11.05.1976
Sameinað þing: 89. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4018 í B-deild Alþingistíðinda. (3335)
317. mál, framkvæmd vegáætlunar 1975
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 464 er skýrsla samgrh, um framkvæmd vegáætlunar 1975. Þessi skýrsla var lögð fram hér á hv. Alþ. 30. mars s.l. og mun ég nú gera grein fyrir henni.
Frá vegamálum á s.l. ári er í stuttu máli þetta að segja: Markaðar tekjur Vegasjóðs voru í vegáætluninni áætlaðar 2 425 millj., en urðu í raun 2111 millj. eða 314 millj. kr. undir áætlun, þ.e. 12,9%. Í þáltill., sem lögð var fram í fyrravor, voru markaðar tekjur áætlaðar 2 250 millj. Sú tekjuáætlun var í meðförum þingsins hækkuð um 175 millj. kr. Þeirri hækkun var skipt af handahófi með um 100 millj. af bensínskatti og 75 millj. af þungaskatti. Miðað við hina upphaflegu áætlun urðu markaðar tekjur í raun 139 millj. kr. undir áætlun eða 6.2%. Skiptist lækkunin þannig: Bensin var 102 millj. kr. undir áætlun eða 5.8%, þungaskattur 3 millj. eða 0.7%, gúmmígjald 34 millj. eða 35.4%. Bensínsalan á árinu, nóv. 1974 til okt. 1975, var 103.6 millj. lítrar eða 0.8 millj. lítrum minna en á árinu 1974, þrátt fyrir mikla fjölgun bifreiða á árinu 1975. Meðaleyðslan á hverja bifreið var á árinu 1975 1610 lítrar eða 7.2% minni en á árinu 1974 og 10.8% minni en meðaleyðsla á hverja bensínbifreið undanfarandi 10 ár. Má til fróðleiks geta þess að á árunum 19601970 var meðaleyðsla á hverja bensínbifreið 1887 lítrar, en á árunum 1971–1975 1720 lítrar. Þessi þróun stafar af því að bensínknúðar vörubifreiðar eru að hverfa og einnig bensínfrekar fólksbifreiðar, því að hið háa bensínverð hefur aðeins haft áhrif á söluna undanfarandi tvö ár. Tekjur af gúmmígjaldi urðu 34 millj. kr. minni en áætlað var eða 35.4%. Var innflutningur á hjólbörðum tæp 60% af því sem verið hafði árið 1974 og mun minna en undanfarandi 5 ár. Vafalaust hefur efnahagsástand veruleg áhrif á sölu hjólbarða.
Útgjöld á vegáætlun urðu 191 millj. kr. hærri en áætlað var eða 5.1%. Af þessari útgjaldaaukningu voru 133 millj. kr. vegna vetrarviðhalds. Ríkissjóður mun taka á sig 175 millj. kr. af halla á mörkuðum tekjum og verður því hallinn á vegáætluninni 330 millj. kr.
Til þess að mæta að nokkru þeim greiðsluerfiðleikum, sem af greiðsluhallanum leiddi, varð að hluta að fresta framkvæmdum fyrir um 61 millj. kr., en það var við Hafnarfjarðarveg í Kópavogi, Norðurlandsveg við Blönduós, Sauðárkróksbraut um Hegranes og frágangsvinnu á Skeiðarársandi. Þessar framkvæmdir voru valdar með tilliti til þess að engri þeirra átti að ljúka á árinu og þær höfðu allar fjárveitingar á árinu 1976. Á því fresturinn ekki að valda neinni seinkun á því svo að þeim verði lokið á réttum tíma.
Áætlunin um nýjar framkvæmdir í vega- og brúargerð var í vegáætluninni miðuð við verðlag í júní á s.l. ári. Hækkanir á því verðlagi fram í ágúst urðu 7–9%. Þessari verðhækkun varðandi vegagerð var mætt með því að draga úr einstökum framkvæmdum sem verðhækkuninni nam. Hins vegar verður þeirri aðferð eigi beitt við brúargerð og fóru því útgjöld á þeim lið 22 millj. kr. fram úr áætlun, enda voru byggðar allar þær brýr sem gert var ráð fyrir í vegáætlun.
