12.05.1976
Neðri deild: 107. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4115 í B-deild Alþingistíðinda. (3445)
115. mál, íslensk stafsetning
Frsm. minni hl. (Magnús T. Ólafsson) [frh.]:
Hæstv. forseti. Ég mun hafa verið þar kominn í máli mínu, þegar fundartíma þraut í gær, að ég taldi mig hafa sýnt fram á að margnefnd undirskriftasöfnun, sem fór fram utan þingsins og varð til að hrinda af stað þessari lotu í stafsetningardeilum sem enn stendur, er þannig til komin og þannig úr garði gerð að ekki er hægt að líta á að þar hafi a.m.k. að meiri hl um fjallað aðilar sem hafi alveg sérstök skilyrði til þess að segja álit sitt á máli sem þessu. Á undirskrifendalistanum, sem prófessor Þórhallur Vilmundarson safnaði, eru held ég fullt eins margir náttúrufræðingar eða máske hagfræðingar og raunverulegir málfræðingar, og forustumaðurinn sjálfur fyrir undirskriftasöfnuninni er bókmenntafræðingur, en ekki málfræðingur.
En nú hefur það gerst við 2. umr. þessa máls að meiri hl. hv. d. hefur tekið ákvörðun sem felur í sér að lokið skuli þeim þætti í meðferð íslenskra stafsetningarmála að þau séu jafnan undirbúin og sett í það form, sem þeim þykir hæfa, af þeim sem sérfróðastir hafa verið taldir um þau og bærastir um að fjalla hingað til, þ.e.a.s. málfræðingum annars vegar og hins vegar reyndum og hæfum móðurmálskennurum. Sá háttur hefur verið á hafður 1918, 1929 og 1973–1974, að menn með þessa sérþekkingu, sérhæfingu og sérstöku reynslu af stafsetningarmálum legðu þar á gjörva hönd.
Eins og ég reyndi að vekja athygli á við 2. umr., þá felur samþykkt 115. máls, frv. á þskj. 140, í rauninni í sér að frá þessu fyrirkomulagi er horfið, að hér eftir skal það vera regla um stafsetningaratriðin, hvert og eitt, með beinni lagasetningu. Þetta hefur ekki aðeins áhrif á meðferð þessa máls og afdrif þess um ófyrirsjáanlega framtíð, það hefur líka áhrif á eðli þeirra umr, sem hér þurfa að fara fram í hv. d. Það verður þess valdandi að hin almennu rök, sem hingað til hafa verið sett fram, hljóta að verða að víkja nokkuð til hliðar, því að úr því að meiri hl. hv. dm. hefur lýst því yfir með því að samþ. frv. á þskj. 140 að þeir séu með beinni atkvgr. hér um tiltekin stafsetningaratriði allra manna færastir og allra manna hæfastir til að ákveða hvernig stafsetning skuli gilda í landinu, þá hljóta umr. í hv. d. að verða hér eftir á fræðilegum grundvelli, en ekki almennum grundveili. Og það hlýtur að valda því, að farið er töluvert vítt um sviðið til þess að setja fram þann málefnagrundvöll sem afla þarf áður en slíkar ákvarðanir er hægt að taka.
Fræðileg athugun á slíku máli getur teygst afar víða. Áður en farið er út í einstök atriði, sem beinlínis varða stafsetninguna, langar mig til að sýna hv. dm. ofurlítið dæmi um hversu margþætt og víðfeðm slík athugun getur orðið.
Það hefur mjög kveðið við í máli hv. 3. þm. Austurl., 2. flm. frv. á þskj. 140, að hann hefur haft orð á því að í þessu máli og reyndar fleirum, sem hann hefur um fjallað, þyrfti hann að ná vopnum sínum, og hefur viðhaft þann orðshátt í ýmsu samhengi, síðast í umr. um þetta mál fyrir örfáum dögum. Ég býst við að hv. þm. þykist loks hafa náð vopnum sínum í þessu máli, eins og honum er svo tamt að komast að orði. Þessi orðsháttur, þetta orðasamband ber að mínum dómi vott um það kapp í skaplyndi sem hv. 3. þm. Austurl. hefur til að bera og er ekki neitt misjafnt um það að segja. En ef leitað er hvert þessi orðsháttur er sóttur, þá kemur á daginn að hann er ekki frá mönnum kominn í öndverðu, eftir því sem fornar bækur segja, heldur frá jötni einum hundvísum og ekki af betra taginu að því slepptu. Um það má leita sannfróðrar vitneskju í bók sem eignuð þykir með sannindum Snorra Sturlusyni og nefnist Snorra-Edda. Þar í Skáldskaparmúlum, 17, kafla, segir frá því hvernig þessi orðsháttur varð til.
