11.05.1976
Sameinað þing: 89. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4046 í B-deild Alþingistíðinda. (3340)
278. mál, bráðabirgðavegáætlun 1976
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Hv. þm. Geir Gunnarsson vék aðeins að því áðan í ræðu sinni sem gerðist hér á Alþ. fyrir tveim árum um svipað leyti, þegar verið var að ræða þáltill. um vegáætlun, en þá mun líklega hafa átt sér stað eitthvert mesta ábyrgðarleysi sem um getur í þingsögunni og að því ábyrgðarleysi stóðu fyrst og fremst hv. þm. Sjálfstfl., og höfuðpaur þess ábyrgðarleysis var hv. 1. þm. Sunnl., Ingólfur Jónsson. Þá gáfu þessir hv. þm. margir hverjir fjálglegar yfirlýsingar og átöldu harðlega þá stefnu, sem uppi var í sambandi við framkvæmdir í vegamálum, og töldu að þá fyrst væri steininum kastað í sambandi við framkvæmdirnar og það óraunsæi sem ætti sér stað, niðurskurð og litla framkvæmdagetu, miðað við þá áætlun sem þá var til umr.
Það hvarflar óneitanlega að manni að hugsa til þess tíma þegar lítið er á það plagg, sem hér er nú til umr., sem er annað í röðinni sem lagt er fram af hæstv. núv. ríkisstj. og annað í röðinni hjá núv. hæstv. samgrh. Það hefur verið vikið að því hér áður að við afgreiðslu vegáætlunar síðar á vorinu 1975, var um að ræða niðurskurð í kringum 25% frá því sem var 1974, og nú er annað árið í röð um að ræða um 25–26% niðurskurð. Niðurskurður í framkvæmdamagni á þeim tveim árum, sem hæstv. núv. samgrh., einn höfuðpostuli byggðastefnutalsins innan Framsfl., hefur stýrt þessum þætti mála, er yfir 50%. Það er engin furða þó að ýmsir þm. séu undrandi á því að einmitt þessi hæstv. ráðh., úr þessum flokki, einn af æðstu foringjum Framsfl., þess flokks sem hvað mest hefur kennt sig við byggðastefnu, og vinur hinna dreifðu byggða, — þetta skuli vera ferill þessa hæstv. ráðh.
Hv. þm. Lúðvík Jósepsson orðaði það eitthvað á þann veg áðan að frambjóðendur Framsfl. á Austfjörðum mættu fara að gá að sér ef þeir ætluðu sér ekki að falla í næstu kosningum. Ég hugsa að það gæti átt sér stað viðar að slíkt gerðist. En eitthvað gæti nú verra gerst heldur en það þó að nokkrir þm. Framsfl. féllu við næstu kosningar. Það væri ekki það versta sem gæti gerst í áframhaldi af þessu. Það er auðvitað miklu verra að hér skuli í raun og veru vera snúið við þeirri byggðastefnu sem uppi var þó í tíð fyrrv. ríkisstj. Það er miklu alvarlegra, hvernig hnefinn er nú reiddur til höggs að dreifbýlisfólki með þessari þáltill sem hér er lögð fram, heldur en það þó að nokkur stykki af hv. þm. Framsfl. féllu. Það skarð yrði ábyggilega hægt að bæta. En það verður erfiðara um að bæta í sambandi við þá röngu stefnu, sem ég vil kalla, sem hér er boðuð sem áframhald af því sem gerðist við afgreiðslu síðustu vegáætlunar. En kannske er þetta einn þáttur hinnar þróttmiklu byggðastefnu sem síðasti miðstjórnarfundur Framsfl., sem haldinn var um síðustu helgi, var að dásama svo mjög í tíð núv. hæstv. ríkisstj. Vel má vera að Framsóknarforingjunum og þar með hæstv. samgrh. þyki þetta þróttmikil byggðastefna sem beri að lofa og prísa. En eitt er víst, að þeir íbúar dreifbýlisins, sem hér er fyrst og fremst vegið að, þeir lofa ekki og prísa þessa stefnu hæstv. ráðh. og ríkisstj.
