10.05.1976
Neðri deild: 104. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3968 í B-deild Alþingistíðinda. (3274)

115. mál, íslensk stafsetning

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Aðeins örfá orð. — Út af ummælum, sem hér hafa fallið, vil ég undirstrika það að ég hef að sjálfsögðu engan áhuga á því að setja fót fyrir að meiri hl. Alþ. komi fram vilja sínum, eins og einhver orðaði hér, þvert á móti. Þetta er auðvitað alveg ópólitískt mál, og setjum svo að Alþ. samþykki það frv. sem hér er til umr. og setji lög, þá að sjálfsögðu verður þeim framfylgt. En hitt er svo annað mál, og því aðeins lagði ég fram það frv. sem ég hef hér flutt, að ég tel það skynsamlegri leið að meðhöndla málið á þann hátt, sem það frv. gerir ráð fyrir, heldur en á þennan hátt, að Alþ. sjálft setji stafsetningarreglurnar.

Mér þykir rétt að láta það koma fram hér að ég var andvígur þeim breytingum sem gerðar voru á íslenskri stafsetningu 1973 og 1974, a.m.k. í mjög veigamiklum atriðum. Vegna mikillar íhaldssemi að þessu leyti taldi ég rangt að gera nokkrar breytingar á stafsetningunni þá. Ég var þó mismunandi mikið andvígur hinum einstöku atriðum. Og ég get alveg sagt það að ég græt með glotti þó að horfið yrði frá þessum breytingum í veigamiklum atriðum. En hins vegar var ég ákaflega veikur fyrir röksemdum hv. þm. Gils Guðmundssonar þegar hann gerði grein fyrir atkv. sínu við meðferð þáltill. í Sþ. 1974. Hann benti á að allir menn gætu lifað án botnlanga. Það vefðist fyrir mönnum eigi að síður hvenær skyldi taka hann, en engum dytti í hug að græða hann í aftur eftir að hann hefði verið numinn brott. Ég tel þessar ábendingar pottþéttar nánast, og ég mundi telja það miður farið að taka á ný til við það að rita z. En ég verð að segja það, að ég gæti þó fremur fellt mig við það ef notkun hennar væri takmörkuð t.d. við stofn orða, orða af útlendum uppruna o.s.frv.

Af þessu, sem ég nú síðast hef sagt, leiðir það að sjálfsögðu að ef mitt frv. yrði samþ., þá mundi ég beita mér fyrir því að stafsetningin yrði tekin til athugunar.

Sem sagt, varðandi afgreiðslu þessara tveggja frv. um íslenska stafsetningu sem nú liggja fyrir þessari hv. d., þá vil ég bara segja þetta, án þess að fara út í nokkurn málfræðilegan rökstuðning eða tefja þessa umr. svo sem nokkuð: Í fyrsta lagi það, að ég er andvígur því að Alþingi setji reglur um íslenska stafsetningu í einstökum atriðum. Ég hef fært — og fleiri raunar, og seinast hér hafa menn fært fram sín rök fyrir þessari skoðun, og ég skal ekki fara út í að endurtaka það. En hins vegar tel ég eðlilegt að Alþ.- setji nú, þótt það hafi ekki áður verið gert, löggjöf um meðferð stafsetningarmálanna, sbr. það frv. mitt sem hér liggur fyrir, þótt það hafi ekki verið afgreitt úr nefnd.

Ég stakk upp á því í vetur að þingflokkarnir tilnefndu menn, einn frá hverjum, til þess að ræða þetta mál og athuga hvort menn gætu ekki fundið sameiginlega niðurstöðu. Við héldum einn fund, og þótt það færi vel á með mönnum, þá var það mitt mat eftir þann fund að það væri ljóst að sumir og þá fyrst og fremst stuðningsmenn og flm. þessa frv., sem hér er til umr., væru ekki til viðtals um afgreiðslu á frv. mínu fyrr en gengið hefði verið til úrslita um það frv. sem hér er til umræðu. Af þessu leiddi svo það að ég beitti mér ekki fyrir fleiri viðræðufundum með þessari nefnd.

Ég vil aðeins rifja það upp, sem öllum hv. dm. er ljóst, að till. mín í þessu máli felast í því frv. sem ég hef flutt og eru í stuttu máli þessar: Að um breytingar á íslenskri stafsetningu sé í fyrsta lagi fjallað af málvísindamönnum og kennurum, það er auðvitað allt til skoðunar hvernig þau ákvæði endanlega yrðu í löggjöf. Í öðru lagi kæmi málið síðan fyrir menntmrn. og svo menntmrh. sem svo í þriðja lagi yrði að leita heimildar Alþingis fyrir hverri breytingu sem gera skyldi. Í mínum huga eru tvenn rök einkum fyrir þessu síðast nefnda: Annars vegar íhaldssemi mín í þessum efnum. Ég álít að við eigum að vera afar íhaldssamir um breytingar á okkar stafsetningu og breyta henni ekki nema að mjög vel athuguðu máli og eftir nokkuð almenna umr. um málið. En það einmitt tryggir að slík umr. fari fram, að sett eru skilyrði um að málið sé gert að þingmáli, lagt fyrir Alþ. áður en af breytingum verður.

Ég skal svo ekki fjölyrða frekar um þetta við þessa umr. Mín till. er einfaldlega sú og mín ósk í þessu máli að frv. mitt verði afgreitt, e.t.v. með breytingum. Það er mér t.d. ekkert fast í hendi þó að menn kynnu að breyta þar ýmsum atriðum, eins og ég t.d. drap á áðan varðandi nefndarskipunina. Og ég get sagt það, að bæði vegna hinnar miklu óánægju, sem virðist vera með breytingarnar frá 1975 og 1974, og svo einnig vegna eigin skoðana minna á þeim breytingum, þá mundi ég taka málið upp og beita mér fyrir því, að það yrði unnið efnislega á næstu mánuðum, og stefna að því að breytingar eða niðurstöður af þeirri vinnu yrðu lagðar fyrir næsta Alþingi. Þannig mundi ég haga mínum aðgerðum ef mitt frv. næði hér fram að ganga.