Fjárveiting til vegaviðhaldsins var miðuð við verðlag í jan. 1975, en frá þeim tíma og til ágúst varð 33.2% hækkun á vísitölu viðhaldskostnaðar og var dregið úr framkvæmdum við sumarviðhald sem þessum verðhækkunum nam. Hafði það að sjálfsögðu miður heppileg áhrif á viðhald veganna, eins og vikið verður að hér á eftir.
Í vegáætlun s.l. ár var í fyrsta skipti, síðan gerð vegáætlunar hófst árið 1964, byrjað á því að skipta fjárveitingu til viðhalds þjóðvega í sumarviðhald annars vegar og vetrarviðhald hinsvegar. Var þetta gert af þeim sökum að kostnaður við vetrarviðhaldið var ákaflega breytilegur frá ári til árs eftir veðurfari. Voru því fjárframlög til almenns viðhalds vegakerfisins, sem nú hefur verið nefnt sumarviðhald, háð því hvort snjóalög voru mikil eða lítil. Í grg. með till. til þál. um vegáætlun fyrir árin 1974–1977 var fjárveiting til vetrarviðhalds ákveðin 194.7 millj. kr. á árinu 1975 og við það miðað að gildandi snjómokstursreglur frá 1967 yrðu endurskoðaðar og endurskoðunin kæmi til framkvæmda á s.l. hausti. Sökum óvenjulegra snjóþyngsla veturinn 1974–1975 var kostnaður við vetrarviðhald á miðju s.l. ári orðinn 50 millj. kr. meiri en allri fjárveitingu til vetrarviðhalds nam. Var af þeim sökum eigi talið gerlegt að breyta framkvæmd á snjómokstursreglum á s.l. hausti eins og gert hafði verið ráð fyrir í vegáætlun. Geta má þess, að dýrasti fjallvegurinn í vetrarviðhaldi reiknað á km var Oddsskarð með 386 þús. kr. Næst kemur Ólafsfjarðarmúli með 300 þús. á km og þar eftir Fjarðarheiði með 292 þús. kr. Kostnaður við mokstur á Öxnadalsheiði og Hellisheiði á Suðurlandi var 240 þús. kr. á km. Á þeirri fyrrnefndu var vegi haldið opnum tvisvar í viku, en á þeirri síðarnefndu dag hvern. Gefur það nokkra hugmynd um hver kostnaðarauki er samfara aukinni þjónustu við umferðina.
Þá er í skýrslunni tafla um þungatakmarkanir á vegum vegna aurbleytu. Kemur þar fram að á mörgum fjölförnum vegum og í heilum héruðum varð að takmarka öxulþunga við 5–7 tonn í mánuð eða meira á tímabilinu frá miðjum apríl og fram undir maílok. Sýnir þetta ljóslega hve veikburða mikill hluti vegakerfisins er og hvað aðkallandi er að styrkja og endurbyggja marga gömlu vegina sem byggðir voru fyrir aðra umferð en á þeim er í dag.
Til viðhalds malarveganna voru malaðir og harpaðir um 358.9 rúmmetrar af efni í slitlag, þ.e. 30% minna en árið 1974. Kemur þar m.a. fram sá samdráttur sem gera varð í vegaviðhaldi vegna verðhækkana sem getið var hér að framan.
Framkvæmdir við gerð nýrra vega og brúa: Fjárveiting til nýrra vega í áætluninni var alls 1866 millj. kr. og til nýrra brúa 151 millj. kr. eða samtals 2017 millj. kr. Nam því fjárveitingin til nýrra framkvæmda um 54% af öllum útgjöldum í vegáætlun. Ef tekið er tillit til frestunar nýrra framkvæmda og umframgreiðslna á vegáætlun verða nýjar framkvæmdir samt rétt um 50% af öllum útgjöldum á vegáætlun.
Til hraðbrauta var alls varið 890 millj. Stærstu framkvæmdirnar voru við Suðurlandsveg í Flóa, og var þar 14 km kafli með bundnu slitlagi opnaður til umferðar austan við Selfoss á s.l. hausti. Þá var tekin í notkun 7 km nýr vegur til Þorlákshafnar í beinu framhaldi af Þrengslavegi, og er lega hans við það miðuð að eðlilegt framhald fáist um Hafnarskeið og brú á Ölfusá hjá Óseyrarnesi. Þar sem nokkur blaðaskrif hafa orðið um þennan veg og heimamenn hafa óspart látið í ljós óánægju sína og vonbrigði yfir því hve holóttur hann hefur verið í rigningartíð, þykir rétt að skýra það mál örlítið nánar.
