12.05.1976
Neðri deild: 107. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4112 í B-deild Alþingistíðinda. (3440)

Umræður utan dagskrár

Ellert B. Schram:

Virðulegi forseti. Ég rakti það áðan í ræðu minni hvernig hv. allshn. hefði afgr. þau mál sem til hennar hefðu komið í vetur, og þar kom fram að mikill meiri hluti þeirra mála, sem höfðu verið afgr. var komin frá dómsmrn. Mér kemur því nokkuð á óvart að hæstv. dómsmrh. sjái tilefni til þess að setja ofan í við n., kvarta undan hennar störfum, því auðvitað ber meiri hl. ábyrgð á afgreiðslu mála í þessari n. sem öðrum, og bætir svo því jafnframt við að þakka stjórnarandstöðunni fyrir framlag hennar til þessara umr. Það má vel vera rétt hjá hæstv. dómsmrh. að það sé ýmislegt athugavert við nefndastörf. Það er þá ekki einsdæmi. Vinnubrögðin í allshn. eru auðvitað ekki einsdæmi og eru með líku sniði og í öðrum n. En staðreyndin er sú að þm. eru hér í ákaflega mörgum störfum, sumir þeirra í tveimur, þremur, allt upp í fjórum n., og það er ekki hlaupið að því að finna tíma til nefndastarfa eða að afgr, mál nema nánast á hlaupum einstaka sinnum í hverri viku. Það mundi ekki standa á mér að reyna að bæta úr þessu, en þessar eru staðreyndir málsins. Það gengur illa að finna tíma og gengur illa að fá menn til þess að mæta vegna starfa annars staðar, í öðrum n. og í þinginu sjálfu.

Dómsmrh. hefur lýst því yfir að hann hafi óskað eftir afgreiðslu á frv. til l. um rannsóknarlögreglu ríkisins. Sú ósk kom fram fyrir 2–3 dögum. Eitt er það, hvers hæstv. dómsmrh. óskar, og annað það, hvað n.eða þingið getur gert,eins og hann reyndar sjálfur tók fram. Það hefur verið afstaða mín til þessa máls, að ég treysti mér ekki til þess að mæla með afgr. jafnviðamikils máls og þetta frv. er á örfáum dögum. Málið kom til meðferðar n. 9. mars. Því var vísað til umsagna eins og alltaf á sér stað um afgreiðslu mála, og um það leyti sem umsagnir áttu að hafa borist aftur var gefið af hálfu ríkisstj. sérstaklega langt páskahlé og var ekki við okkur þm. að sakast um það. Strax að því loknu var hafist handa, en um það leyti, sem þing kemur saman aftur, 4. eða 7. maí, er það gefið út af hæstv. ríkisstj. að það eigi að slíta þingi 15. maí. Það var mér sagt, og ég treysti mér einfaldlega ekki til þess að afgr. þetta mál á rétt rúmri viku. Það verður hver að skilja það og skoða það eins og aðstæður eru.

Þetta mál var sent til umsagna margra málsmetandi aðila, eins og lagadeildar, ríkissaksóknara, lögreglustjórans í Reykjavík, Landssambands lögreglumanna, Félags rannsóknarlögreglumanna og ýmissa aðila annarra, og það komu fram ábendingar frá fleiri heldur en lögreglustjóranum í Rvík sem höfðu ýmislegt við frv. að athuga í veigamiklum atriðum. Og það var ekki að mínu frumkvæði sem n. ákvað að biða með afgreiðslu málsins. Það var bara borið undir nm. hvað þeir vildu gera, hvort þeir treystu sér til þess að ganga í málið og afgr. það á svo stuttum tíma, og það var einróma álit allra, sem á nefndarfundinum voru mættir, að til þess ynnist ekki tími og það yrði að skoða málið betur. Það var langt frá að ég hafi verið að beita mér fyrir því að þessu yrði frestað.

Þetta vildi ég láta koma fram og ítreka það, sem ég sagði áðan, að það mun ekki standa á allshn., ef ég á sæti í henni áfram, að vinna að þessu máli af krafti og áhuga, því ég vil síður en svo setja fótinn fyrir að réttlát skipan komist á rannsóknarmál og dómsmál hér á Íslandi og tel reyndar, þó að málinu sé frestað núna, að þá sé það ekki gert, síður en svo. Það mætti búast við því að frambúðarskipan verði betri ef málið er skoðað ögn lengur.

Ég vil svo aðeins að lokum vegna ummæla hv. þm. Sighvats Björgvinssonar út af till. hans og fleiri um rannsókn sakamála taka það fram, að hvort sem það er bókað í fundargerð þessarar n. eða ekki, þá var málið rætt á þessum nefndarfundi, 7. maí, og það var minn skilningur að það hafi verið niðurstaða n. að því máli skyldi frestað jafnframt. Ég held að það skipti ekki máli í þessu sambandi hvað er bókað, heldur hvað er rétt, og þetta er sannleikur málsins.