Hér er sem sagt lögð fram till. til þál. um milli 25 og 26% niðurskurð í framkvæmdamagni varðandi vegaframkvæmdir. Það hefur verið talsvert rætt af þeim sem talað hafa hér á undan, um þá óeðlilegu skiptingu á því tiltölulega litla fjármagni, sem til ráðstöfunar er samkv. þessari þáltill., milli annars vegar hinna svokölluðu hraðbrauta og hins vegar þjóðbrauta og landsbrauta. Þetta hlutfall hefur aukist mjög hraðbrautunum til framdráttar í tíð núv. hæstv. ríkisstj., hæstv. samgrh., eins og var vikið að áðan, og nú er svo komið að af þeim rétt rúma milljarði, sem ætlaður er til framkvæmda í hraðbrautum samkv. gildandi vegáætlun, er það nærri því helmingur sem fer í eitt ákveðið kjördæmi. Kannske er það tilviljun ein, að jafnhliða því sem hlutfall hraðbrauta í framkvæmdum er svona stórkostlega aukið, þá er það kannske tilviljun ein líka að svo stór hluti af þessari púlíu í framkvæmdum í hraðbrautum fer í eitt ákveðið kjördæmi í landinu, þ.e.a.s. Vesturlandskjördæmi. Það er auðvitað óeðlileg skipting sem þessi, að nær helmingur alls framkvæmdafjárins, sem ætlaður er til nýbygginga, skuli fara til hraðbrauta, þegar það er skoðað í ljósi þess að sum kjördæmi fá samkv. vegáætlun, sem nú er í gildi, ekki einn einasta eyri af þessum helming framkvæmdafjárins á árinu 1976 og önnur sáralítið fjármagn í þessum framkvæmdaflokki.
Hér þarf auðvitað um að breyta. Það þarf að breyta þessu hlutfalli. Og kannske er heppilegasti og besti tíminn til þess einmitt nú, vegna þess, eins og segir í aths. með þessari þáltill., með leyfi forseta: „Á árinu 1976 eru mjög óverulegar greiðslur af fjárveitingum til hraðbrauta bundnar af verksamningum.“ Hér á því að vera hægt, ef vilji er fyrir hendi hjá hv. alþm. sem ég efa ekki að er fái samviskan að ráða, sannfæringin, þá ætti að vera hægt að breyta þessu hlutfalli og setja meira fjármagn á þá staði sem miklu verr eru settir samgöngulega séð, einangraðir vegna samgönguleysis, heldur en að ráðstafa svona stórum hluta í hraðbrautaframkvæmdir sem koma að mestu leyti a.m.k. á tiltölulega afmarkað svæði í þeim landshlutum sem best eru settir með samgöngur.
Það er auðvitað sagt, og það er rétt svo langt sem það nær, að það er erfitt um vik að auka mjög framkvæmdir til þessara framkvæmda nú vegna fjármagnsleysis. Það skal viðurkennt. En ég vil þó í því sambandi, þó að auðvitað sé það ekki mitt fyrst og fremst að marka stefnuna í þessum málum og benda á leiðir til fjármögnunar, þá vil ég þó vekja athygli hæstv. samgrh. á því að a.m.k. ein fjármögnunarleið er ónotuð sem hefur verið notuð og er réttlætismál að nota. En það er vegskatturinn. Það er hægt að ná inn á þessu árabili, sem vegáætlunin gerir ráð fyrir sem hér er lögð fram, um 320 millj. kr. nettó, á þessu 4 ára tímabili, með því að taka upp veggjald, sem er eðlilegt og meira en það, sem er sjálfsagt. Vel má vera að einhverjir segi: Það er tiltölulega lítið sem þetta gefur miðað við þá þörf sem er fyrir hendi. — En hér væri þó um að ræða um 80 millj. kr. nettó á ári sem á þennan hátt mætti auka tekjur til framkvæmda í vegamálum, og þetta er auðvitað sjálfsagt að nota og ekkert sjálfsagðara. Ég vænti þess að hæstv. samgrh. sé eins og fleiri hv. þm. mér sammála um að í þeim þrengingum, sem hæstv. ríkisstj. telur sig vera í í sambandi við fjáröflun, þá eigi að nota þessa leið skilyrðislaust.