Vegurinn er í hraðbrautarflokki og byggður fyrir það að á hann verði lagt bundið slitlag, 6.5 m á breidd og með 1 m bekkjum beggja vegna, eða alls 8.5 m á breidd er vegyfirborðið. Þar sem ekki var fé fyrir hendi til þess að leggja bundið slitlag á veginn í fyrrasumar, en það hefði verið æskilegasta lausnin, varð að setja á hann malarslitlag, mala hraun í slitlagið og bæta í það nokkrum leir til þess að binda það. Voru gerðar tilraunir með heppileg hlutföll milli hrauns og leirs áður en framkvæmdir hófust við gerð slitlagsins. Við vinnslu hraunsins muldist það meira niður en gert hafði verið ráð fyrir og var því fullmikið af fínu efni í veginum. Hér við bætist sú staðreynd að mjög erfitt er að halda svo breiðum malarvegi sem hér er um að ræða nægilega kúftum til þess að hann steypi af sér vatni. Þetta tvennt gerði að vatn sat á veginum og holur mynduðust skjótt undan mikilli umferð í rigningatíð eins og á öllum malarvegum. Nú hefur verið hætt bindiefnasnauðu slitlagsefni í veginn og hann heflaður nokkuð og standa vonir til þess að hann verði þokkalegur til umferðar. Góður verður þessi vegur þó eigi fyrr en bundið slitlag hefur verið lagt á hann.
Reynslan af þessari vegagerð og raunar einnig á nokkrum stöðum á Norðurlandsvegi þar sem vegir hafa verið byggðir í fullri breidd undir slitlag með bekkjum, en slitlagið ekki lagt, leiðir í ljós að malarvegum með þeirri breidd er nær ógerningur að halda sæmilega við í mikilli umferð sökum þess að þeir eru of breiðir til þess að vatnið geti runnið af þeim með eðlilegum hætti.
Af öðrum hraðbrautarframkvæmdum má nefna að lokið var við að undirbyggja tæpa 6 km á veginum milli Keflavikur og Garðs og er áætlun að slitlag verði sett á þann vegarkafla í ár. Framkvæmdum var haldið áfram við Hafnarfjarðarveg í Kópavogi og fer nú að hilla undir að þeim framkvæmdum verði lokið í samræmi við samkomulag við Kópavogskaupstað, en mikið verkefni er enn eftir sunnan Kópavogs. Meðalumferð á dag var á s.l. ári um 17 þús. bílar á þessum vegi, sem er langt umfram það sem vegur með einni akrein í hvora átt getur annað með góðu móti.
Á Vesturlandsvegi var byggð brú yfir Kiðafellsá og standa vonir til þess að hún verði tengd á þessu ári. Og lokið var framkvæmdum við Brynjudalsvog inn á Múlanes.
Unnið er að því að koma upp nauðsynlegum vinnubúðum og ýmiss konar aðstöðu til brúargerðar yfir Borgarfjörð og eru nú fyrstu mannvirkin að risa úti í firðinum.
Við Ísafjörð var lokið malbikun vegarins milli Ísafjarðar og Hnífsdals og byrjað á byggingu hraðbrautar innan við kaupstaðinn.
Á Norðurlandsvegi var unnið að undirbyggingu hraðbrautarkafla beggja vegna við Blönduós sem áformað er að lagt verði á bundið slitlag á yfirstandandi ári. Vegna greiðsluerfiðleika Vegasjóðs var þó framkvæmdum þar frestað fyrir 19 millj. Það á þó ekki að tefja það að verkinu verði lokið í ár, eins og til stóð.
Á Norðurlandsvegi norðan Akureyrar var lokið malbikun á 3.6 km löngum kafla og undirbyggður nokkur kafli til viðbótar.