Nú vill svo ágætavel til, að ég hef hér í höndum frábæra útgáfu Snorra-Eddu, gefna út í Kaupmannahöfn að tilhlutan Árnanefndar á árunum 1848–1887. Reyndar er hún ljósprentuð í Osnabrück hjá Otto Zeller 1966, en bókin er jafngóð fyrir því og er ljósprentuð með þeirri stafsetningu sem ríkti í Kaupmannahöfn um miðja 19. öld og þykir engum mikið þótt slíkt sé unnt, og er þetta enn eitt dæmi um það hversu tilhæfulausar eru þær röksemdir z-manna, að núgildandi stafsetningarreglur útiloki eða torveldi þá nauðsynlegu starfsemi að gefa út mikilsverðar fræðibækur í ljósprentuðum útgáfum til hægðarauka öllum, sem nota þurfa, og til mikils kostnaðarsparnaðar öllu þjóðarbúinu.
Þessi útgáfa Snorra-Eddu var nú ekki undirbúin af neinum aukvisum. Undir formálann skrifa í Hafniæ í árslok 1948 ekki minni menn en Örsted, Werlauff, Engelstoft, Rafn, Kolderup Rosenvinge og Konráð Gíslason, en gagnritari neðan við strik er enginn annar en Jón Sigurðsson forseti, og sá, sem um útgáfuna sá að miklu leyti, var einmitt Jón Sigurðsson. En auk alls annars ágætis þessarar útgáfu hefur hún þann ómetanlega kost, að öðrum megin í hverri opnu er frumtexti þeirra handrita sem við er stuðst, en hinum megin er texti þýddur á latínu. Þetta hefur geysilega mikla kosti og er mjög mikið hagræði þegar þessi mál eru rædd yfir hv. d. sem með verkum sínum í gær hefur lýst sig æðstu akademíu um íslenskt mál og hefur ákveðið að taka upp þann hátt að héðan af verði stafsetningarefnum ráðið til lykta, hverju og einu út af fyrir sig, með atkvgr. á hv. Alþ. Ég veit að alþm. munu fagna því og njóta þess vel að fá að heyra hvernig hljóma á latínu, þeirri göfugu tungu fornrómverja, ýmis kjarnyrði Eddunnar, því að ef við ætlum að leita fræðilegs grundvallar fyrir ákvörðunum okkar um stafsetningarmál, þá þýðir ekki bara að einblína á þann hebreska staf z. Það eru töluvert margir aðrir stafir í stafrófinu og þeir eru a.m.k. að 4/5 hlutum komnir beina leið frá rómverjum hinna fornu. Bókstafi okkar a, b, c, d o.s.frv., næstum út stafrófið, fáum við frá rómverjum og öll hæfileg meðferð á þessum tæplega 30 stöfum í stafsetningu og máli byggist auðvitað á rökum sem sækja verður allt aftur til rómversks tíma ef rekja á til róta og fara með málið af þeirri fræðilegu alvöru og þeirri fræðilegu nærfærni sem grundvöllur var lagður að með atkvgr. hv. d. við 2. umr. um þetta mál.
En til staðfestingar því, að það eru ekki staðlausir stafir sem ég hef farið hér með um hverjir ágætismenn stóðu að þessari Edduútgáfu, vil ég — með leyfi hæstv. forseta — lesa nokkur orð úr formálanum, sem auðvitað er á latínu:
„Ouuum de nova editione Eddaæ Snorrianæ instauranda consilium initum est, collegium nostrum ex codicibus primariis, Regio et Wormiano textum, eum variis Iectionibus a Raskio jam snsceptis, exseribendum euravit, cui deinde Finnus Magnusen collationem codieum Hypnonesiensium addidit. Dein hoc exscriptum cum eodicibus primariis, nuper eommemoratis, denuo eontulit et leetiones eorum diligenter notavit“ — ég bið hv. þm, að taka vel eftir — „diligenter notavit Jon Sigurdsson, legati Arnamagnæani stipendiarius, qui præterea fragmenta membranacea, editoribus hueusque ignota, eollegit et exseripsit, deinde vero totus apparatus edendi, a nobis eongestus ad virum doetissimum“ — nú kemur þýðingarmikið atriði sem ég bið hv. þm, að taka vel eftir — „ad virum doctissimum et in his literis versatissimum“ — ekki er nú lítið sagt — „Sveinbjörnum Egisson, Dr. Theol., nunc seholæ Reykjavieanæ in Islandia retorem, transmissus est, qui operam latinæ interpretationis elaborandæ ex optione collegii nostri suseeperat“