Ég vil enn fremur taka undir það, sem hér hefur komið fram hjá nokkrum ræðumönnum, að auk þess sem það er nauðsynlegt að breyta hlutföllum varðandi framkvæmdirnar, þá er auðvitað nauðsynlegt líka að finna leið til þess að auka það fjármagn sem þarf svo að sæmilega sé að verki staðið í sambandi við vegaframkvæmdir á þessu ári og næstu árum. Og ég er nærri viss um það, að ef hæstv. samgrh. leggur sig fram við að finna og benda á þessar leiðir, þá mun ekki standa á hv. þm. að taka upp samstarf við hann um að standa með einhverjum hætti að frekari fjáröflun til þess að hægt sé að sinna betur en þessi þáltill. gerir ráð fyrir framkvæmdum í vegamálum á næstu árum.
Það er kapítuli út af fyrir sig í sambandi við vegáætlun núna, þau vinnubrögð sem hér virðist vera farið að taka upp á hv. Alþ. Núna í síðustu viku þinghaldsins er verið að byrja á. því að ræða vegáætlun sem a.m.k. þeir, sem telja sig kunnuga þeim málum, telja að það þurfi a.m.k. hálfan mánuð fyrir viðkomandi n., sem málið fær til meðferðar, til að vinna að svo að skikkanlegt þyki. En til þess eru nú ætlaðir nokkrir dagar. Þetta var gagnrýnt við afgreiðslu vegáætlunarinnar fyrir ári. Þá var þó rýmri tími ætlaður heldur en nú er. Ég vil því taka undir þær gagnrýnisraddir sem hér hafa komið fram, að með þessum vinnubrögðum er öllum aðilum, sem um málið fjalla og að því standa, gert miklum mun erfiðara fyrir en þörf er á og nokkur eðlilegheit standa til.
Þessi vegáætlun gerir ráð fyrir svo að segja nákvæmlega óbreyttri krónutölu í framkvæmdum miðað við gildandi vegáætlun og er af sumum talið, heyrist mér, nokkuð gott. En ég a.m.k. tel að hér sé um að ræða svo veigamikinn þátt ekki síst til styrktar og eflingar dreifbýlinu að einskis megi láta ófreistað til þess að hægt verði að bæta hér úr verulega frá því sem þessi áætlun nú gerir ráð fyrir. Ég tek t.d. eftir því í sambandi við snjómoksturinn, — það mun vera búið að standa yfir núna í 3 eða 4 ár endurskoðun reglna í sambandi við snjómokstur sem mér vitanlega flestir aðilar eru sammála um að séu löngu úreltar, — í þessari áætlun er enn gert ráð fyrir því að bíða í 2 ár þangað til þessar reglur, sem nú eru tilbúnar endurskoðaðar, eiga að koma til framkvæmda. Ef veggjaldið væri tekið upp sæi það vel fyrir þessum þætti árlega, þannig að með því að taka það upp væri hægt strax á n.k. hausti að láta taka gildi hinar nýju, endurskoðuðu reglur um snjómokstur sem margir hafa beðið eftir með óþreyju að sæju dagsins ljós í framkvæmd. Bara með því að nota þennan tekjustofn væri hægt að hrinda þessu í framkvæmd strax á þessu ári. En það má kannske ekki.
Það er sem sagt ljóst að ef þetta mál gengur fram eins og hér er lagt til að það geri, þá er enn verið að raska með óeðlilegum hætti búsetu manna í þessu landi. Hér er helmingur þess fjár, sem á að setja í nýframkvæmdir í vegum, settur á suðvesturhornið, eins og vanalega í öllu gert á kostnað þess fólks sem foringjar Framsfl., þ. á m. hv. þm. Þórarinn Þórarinsson, einn af postulum þeirra framsóknarmanna, hefur býsnast hvað mest yfir, að Framsfl. væri hinn mesti dreifbýlisflokkur allra stjórnmálaflokka í landinu. En verkin sýna merkin. (Gripið fram í.) Nei, það getur enginn mælt á móti því að verkin sýna merkin. Það er rétt hjá hv. þm. Stefáni Valgeirssyni. Hér er enn ein sönnun þess að Framsfl, og þeir, sem þar ráða ferðinni, þótt að mörgu leyti slæmir séu, þá eru þeir í þeim félagsskap nú sem vissulega gerir þá enn þá verri en nokkur efni standa til að því er þetta áhrærir. Og það er ömurlegt til þess að vita að hæstv. samgrh., sem er þó trúandi til margra góðra verka njóti hann frjálsræðis eins og hann þarf, — það er ömurlegt til þess að vita að hann skuli vera bundinn á þennan hátt í þessum félagsskap. (Gripið fram í.) Hvað segir hæstv. utanrrh.? (Gripið fram í.) Hæstv. samgrh. stendur enn. En líklega er engin von til þess, þó að menn tali hér um hættu á því að þm. Framsfl. margir hverjir falli í næstu kosningum, þá er líklega síst von til þess að hann falli, hæstv. samgrh., hann virðist standa það föstum fótum, kannske ekki óeðlilega með hliðsjón af því sem hefur verið að gerast í því kjördæmi undir hans forsjá síðustu árin. En mörgum öðrum hv. þm. Framsfl. er hætta búin. (Gripið fram í: Það virðist nú fleirum hætt.) Fleirum en? (Gripið fram í: En framsóknarmönnum.) Vel má það vera. Mér heyrist nú að menn hafi hér haft mestar áhyggjur af þeim þó ég hafi það ekki. Það er ábyggilega hægt að bæta þau skörð ef þau koma.
