11.05.1976
Neðri deild: 106. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4003 í B-deild Alþingistíðinda. (3314)
115. mál, íslensk stafsetning
Ingvar Gíslason:
Það er að vísu óvenjulegt að greidd séu atkv. á þennan hátt um það hvort mál megi koma fyrir með afbrigðum. En ég tel það ekki óeðlilegt, þó að beðið hafi verið sérstaklega um þetta af þeim hv. þm. sem stakk upp á því að þessi atkvgr. yrði viðhöfð, vegna þess að hann hafði beðið hæstv. forseta alveg sérstaklega um að þetta mál yrði ekki tekið fyrir núna, og það er óvenjulegt, satt að segja, að forseti verði ekki við slíkum hógværum beiðnum. Ég skal ekki ræða þetta frekar efnislega, en af því, sem ég hef sagt, er ljóst að ég segi nei.