12.05.1976
Efri deild: 105. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4103 í B-deild Alþingistíðinda. (3425)
279. mál, dagvistarheimili
Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Þetta frv. er, eins og raunar er augljóst, lagt hér fram til kynningar aðeins. Um áramótin var rekstur dagvistunarheimila eitt af þeim verkefnum sem flutt voru frá ríkissjóði yfir á sveitarsjóðina. Það er skoðun okkar í menntmn. að þjónusta skuli vera óbreytt eigi að síður, og raunar kemur það fram í höfuðatriðum í þeim ákvæðum sem um tilfærsluna voru sett á sínum tíma. Menntmrn. telur hins vegar nauðsynlegt að gera til samræmingar við breytta tilhögun fleiri breyt. á lögunum um dagvistunarstofnanir en þær sem gerðar voru um leið og tilfærsla verkefnanna átti sér stað. Þær breyt., sem rn. leggur til að gerðar verði á lögunum, eru fluttar hér og málið er flutt sem heilstætt frv. Hins vegar er í aths. við frv. gerð ítarleg grein fyrir breyt. Ég sé ekki ástæðu til þess, með tilliti til aðstæðna, að tefja tíma hv. d. með því að rifja það allt upp hér í ræðuformi, en leyfi mér að leggja til að frv. verði að lokinni umr. vísað til menntmn.