12.11.1975
Efri deild: 14. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í B-deild Alþingistíðinda. (333)
53. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Í lögum um Húsnæðismálastofnun ríkisins frá 1970 eru ákvæði um skyldusparnað. Þar eru heimildir til þess að fá það sparifé, sem þannig er lagt inn, endurgreitt ef vissum skilyrðum er fullnægt. Þau skilyrði eru að maður sé 26 ára gamall, hann stofni til hjúskapar eða hann áætli að kaupa sér íbúð. Hins vegar er engin undanþáguheimild frá þessum ströngu ákvæðum.
Nú hefur komið í ljós, að atvik geta legið þannig fyrir að fullkomin sanngirni mæli með því að heimila undanþágu í fleiri tilvikum. Nokkrar slíkar beiðnir hafa borist félmrn. og virðist því rn. nauðsynlegt að fá hér nokkra undanþáguheimild. Þess eru dæmi að fólk vegna örorku í sambandi við nám og af öðrum ástæðum hafi fært fram þau rök sem rn. telur fullgild. Eitt af nýjustu dæmunum má nefna: Kona, sem er öryrki, ekki orðin 26 ára, ætlar ekki að kaupa sér íbúð eða stofna heimili, hefur fengið vinnu, en kemst ekki til vinnu án þess að eignast bifreið sem hún getur ekki eignast nema með því að fá sparifé sitt endurgreitt. Þess vegna er farið fram á með þessu frv. að félmrn. sé heimilað að veita leyfi til endurgreiðslu sparifjár ef högum umsækjanda er þannig háttað að brýna nauðsyn ber til að leyfa endurgreiðslu.
Ég vil taka fram að í því felst auðvitað mikill vandi — og það er félmrn. ljóst — að fá slíka undanþáguheimild í hendur. Hins vegar virðast okkur sum þau dæmin, þar sem beðið er um endurgreiðslu, vera þess eðlis að heilsufarsleg eða félagsleg nauðsyn knýi á svo að ekki sé stætt á því að neita. Þó að þessi heimild yrði veitt þarf auðvitað að setja um hana strangar reglur. En ég vænti þess að hv. deild fallist á að samþykkja þetta frv., og legg til að því sé vísað til 2. umr. og félmn.