10.05.1976
Neðri deild: 104. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3934 í B-deild Alþingistíðinda. (3241)
271. mál, Happdrætti Háskóla Íslands
Frsm. (Ellert B. Schram):
Virðulegi forseti. Hv. allshn. hefur skoðað þetta frv. svo og önnur tvö frv. sem eru eins og varða önnur happdrætti, en frv. fela öll í sér sams konar breytingu á viðkomandi lögum, þ.e.a.s. að taka tölvu í notkun happdrættanna þegar vinningar eru dregnir út og skipuð sé n. af hálfu rn. til eftirlits með þeirri framkvæmd. N. varð sammála um að mæla með samþykkt þessa frv. og hinna tveggja, en hv. þm. Svava Jakobsdóttir áskildi sér rétt til að flytja eða fylgja brtt.