12.05.1976
Efri deild: 104. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4101 í B-deild Alþingistíðinda. (3411)

108. mál, umferðarlög

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Allshn. Nd. hefur rætt á fundum sínum frv. til l. um breyt. á umferðarlögum, nr. 40 frá 23. apríl 1968, en till. um breyt. á þessum lögum fjalla um sektaákvæði og ákvæði um að ef við brot gegn lögum þessum eða reglum, sem settar ern samkv. þeim, er farið eftir fyrirmælum eða með vitund og vilja bifreiðaeigandans eða stjórnanda í starfi, þá skuli honum einnig refsað.

Allshn. mælir einróma með því, að frv. þetta verði samþ.