12.05.1976
Neðri deild: 107. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4113 í B-deild Alþingistíðinda. (3441)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Ég vil taka fram út af orðum tveggja hv. þm. sem hafa skýrt frá því sem forsendu í sínum störfum að látið hafi verið það boð út ganga að þingi ætti að ljúka nú 15. maí, að ég kannast ekki við að það boð hafi verið látið út ganga af hálfu þingforseta. (Gripið fram í.) Nei, en það eru þingforsetar, nema þá eitthvað óvænt gerist, sem munu stýra fundum þingsins, og ef formaður allshn. vill marka orð deildarforseta um þetta, þá er það álit mitt að það verði ekki unnt að ljúka þingi fyrir 15. maí.