12.05.1976
Efri deild: 103. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4090 í B-deild Alþingistíðinda. (3375)

261. mál, laun starfsmanna ríkisins

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Í sjálfu sér er hálfslæmt að hæstv. fjmrh. skuli ekki vera viðlátinn, því að eins og kemur fram í aths. við þetta lagafrv. var á sinum tíma, þ.e.a.s. 1971, skipuð sérstök n. sem kannaði þetta mál til hlítar og skilaði allmikilli grg. um þetta mál. Við í fjvn. og sérstaklega í undirnefnd fjvn, ræddum við þessa menn eða a.m.k. suma þeirra og fengum þessi gögn í hendur, og eftir alllanga stund birtist þetta frv. og er nú til umfjöllunar í miklum tímaskorti.

Það er greinilegt að embættismenn hafa um það nokkuð mismunandi skoðun, hvaða þóknun á að taka fyrir að standa sig vel í sínum embættisrekstri. En það er gömul venja að það hefur verið talið nauðsynlegt að greiða þeim fyrir, sem innheimta fyrir ríkissjóð, umfram föst laun. Uppi hafa verið skoðanir um að gera á þessu verulegan greinarmun í prósentum talið eftir eðli innheimtugjaldanna, og einkum heyrði ég á mönnum að ekki ætti að byrja að borga neitt ef einhver innheimti 85–90%, því að það væri nánast lítil fyrirhöfn. Við, sem höfum staðið í atvinnurekstri, þekkjum það að okkur er sendur listi yfir starfsmenn okkar sem við skulum taka af ákveðin gjöld, og við fáum stórar sektir fyrir, atvinnuveitendur, ef við hlýðum því ekki. Þetta er yfirleitt bréf sem embættismaður viðkomandi yfirvalds skrifar og yfirvaldið sem slíkt sér oft aldrei, svo að fyrirhöfnin er öll sett í hendur annarra manna sem þurfa tíðum að standa í ýmsu til þess að standa skil á því er bréfið leggur mönnum kvöð á hendur að gera. En fyrir þetta fær enginn neitt nema taugaspennuna eina sér og hótun ef ekki er staðið vel í skilum.

Svo er hinn stóri þátturinn. Þegar farið er nú að nálgast þriðja tug milljarða sem er innheimt í gegnum söluskattinn, þá kostar það auðvitað mikla fyrirhöfn fyrir þá er sú kvöð fellur á. Og það er ekki nýtt hér á Alþ., það var hér virðulegur og góður fulltrúi Framsfl. sem fyrir mörgum árum lagði oft til að þetta starf yrði einhvers metið. En það hefur ekki náð fram að ganga enn þá. En ég vil að hæstv. fjmrh. sé gefið svigrúm til þess að ákveða með reglugerð, eins og segir í till. frá hv. þm. Albert Guðmundssyni, þóknun til annarra innheimtuaðila, og þá kemur auðvitað samvinnuhreyfingin þarna inn eins og allir aðrir. Það verður svo að vera mat þeirra, er hafa ávinning af þessu, hvort það fer í fyrirtækið eða til einhverra persóna innan fyrirtækisins sem eiga að standa skil á þessum mikilvægu gjöldum til ríkissjóðs. Og kvöðin um að standa skil á þessum mikilvægu gjöldum hefur nú verið sett svo ört að það þarf að skila þeim með mjög stuttum fyrirvara að viðlögðum gífurlegum sektum. Hefur orðið á því veruleg breyting frá því sem áður var, þannig að menn eru reknir áfram í því efni að gera góð skil.

Við höfum samþykkt hér á hv. Alþ. að leggja þessa kvöð á hinn almenna aðila í atvinnulífinu. En ég tel ekkert óeðlilegt að hæstv. fjmrh. — og mundi treysta núv. fjmrh. til að meta það án þess að setja ríkissjóð um of í hættu viðurkenndi vel unnið verk í þágu ríkisins í innheimtuskyni. Ég styð því till. sem hv. 12. þm. Reykv., Albert Guðmundsson, ber fram. Ég tel, að hún eigi fullan rétt á sér og okkur væri sómi að því að hún tæki gildi frá og með 1. jan. 1977.