10.05.1976
Neðri deild: 103. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3896 í B-deild Alþingistíðinda. (3210)
154. mál, sálfræðingar
Ellert B. Schram:
Virðulegi forseti. Við 2. umr. þessa máls leyfði ég mér að bera fram brtt. við 1. gr. frv. Sú brtt. er á þskj. 675. Brtt. er fram borin vegna þess að orðalag 7. gr. í frv. er á þá leið að leyfi menntmrn. þurfi til að koma til þess að sálfræðingar megi kalla sig sálfræðinga. Þetta hefur mér fundist óaðgengilegt og óeðlilegt þar sem ég tel að eftir að menn hafi öðlast starfsheiti eftir nám og próf í viðurkenndum stofnunum, þá geti rn. ekki tekið aftur af mönnum þessi starfsheiti, þessar lærdómsgráður. Því er það mín skoðun að rétt sé að breyta orðalagi þessarar gr. þannig að rn. geti veitt leyfi til þess að menn öðlist starfsréttindi sem sálfræðingar, enda hefur það verið upplýst að til þess sé stofnað að rn. veiti starfsréttindin.
Nú urðu nokkrar umr. um þetta mál og þessa till. við 2. umr., og ég tel að út af fyrir sig hafi þær umr. varpað nokkru ljósi á hugsunina bak við þetta orðalag sem í frv. er og að fyrir liggi hvernig túlka beri ákvæðið, hvernig það sé skilgreint, og jafnframt hafa komið fram mínar aths. Tel ég það vera út af fyrir sig, eins og fyrr segir, nokkurs virði að þetta hafi skýrst í umr. Menntmrh. lýsti því yfir við 2. umr. að hann gæti ekki tekið tillit til þessara aths. minna, og fram hefur komið í menntmn. Nd. að hún getur ekki fallist á brtt. Það er því sýnt hver örlög till. verða, og ég mun því draga hana til baka. En ég vil aðeins ítreka þá afstöðu mína, að mér finnst almennt séð fráleitt að rn. geti eða eigi að hafa vald til að ákveða hvort menn hafi leyfi til að bera þau starfsheiti og þá lærdómstitla sem þeir hafa öðlast með námi og prófi frá viðurkenndum menntastofnunum. Þetta gerir frv. óneitanlega eins og frá því er gengið af hálfu flytjanda, og því get ég ekki samþ. þessa gr. a.m.k., en mun láta við það sitja.