11.05.1976
Efri deild: 102. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 3988 í B-deild Alþingistíðinda. (3286)

239. mál, Orkubú Vestfjarða

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að leggja hér fram skriflega þrjár brtt. sem ekki eru efnisbreytingar, en við nánari athugun þykir rétt að víkja þar nokkuð til orðalagi.

1. brtt. er við 5. gr. frv., en þar er rætt um það að Rafmagnsveitur ríkisins og ríkissjóður svo og orkuveitur sveitarfélaga á Vestfjörðum skuli afhenda Orkubúi Vestfjarða til eignar sem stofnframlög mannvirki sem eru á Vestfjörðum í raforkuverum, rafstöðvum, kyndistöðvum og jarðvarmavirkjunum ásamt tilheyrandi flutnings- og dreifikerfi, síðan segir: „enda yfirtaki fyrirtækið skuldir sem svarar til stofnkostnaðar af mannvirkjum þeim sem það tekur við.“ Það hefur komið í ljós að hugsanlegt er að nokkuð ólíkur skilningur kynni að verða lagður í orðið stofnkostnaður, hvort ætti að miða við upphaflegan stofnkostnað eða við núgildi eða eitthvað annað, og til að taka þarna af tvímæli vil ég leggja til að niðurlag þessarar gr. hljóði svo: „enda yfirtaki fyrirtækið samkvæmt samkomulagi skuldir vegna mannvirkja þeirra, sem það tekur við.“ Þá er ljóst að um þetta verður að semja milli aðila. Félli þá niður orðið „stofnkostnaður“, en yrði miðað við samkomulag aðila.

2. brtt. er varðandi 12. gr. Þar er ríkisstj. heimilað að takast á hendur sjálfskuldarábyrgð á lánum sem Orkubú Vestfjarða tekur til orkuframkvæmda. Hámarksupphæð er ekki ákveðin í frvgr., en miðað við það sem algengast er um heimildir til ríkisábyrgðar. Þykir réttara að setja hér hámark, og legg ég því til að á eftir orðunum „orkuframkvæmda“ komi: „að fjárhæð allt að 2500 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt.“ Í grg. frv. kemur það fram að á næsta áratug er gert ráð fyrir allmiklum orkuframkvæmdum á Vestfjörðum og mun vera þar nefnd talan 5 milljarðar. Þegar af stofnun Orkubúsins hefur orðið og farið er að ráðast í framkvæmdir og ef þarf á hærri ríkisábyrgð að halda en hér er tilgreint, þá kemur málið að sjálfsögðu aftur fyrir Alþ.

Þá er varðandi 15. gr. orðalagsbreyting sem er afleiðing af breytingu á 1. gr. Það var samþ. við 2. umr. að í stað þess að ríkissjóður Íslands og sveitarfélög skuli setja á stofn orkufyrirtæki, þá sé þeim það heimilt, og í samræmi við það þykir réttara að orða upphaf 15. gr. þannig, að þegar eftir gildistöku laga þessara skuli iðnrh. beita sér fyrir því að sameignarsamningur sé gerður.

Ég vænti þess að um þessar brtt. þurfi ekki að verða ágreiningur. Þær eru fyrst og fremst til leiðréttingar og skýringar.

Hv. 5. þm. Norðurl. v. hefur borið fram brtt. á þskj. 708. Það er ákvæði til bráðabirgða og segir þar að stefnt skuli að því „að endurskipuleggja skipan raforkumála á landinu öllu með það fyrir augum að allir landshlutar tengist saman í eitt orkuveitusvæði“ og svo nánar eins og till. greinir.

Það er rétt að taka fram út af þessari brtt. að skipulag orkumála er hjá okkur mjög á aðra lund en vera þyrfti. Við höfum hér á Suðvesturlandi Landsvirkjun sem er sameignarfyrirtæki ríkis og Reykjavíkurborgar og hefur það verkefni að sjá þessum landshluta fyrir orku. Þetta fyrirtæki hefur starfað á mjög myndarlegan hátt og af mikilli fyrirhyggju, þannig að nú þegar Sigölduvirkjun er langt komin hefur fyrirtækið tilbúna áætlaða og hannaða næstu virkjun, Hrauneyjarfoss. Annars staðar á landinu er þessu á annan veg farið. Nú er að vísu stefnt að því með þessu frv. að koma á föstu skipulagi á orkumál Vestfjarða. Ef litið er t.d. á Norðurland, þá er þar Laxárvirkjun sem hefur sitt veitusvæði. En starfsemi og fyrirætlanir Laxárvirkjunar hafa oftar en einu sinni verið hindraðar og henni hefur ekki tekist að sinna því hlutverki vegna ýmissa erfiðleika, eins og kunnugt er. Bæði hafa fyrirætlanir Laxárvirkjunar í sambandi við frekari virkjanir í Laxá ekki náð fram að ganga og ekki heldur umsóknir og fyrirætlanir hennar um gufuveitu á sínum tíma í Bjarnarflagi eða stækkun þeirrar veitu. Sérstök n. starfar nú að því að gera till. um Norðurlandsvirkjun og vænti ég till. hennar nú alveg á næstunni. N. var skipuð fyrir nokkru fyrir Austurland. Hún hefur sent frá sér till., a.m.k. bráðabirgðatillögur, um skipulag þeirra mála.

Varðandi orkumálin í heild vil ég taka það fram, að nú í rúmt ár hafa sérfræðingar unnið að allsherjarúttekt á orkumálum eða orkubúskap íslendinga og hefur verið lögð í það mikil vinna. Varðandi heildarskipulagið er í ráði að setja á næstunni n. á laggirnar til þess að kanna þau mál og gera till. um þau, og er ætlunin að sú n, geti starfað í sumar og haust þannig að till. frá henni gætu legið fyrir næsta þingi.

Ég tel ekki æskilegt að till. eins og sú, sem liggur fyrir á þskj. 708, verði samþ. nú og sett inn í þetta frv., en vildi skýra frá þessu sem ég nú hef greint og legg til við hv. d. að hún samþ. ekki till. á þskj. 708.