12.05.1976
Efri deild: 104. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4096 í B-deild Alþingistíðinda. (3395)
271. mál, Happdrætti Háskóla Íslands
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti, Frv. þetta hefur verið afgr. í Nd. Það er flutt samkv. tilmælum Háskóla Íslands. Efni þess er að það verði veitt lagaheimild til þess að nota tölvu við drátt í happdrættinu, en það þykir ekki heimilt að gefa slíkt leyfi nema um það sé fengin heimild í lögum. Tölvuútdráttur hefur ekki tíðkast í þessu happdrætti, en hins vegar hefur hann tíðkast við útdrátt í skuldabréfalánum.
Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þetta mál. Samsvarandi aths. eiga við um tvö næstu málin á dagskránni, 10. og 11. mál, og sé ég ekki ástæðu til að hafa sérstaka framsögu fyrir þeim. Ef n. sú, sem fær þessi mál til meðferðar, kynni að óska upplýsinga, þá bendi ég á skrifstofustjóra í rn., Ólaf Walter Stefánsson, sem getur gefið fyllri upplýsingar.
Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.