En ég get ómögulega stillt mig um að minnast hér örfáum orðum á það sem hæstv. samgrh. lét í raun og veru verða sín lokaorð fyrr í dag í framsögu fyrir þessari þáltill., og það var það sem hann kallaði nauðsynlegustu næstu verkefni. Og þar nefndi hann að sjálfsögðu brúna yfir Borgarfjörð (Gripið fram í.) Já, það mun vera rétt, það mun hafa verið unnið af fullum krafti við þetta mannvirki á síðasta ári og allan þennan vetur, á sama tíma og skornar hafa verið niður framkvæmdir í dreifbýliskjördæmum upp á tugi millj. í vegaframkvæmdum.
Í öðru lagi nefndi hæstv. samgrh. Oddsskarð, og þar er auðvitað um framkvæmd að ræða sem valdið hefur mönnum miklum vonbrigðum hversu seint er á ferðinni og seint kemst í gagnið, og skal það á engan hátt talið eftir þó að framkvæmdum þar yrði hraðað þannig að því verki yrði lokið sem allra fyrst.
En svo kom þriðja verkefnið sem bráðliggur á, sagði hæstv. samgrh. Það var brú yfir Ölfusá, rökstutt með því að það miðaði svo vel áfram framkvæmdum við brúna yfir Borgarfjörð að það væri hægt að nota allt efni þaðan til þess að byggja brúna yfir Ölfusá. (Gripíð fram í: Nei, tækin var það.) Og tækin líka, auðvitað.
Þetta eru þau verkefni sem eru í næstu augsýn hæstv. samgrh. Vel má vera að til séu þeir menn, og líklega eru þeir til fleiri en hæstv. samgrh., sem telja Borgarfjarðarbrúna og brúna yfir Ölfusá hin brýnustu verkefni sem beri fyrst og fremst að einbeita kröftum og fjármagni að nú á allra næstu árum. Ég er hins vegar í hópi þeirra manna sem telja að þessi verkefni megi bíða, það séu önnur nauðsynlegri sem frekar beri að hrinda í framkvæmd og fyrr en þessum tveimur. Það er auðvitað ákaflega ákjósanlegt að fá teppalagðan Borgarfjörðinn undir brúnni. En það er auðvitað bara spurning hvort við höfum efni á þessu í því árferði sem við nú búum við, ekki síst vegna þeirrar stefnu sem hæstv. ríkisstj. hefur uppi í sambandi við efnahags- og fjármál. Ég held að hafi nokkurn tíma verið þörf á því að hv. þm. tækju í taumana og gripu fram fyrir hendur hæstv. ríkisstj., þá væri vissulega þörf á því hér. Ég er ekki að segja þetta vegna þess að ég sjái eftir því til handa vestlendingum, að þeir njóti þessara gæða, eða sunnlendingum í sambandi við Ölfusárbrúna. Það er síður en svo. Þeir eru sjálfsagt allra góðra hluta verðir og eiga það skilið. En það er bara um það að ræða að hér verður í því árferði, sem er peningalega séð, að gera upp á milli framkvæmda meðan ekki er meira fjármagn úr að spila heldur en menn sjá fyrir augum nú. Og þá eru það frekar þessi verkefni sem eiga að biða. Þau koma sjálfsagt, en þau eiga að bíða og það á að hrinda í framkvæmd öðrum þarfari og miklu nauðsynlegri verkefnum sem ættu að geta átt þátt í því, ef vel er að verki staðið, að snúa þeirri öfugþróun við sem ekki hvað síst grasserar nú undir handleiðslu hæstv. ríkisstj., sem er byggðarröskun ef ekkert verður að gert. Ég a.m.k. treysti á það, að hvað sem öllum pólitískum sjónarmiðum líður, þá velti