Um þjóðbrautir og landsbrautir ásamt landshlutaáætlununum er þetta að segja: Fjárveiting til þessara vegaflokka var samtals 976 millj. kr. Þessu fé var varið til þess að framkvæma eins og til stóð og nánar greinir í skýrslunni um framkvæmd vegáætlunar 1975, að undanskildum 10 millj. kr. sem frestað var framkvæmdum við Sauðárkróksbraut um Hegranes vegna greiðsluerfiðleika Vegasjóðs, eins og áður hefur verið greint frá. Þessar framkvæmdir eru of margar og dreifðar til þess að þær verði allar upp taldar. En stærstu framkvæmdir og um leið þeirra merkust var við Djúpveg, en á árinu var varið til Djúpvegar 80 millj. kr. og var lokið undirbyggingu 27 km kafla um Hestfjörð. Var Djúpvegur opnaður fyrir umferð í byrjun okt. þó að mörg verkefni séu þar enn ófullgerð, m.a. er eftir að setja slitlag á mikinn hluta hins nýja vegar. Með þessari framkvæmd er komið á hringveg um Vestfirði sem vestfirðingar hafa lengi þráð og er mikil samgöngubót í héraðinu.
Af öðrum meiri háttar framkvæmdum má nefna framkvæmdir við Seyðisfjarðarveg um Fjarðarheiði og tókst að koma veginum fram á Efra-Staf þó seinasta áfanga sé ekki fulllokið. Í Oddsskarði voru styrktir gangamunnar vestan skarðsins og standa vonir til að þessu verki verði lokið á næstu tveim árum.
Til girðinga og uppgræðslu var varið 40 mil1 j. kr. og fóru 2/3 upphæðarinnar til girðinga, en 1/3 til uppgræðslu meðfram gömlum vegum, en auk þess var varið til uppgræðslu vegna nýbygginga 20.5 millj. kr. Var því alls varið til uppgræðslu tæpum 34 millj. kr. Þó að varið hafi verið til girðinga samkv. girðingalögum meðfram vegum tæpum 27 millj. kr. sígur þó enn á ógæfuhlið í þessum efnum, því að kröfur um girðingar hækkuðu úr 142 millj. í árslok 1974 í 242 millj. í árslok 1975, þó að varið hafi verið til þessara framkvæmda 27 millj. á árinu.
Brúargerðir: Bein fjárveiting til bygginga brúa var 151 millj. kr. auk fjárveitinga til brúargerða innan einstakra vegaflokka, eins og á hraðbrautum og í landshlutaáætlunum. Alls voru byggðar á árinu 15 smábrýr, samtals 93 m að lengd, og 18 brýr 10 m og lengri sem voru alls 328 lengdarmetrar Voru því alls byggðar á árinu 33 brýr samtals 421 m að lengd. Mikið verk er þó enn óunnið í þessum efnum því enn eru í notkun á þjóðvegakerfinu 68 brýr 10 m og lengri sem byggðar voru fyrir árið 1930 og næsta augljóst mál að þær brýr geta ekki verið fullnægjandi fyrir þau ökutæki sem nú eru á vegakerfinu.
Þá er hér næst frá sýsluvegum að segja. Framlag til sýsluvega í vegáætlun hækkaði um 38 millj. kr. Í vegáætlun voru 85 millj. á árinu 1975. Af þessari hækkun voru 32.5 millj. kr. teknar inn á vegáætlun til þess að mæta tvöföldun á heimaframlagi einstakra hreppa sem notfæra vildu sér þá breyt. á 21. gr. vegalaga sem samþ. var á s.l. vori. Var upphaflega gert ráð fyrir að helmingurinn af öllum hreppum mundi notfæra sér þessa heimild. Raunin hefur hins vegar orðið sú að aðeins 1/4 hluti hreppa landsins notfærði sér heimildina á árinu 1975, og er líklegt að ástæðan fyrir því sé sú, að breyt. á vegalögunum var samþ. það seint að sýslunefndum var ekki almennt kunnugt um eðli þessarar breytingar, Margar sýslur hafa nú þegar tilkynnt að þær muni greiða tvöfalt heimaframlag í hverjum hreppi, og má því búast við að þátttakan verði mun meiri í ár en á sl. ári.
Til vega í kaupstöðum og kauptúnum: Sú breyting, sem varð á 34. gr. vegalaga s.l. vor, kom til framkvæmda s.l. sumar, en það var að svonefndum 10% sjóði var breytt í 25% sjóð. Til ráðstöfunar voru í sjóði þessum tæpar 88 millj. kr. Af þeirri fjárhæð úthlutaði fjvn. 70 millj. kr. til 10 kaupstaða og kauptúna í tveimur kjördæmum. Miklar vonir eru bundnar við framlag úr þessum sjóði hjá mörgum kaupstöðum og kauptúnum við lagningu bundins slitlags á þjóðvegi í þéttbýli á hverjum stað.