Margt er nú merkilegt í þessum formála fleira sem ástæða er kannske til að þm. fái að heyra síðar meir í þessari umr. Nú skal horfið að því sem Snorri segir um það hvernig menn komust upp á það að segja að þeir þyrftu að ná vopnum sínum. En vegna þess að hv. 3. þm. Austurl. var ekki hér í salnum, svo ég sæl, þegar ég skýrði frá hver nauðsyn ber til að rekja uppruna þess talsháttar, þá vil ég í örstuttum orðum ítreka það sem ég sagði þá, að hér er verið að færa fram dæmi um það hversu víða þarf fanga að leita og skyggnast um forn fræði og ný þegar hv. d. sest á rökstóla sem hinn eini og endanlegi ákvörðunaraðili um það hvað skuli kennt íslenskum börnum að skrifa á skólabekk og hvað sett skuli í kennslubækur ungdómsins. Jæja, 17. kafli hjá Snorra í Skáldskaparmálum hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Nú skal enn segja dæmi, af hverju þær kenningar eru, er nú voru ritaðar, en áður vorn eigi dæmi til sögð, svo sem Bragi sagði Ægi, að Þór var farinn í austur vega að berja tröll, en Óðinn reið Sleipni í Jötunheima, og kom til þess Jötuns, er Hrungnir hét.“ Þetta er þýðingarmikið nafn í sögunni. „Þá spyr Hrungnir, hvað manna sá er með gullhjálminn, er ríður loft og lög, og segir, að hann á furðugóðan hest. Óðinn sagði, að þar vill hann veðja fyrir höfði sinu, að engi hestur skal vera jafngóður í Jötunheimum. Hrungnir segir, að sá er góður hestur, en hafa lést hann mundu miklu stórfetaðra hest: sá heitir Gullfaxi. Hrungnir varð reiður og hleypur upp á hest sinn og hleypir honum, og hyggur að launa honum ofurmæli. Óðinn hleypir svo mikið, að hann var á öðru leiti fyrir, en Hrungnir var í svo miklum jötunmóð, að hann fann eigi fyrir en hann sótti inn of ásgrindur. Og er hann kom að hallardyrum, buðu Æsir honum til drykkju: hann gekk í höllina og bað fá sér að drekka: voru þá teknar þær skálir, er Þór var vanur að drekka úr, og snerti Hrungnir úr hverri.“ Snerti, þetta er ágætt orð sem ég gæti trúað að hv. 3. þm Austurl. gæti lagt sér á minni og notað stundum í ræðum her á þingi. „En er hann gerðist drukkinn, þá skorti eigi stór orð“. Það er eins og maður hafi orðið var við eitthvað svipað. Hann lést skyldu taka upp Valhöll og færa í Jötunheima, en sökkva Ásgarði og drepa goð öll, nema Freyju og Sif vill hann færa heim með sér.“ Hvílíkt innræti! En Freyja ein þorir þá að skenkja honum, og drekka lést hann mundi allt ásaöl. En er ásum leiddist ofuryrði hans, þá nefna þeir Þór; því næst kom Þór í höllina og hafði á lofti hamarinn, og var allreiður, og spyr, hver því ræður, er jötnar hundvísir skulu þar drekka, eða hver seldi Hrungni grið að vera í Valhöll, eða hví Freyja skal skenkja honum sem að gildi ása. Þá svarar Hrungnir og sér ekki vinaraugum til Þórs, sagði, að Óðinn bauð honum til drykkju, og hann var á hans griðum. Þá mælti Þór, að þess boðs skal Hrungnir iðrast, áður hann komi út. Hrungnir segir, að Ásaþór er það lítill frami, að drepa hann vopnlausan.“ Nú kemur kjarni málsins: „Hitt er meiri hugraun, ef hann þorir að berjast við hann að landamæri á Grjótúnagörðum, og hefur það verið mikið fólskuverk, sagði hann, er ég lét eftir heima skjöld minn og hein, en ef ég næði vopnum mínum, þá skyldum við nú reyna hólmgönguna.“ Þarna kemur það: að ná vopnum sínum. Það var Hrungnir jötunn sem mælti þetta þegar hann var kominn óboðinn í Ásgarð og var langt kominn að drekka þar allt öl. „Ef ég næði vopnum mínum, þá skyldum við nú reyna hólmgönguna.