hv. þm. því fyrir sér hvort það er brýnasta verkefnið núna í framkvæmdum í vegamálum að halda af fullum krafti áfram framkvæmdum við Borgarfjarðarbrúna sem á samkvæmt gildandi vegáætlun að taka nærri helminginn af þessum milljarði sem á að fara í hraðbrautaframkvæmdir, hvort það er brýnasta nauðsynjaverkefnið nú, og í áframhaldi af því, hvort það er næst á eftir sem brýnasta verkefni brú yfir Ölfusá. Í mínum huga eru báðar þessar framkvæmdir talsvert miklu fjær heldur en ýmsar aðrar sem þyrfti að vinna að og kæmu í raun og veru að miklu meira gagni heldur en þessar tvær framkvæmdir. Ég vil því vona, þó að engar breytingar séu enn komnar fram í þessa átt, að þá tel ég engan vafa á því að það muni koma fram brtt. í þessa átt. Það er nauðsynlegt — mér liggur við að segja lífsnauðsynlegt — að breyta þessum hlutföllum og einnig hitt, nauðsynlegt að finna leiðir til þess að hægt sé að veita meira fjármagn til framkvæmda í vegum í heild heldur en þessi hörmungartill., sem hér liggur til umr., gerir ráð fyrir. Og ég vænti þess a.m.k., og segi þetta nú af því að hv. 1. þm. Sunnl. er kominn inn í salinn sem áhrifamikill aðili innan herbúða hæstv. ríkisstj., að hann verði mér og öðrum sammála og samferða í því að nýta þann tekjustofn sem augljóslega liggur fyrir að hægt er að nýta ef vilji er fyrir hendi, þ.e.a.s. veggjaldið. Þó að honum hafi orðið á þau mistök undanfarin tvö ár að snúast gegn því, þá eiga menn kröfu á því að leiðrétta sig, skipta um skoðun og horfa fram til betri vegar, og ég vænti þess að hv. 1. þm. Sunnl. verði okkur hinum dreifbýlisþm. samferða í því að nýta þennan tekjustofn í því hörmungarárferði sem hæstv. ríkisstj. er búin að búa að og búa til að verulegu leyti á þeim tveim árum sem hún hefur setið við völd. Og einnig hitt, að hann ásamt hv. þm. öðrum geri sitt til þess að finna leiðir sem eru til þess líklegar og vænlegar að hægt sé að koma meira fjármagni til framkvæmda í vegamálum heldur en þessi till. til þál. gerir ráð fyrir.
Ég skal ekki, herra forseti, nú við fyrri umr. hafa fleiri orð hér um. Ég vænti þess að sú n., sem málið fær til meðferðar, fjvn., og ég veit raunar að það stendur ekki á fjvn.-mönnum að leggja sitt af mörkum til þess að hægt verði hér úr að bæta. En það verður að öllum líkindum að vera undir forsjá hæstv. ríkisstj. Ef sú forsjá bregst, þá verða auðvitað hinir almennu þm. að taka ráðin í sínar hendur og sjá til þess að hér verði breytt um stefnu, því að stefna sem þessi er andsnúin því byggðastefnutali og þeirri byggðastefnu sem ég held að allir stjórnmálaflokkar í landinu hafi á stefnuskrá. Hún er andsnúin því að hægt verði að byggja upp allt landið. Hún er í þá átt að raska byggð. Það þarf að koma í veg fyrir að slík stefna festi frekar rætur í þjóðfélaginu en hún hefur nú þegar gert, og það þarf að gera að þessu sinni með því að breyta stefnunni í sambandi við framkvæmdir í vegamálum, þ.e.a.s. eins og þeim er skipt milli hinna ýmsu verkþátta og verkframkvæmda.