Til véla- og áhaldakaupa: Alls voru keyptar vélar fyrir 89 millj. kr. Fjárveiting var 20 millj., en 59 millj. voru afskrift véla. Var því fjárfest í vélum um 10 millj. kr. meira en ráðstöfunarfé og er það í skuld. Stafar þetta af því að rekstrarútkoma vélanna var mun lakari á s.l. ári en áætlað hafði verið, komu þar til bæði innlendar og ekki síst erlendar verðhækkanir á rekstrarvörum. Unnið var áfram við byggingu áhaldahúsa út um land og er mikið verkefni fyrir höndum í þeim efnum, t.d. á Ísafirði, Sauðárkróki og Húsavík, þar sem lítið eða algjörlega ófullnægjandi aðstaða er fyrir hendi.
Til tilrauna í vegagerð: Fjárveiting í vegáætlun var alls 13 millj. kr. til tilraunanna. Geymt fé frá fyrra ári var 1.1 millj. kr. svo um var að ræða til ráðstöfunar 14.1 millj. kr. Unnið var að ýmsum tilraunum, en bróðurparturinn af fjárveitingu þessari fór í tilraunakafla Sverris Runólfssonar á Kjalarnesi. Er kostnaður við þá vegagerð nú orðinn 27 millj. kr., en vegarkafli þessi er 1.2 km á lengd. Hefur nú verið lagt fyrir Sverri að ljúka þessum tilraunum fyrir 30. júlí n.k. og hefur hann þá haft um tvö ár til þess að ljúka þessum vegarkafla. Verði hann ekki búinn að ljúka vegarkaflanum þá, verður hann tekinn úr hans höndum.
Verkfræðilegur undirbúningur framkvæmda: Unnið var að verkfræðilegum undirbúningi framkvæmda fyrir yfirstandandi ár og næsta ár í samræmi við vegáætlun og er greint frá helstu verkefnum í skýrslunni. Tvö af þessum verkefnum höfðu sérstaka fjárveitingu í vegáætlun, en það var rannsókn á brúargerð um Ölfusárós sem veitt var til 5 millj. kr. Var lokið við kortagerð 1:5000 yfir allt vegsvæðið frá Þorlákshafnarvegi um Ölfusárósa, Eyrarbakka og áfram austur Gaulverjabæjarveg að Stokkseyri. Enn fremur var unnið að ýmsum vatnafræðilegum athugunum og mælingum við ósinn og gerð lokaáætlun um kaflann frá Selfossi til Eyrarbakka. Hafa þessar rannsóknir verið kynntar fyrir þm. Suðurlandskjördæmis. Þá var 2 millj. kr. fjárveiting til þess að rannsaka með hvaða hætti yrði hentugast að tengja Inn-Djúp við Austur-Barðastrandarsýslu. Var unnið að mælingum á vegarstæðum yfir Steingrímsfjarðarheiði, Þorskafjarðarheiði og Kollafjarðarheiði. Einnig var gerð könnun á lífríki fjarða í Austur-Barðastrandarsýslu og gerðar dýptarmælingar í Þorskafirði, Djúpafirði og Gufufirði. Athuganir á snjóalögum á framangreindum heiðum hafa staðið yfir í 2–3 ár. Niðurstöður þessara rannsókna hafa verið kynntar fyrir þm. Vestfjarðakjördæmis og stjórn Fjórðungssambands. Vestfjarða.
Geta má þess að sérstakar athuganir á snjóalögum hafa farið fram á Holtavörðuheiði á s.l. þrem árum. Af niðurstöðum þessara athugana á að vera unnt að ákveða framtíðarvegarstæði á heiðinni á yfirstandandi ári.
Herra forseti. Ég hef nú lokið þessari grg. eða útdrætti úr þeirri grg., en hún er, eins og skýrslan ber með sér, mjög nákvæm og vel gerð af hálfu vegamálastjórnarinnar, eins og hennar er vandi, og geta hv. þm. kynnt sér það sem á vantar í þeim efnum.