frá nm. hvers vegna hún hafi ekki verið tekin upp. Hann vitnaði í það að hún hafi verið samþ. hér fyrir nokkrum árum.
Það er nú ekki svo að n. hafi alls ekki fjallað um þetta mál. Það hefur komið hér fram að í þessari brtt. er fyrst og fremst talað um heimildir, sem sagt telji Ferðamálaráð heimavistarbyggingu í þágu skóla, sem ríkissjóður kostar að einhverju leyti, henta til starfrækslu sumargistihúss, geti það farið fram á o.s.frv. Það hefur verið upplýst hér bæði af menntmrh. og af hv. þm. Albert Guðmundssyni, sem á sæti í Ferðamálaráði, að mjög góð samvinna er á milli þessara aðila. Þá er um það að ræða að hafa eitthvert fé til þessara hluta. Hitt er svo annað mál, að það er náttúrlega fyrst og fremst um það að ræða, þegar heimavist er byggð, að hún sé notuð sem heimavist og henti fyrst og fremst til þess. Það er jafnframt mjög æskilegt að það sé hægt að nýta þessa sömu heimavist yfir sumartímann, en það hlýtur þó að verða að hafa það í huga að sem heimavist á hún fyrst og fremst að notast. En ég tel að n. hafi tekið mjög jákvæða afstöðu til þessara mála almennt, þ.e.a.s. uppbyggingaraðstöðu hér innanlands, því við 8. gr. var gerð sú brtt. að það sé heimilt að veita einka- og opinberum aðilum styrki til að koma upp eða endurbæta aðstöðu fyrir ferðamenn á stöðum sem fjölsóttir eru, og einnig að það sé heimilt að veita styrki til mála samkv. 24. gr., þ.e.a.s. sjóðnum er heimilt samkvæmt 24. gr. að veita einka- og opinberum aðilum lán til framkvæmda við gisti- og veitingastaði gegn fullnægjandi tryggingum. Sjóðnum er einnig heimilt að veita einka- og opinberum aðilum gegn fullnægjandi tryggingum lán til annarra þátta ferðamála en í 1. lið greinir, svo framarlega sem með lánveitingunni er stuðlað að þróun íslenskra ferðamála. En samkvæmt brtt. n. við 8. gr. er einnig heimilt að veita styrki til þessa. Ég tel því að þetta hafi verið meðhöndlað mjög jákvætt í n. Það hefur einnig komið fram hjá hv. þm. Albert Guðmundssyni að Ferðamálasjóður fær mjög aukið fjármagn til umráða, og þess vegna tel ég mjög varasamt að binda þess konar lánveitingu við 20 millj. kr. árlega. Við vitum að það má vera að sú upphæð úreldist og sé alls ekki nægileg í einhverjum tilfellum. Ég sé ekki betur en það sé fyllilega séð fyrir þessu í frv., sérstaklega með tilliti til þeirrar staðreyndar að hér hefur tekist mjög góð samvinna á milli aðila, og því sé ég enga ástæðu til að samþykkja þessa brtt.