12.11.1975
Efri deild: 14. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (335)

53. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :

Herra forseti. Ég vil þakka hv. 7. landsk. þm. fyrir góðar undirtektir og stuðning við málið. Eins og hv. þm. hafa vafalaust veitt athygli hefur annað frv. sama efnis verið flutt hér á þingi, á þskj. 58, var útbýtt í þinginu í gær, stjfrv. var útbýtt á mánudaginn, og eru þau efnislega um það sama. Það er aðeins eitt, sem ég vil vekja máls á í tilefni af ummælum hv. 7. landsk. þm., að hann taldi að þyrfti að breyta stjfrv. þannig að námsmenn gætu örugglega notið þessa réttar.

Stjfrv. var af ásettu ráði haft þannig að nefna ekki í lagagreininni hinar sérstöku ástæður. Hins vegar nefndi ég þær í framsöguræðu minni. Það getur verið örorka, heilsufarsástæður, námsmenn o. fl. Ákvæðið í stjfrv. er haft það rúmt að það nær yfir þetta allt saman. Það er heimilt að veita leyfi til endurgreiðslu ef brýna nauðsyn ber til.

Að sjálfsögðu verður rætt í n. hvort æskilegt þyki að telja upp einstök atriði eins og þessi sem við báðir höfum nefnt. Það er sjálfsagt að athuga það. En þegar málið var undirbúið í rn. þótti réttara að hafa þennan háttinn á, að nefna ekki þessar einstöku ástæður, að alltaf geta komið upp einhver ný atvik sem menn hafa ekki reiknað með. Þess vegna var farin sú leið að hafa heimildina þetta almenna. En ég vil endurtaka það, að ég vænti þess að um þetta mál verði full samstaða.