10.05.1976
Neðri deild: 104. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3932 í B-deild Alþingistíðinda. (3236)
252. mál, tollheimta og tolleftirlit
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Virðulegi forseti. Frv. á þskj. 662 er komið frá Ed. í þessu frv. eru gerðar till. til breyt. á l. um tollheimtu og tolleftirlit. Megintilgangurinn með þeim breytingum, sem hér eru lagðar til, er að ákvæði IX. kafla l. um tollheimtu og tolleftirlit, sem lúta að refsingu og öðrum viðurlögum vegna ólögmæts innflutnings á vörum til landsins, verði breytt. Það skal hins vegar tekið fram að í breytingum þessum felast engin nýmæli, en ef frv. nær fram að ganga munu ákvæði þess verða tollgæslunni til styrktar og veita einstökum ákvæðum laganna meiri virkni en nú er.
Í 2. mgr. 61. gr. núgildandi laga um tollheimtu og tolleftirlit er svo hljóðandi ákvæði, með leyfi hæstv. forseta: „Sömu refsingu skal sá sæta sem selur eða afhendir vörur, enda viti hann eða megi vita að þær séu ólöglega innfluttar.“ Með 1. gr. þessa frv. er lagt til að orðalagi þessarar mgr. verði breytt þannig að viðtaka á ólöglega innfluttum vörum, hvort sem hún er gegn endurgjaldi eða ekki, verði ótvírætt gerð að sjálfstæðu broti. Með breytingu í þá átt verður eigi lengur dregin í efa heimild í lögum til refsingar fyrir það atferli að kaupa eða veita viðtöku án endurgjalds ólöglega innfluttum vörum sem viðtakandi veit eða mátti vita að þannig eru til komnar.
Breytingar, sem lagt er til að gerðar verði á 2. mgr. 71. gr. núgildandi laga, eiga fyrst og fremst rætur að rekja til verðlagsbreytinga og neikvæðra áhrifa þeirra á þau markmið sem stefnt er að. Þar er lagt til að hámarksfjárhæð sekta verði 4 millj. kr.
Þá eru gerðar brtt. á 2. mgr. 76. gr. sem varða enn fremur sektarákvæði.
Ég sé ekki ástæðu til, virðulegi forseti, að fjölyrða um frv., en legg til að því verði vísað til hv. fjh: og viðskn. að lokinni þessari umr. og til 2. umr.