11.05.1976
Neðri deild: 106. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4005 í B-deild Alþingistíðinda. (3319)

7. mál, almenningsbókasöfn

Magnús T. Ólafsson; Herra forseti. Annað hvort hef ég hagað orðum mínum eitthvað óskýrt á fundinum í gærkvöld eða þau hafa ekki borist rétt til eyrna hv. 5. þm. Reykn., því ég tók ekki bréf stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga því til sönnunar að andstaða væri af hálfu sambandsins og það væri að lýsa þar óánægju sinni með yfirfærslu fjármögnunar almenningsbókasafna frá ríki að hluta til sveitarfélaganna einvörðungu. Ég var aðeins að vitna í þetta bréf til að sýna fram á hve þessi yfirfærsla hefði verið slælega undirbúin, hvað hún hefði verið fljótráðin og hvað henni hefðu fylgt mikil vandkvæði a.m.k. hvað þetta verkefni snertir, því að brtt. hæstv. menntmrh. við frv., sem hann bar fram fyrr á þinginu, var einmitt til komin vegna þessarar verkefnaskiptingar. Þegar bæði þessi brtt. og hið upphaflega frv. liggja fyrir, þá lætur stjórn sambands ísl. sveitarfélaga til sín heyra og hvetur til þess, vegna þess hvernig málið sé komið, að málið í heild sé tekið til endurskoðunar, Það fer ekki á milli mála að þetta atriði hefur orðið mjög erfitt viðfangs og krafist mikillar vinnu bæði af menntmn.-mönnum og einnig hafa þar komið við sögu menn úr hópi sveitarstjórnarmanna. Ég mótmæli því að ég hafi rangtúlkað þetta bréf, og ég held fast við það að efni þess styrki okkar mál sem teljum og töldum að þessi tilfærsla hafi verið svo slælega undirbúin að hún hafi haft í för með sér vandkvæði og erfiðleika sem ég tel að alls ekki sé bitið úr nálinni með með þeim brtt., sem meiri hl. menntmn. bar nú fram. Þess vegna hefði verið heppilegast allra hluta vegna að hverfa aftur að upphaflegri gerð frv., eins og við í minni hl. lögðum til.