12.11.1975
Neðri deild: 16. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (342)

Umræður utan dagskrár

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Herra forseti. Ég tel óþarft af hv. 2. þm. Austurl. að látast ekki skilja þau orð sem ég viðhafði um landhelgisgæsluna. Ég skal þá svara honum beinna, alveg í samræmi við þá spurningu sem hann bar fram, og segja að það verður í einu og öllu fylgt sömu starfsaðferðum innan landhelgisgæslunnar hvort sem í hlut eiga útlend skip eða innlend.