11.05.1976
Efri deild: 102. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4001 í B-deild Alþingistíðinda. (3301)
177. mál, námslán og námsstyrkir
Frsm. meiri hl. (Axel Jónsson):
Herra forseti. Ég ætla aðeins að greina hér frá brtt. sem ég hef flutt á þskj. 730. Fallið hafði niður úr brtt. 3, við 12. gr., en upphaf hennar er þannig: „Stjórn Lánasjóðsins er heimilt að veita aðstöðujöfnunarstyrki til námsmanna sem verða að kosta sig fjarri eigin heimill sínu vegna náms sem er aðstoðarhæft samkv. 1. gr.“ Brtt. er um að í stað „samkv. 1. gr.“ komi: samkv. 1. og 2. gr. — Þetta skýrir sig sjálft, en eins og ég sagði áður, herra forseti, þá hefur þetta fallið niður og leiðréttist hér með.
Ég skal svo ekki vekja upp frekari umr. á þessu stigi um málið og læt máli mínu lokið.