“ En enn er mikið eftir af sögunni. Hún batnar enn, eftir því sem á líður: „en að öðrum kosti legg ég þér við níðingsskap, ef þú vilt drepa mig vopnlausan. Þór vill fyrir engan mun bila að koma til einvígis, er honum var hólmur skoraður, því að engi hefur honum það fyrr veitt. Fór þá Hrungnir braut leið sína og hleypti ákaflega, þar til er hann kom í Jötunheima, og var för hans allfræg með jötnum, og það, að stefnulag var komið á með þeim Þór. Þóttust jötnar hafa mikið í ábyrgð hvor sigur fengi, Þeim var ills von af Þór ef Hrungnir létist, fyrir því að hann var þeirra sterkastur. Þá gerðu jötnar mann á Grjótúnagörðum af leiri og var hann níu rasta hár en þriggja breiður undir hönd, en ekki fengu þeir hjarta svo mikið, að honum sómdi, fyrr en þeir tóku úr meri nokkurri, og varð honum það eigi stöðugt, þá er Þór kom. Hrungnir átti hjarta það, er frægt er, af hörðum steini og tindótt; með þrem hornum, svo sem síðan er gert ristubragð það, er Hrungnishjarta heitir. Af steini var og höfuð hans, skjöldur var og steinn, víður og þjokkur, og hafði hann skjöldinn fyrir sér, er hann stóð á Grjótúnagörðum og beið Þórs, en hein hafði hann fyrir vopn og reiddi af öxl, og var ekki dælegur. Á aðra hlið honum stóð leirjötunninn, er nefndur er Mökkurkálfi, og var hann allhræddur; svo er sagt, að hann meig er hann sá Þór, Þór fór til hólmstefnu og með honum Þjálfi. Þá rann Þjálfi fram að, þar er Hrugnir stóð, og mælti til hans: Þú stendur óvarlega, jötunn, hefur skjöldinn fyrir þér, en Þór hefur séð þig og fer hann ið neðra í jörðu, og mun hann koma neðan að þér. Þá skaut Hrungnir skildinum undir fætur sér og stóð á, en tvíhenti heinina. því næst sá hann eldingar og heyrði þrumur stórar; sá hann þá Þór í ásmóði, fór hann ákaflega og reiddi hamarinn og kastaði um langa leið að Hrungni. Hrungnir færir upp heinina báðum höndum, kastar í móti; mætir hún hamrinum á flugi, og brotnar sundur heinin, fellur annar hlutur á jörð, og er þar af orðin öll heinberg, annar hlutur brast í höfði Þór, svo að hann féll fram á jörð, en hamarinn Mjölnir kom í mitt hófuð Hrungni, og lamdi hausinn í smánmola og féll hann fram yfir Þór, svo að fótur hans lá of háls Þór. En Þjálfi vá að Mökkur-kálfa, og féll hann við lítinn orðstír.“
Lengri er sagan, en ég sé ekki ástæðu til að þessu sinni að rekja þetta öllu lengra. Það er eins og endranær í þessari frábæru útgáfu, að hér má sífellt sjá hversu Sveinbjörn Egilsson útlagði snilldarstíl Snorra á latínu sem honum mun hafa verið lagin einna best af íslenskum mönnum síðari alda, eins og alkunna er, og þarf ekki að vitna langt til. Til að mynda segir svo, þegar Hrungnir vildi ná vopnum sínum, heininni: Hrungner ostendis, Thori Asieo, si inermem oceidisset, exiquo honori futurum: majus esse documentum fortiudinis, si audeat seeum Grjotungardis ad regionum fines dimieare: et imprudentissime feel, inquit, quod domi elypeum et eotem meam reliqui, quaæ siarma hoe loeo haberem, nune in arenam descenderemus.“
Ég læt þessar tilvitnanir nægja til þess að sýna hv. þingheimi hversu snilldarlega Sveinbjörn Egilsson heldur á latínunni þegar hann snarar á þetta göfuga mál sígildum ritum forfeðra vorra. En enn vil ég ítreka það, sem vikið var að áður en ég hóf að vitna í Snorra, að eins og langt þarf að sækja uppruna þess að ná vopnum sinum, þá þarf um hvert atriði, sem stafsetningu og málvísindum tilheyrir, þar sem deildin kveðst orðin æðsta akademía, að beita svipaðri heimildakönnun og helst þó meiri gjörhygli en ég hef á skömmum tíma getað viðhaft til að viða að mér þessum heimildum, vil þó aðeins geta þess í framhjáhlaupi, að ég var minntur á þessa merku sögu af Hrungni og hversu hann náði vopnum sínum, þótt lítt dygðu. Þegar ég leit í bók þessa ágæta manns W.P. Ker um miðaldabókmenntir, þar sem hann tilfærir einmitt dæmið um Þór, Óðin, Hrungni, Mökkurkálfa og Þjálfa sem einhverja snjöllustu gamansögu sem evrópskar miðaldabókmenntir hafi af að státa.
En áður en lengra er haldið að rekja þau fræðilegu rök, sem nauðsynlegt er að deildin hafi á takteinum þegar mál þetta verður endanlega afgr. úr hennar höndum, tel ég brýna ástæðu til að þdm. hv. og þeir, sem síðar líta í Alþingistíðindi og glöggva sig á þessum umr., hafi þar á takteinum grg. frá stafsetningarnefnd sem setti á sínum tíma þær stafsetningarreglur sem gilt hafa undanfarin þrjú ár og meiri hl. hv. d. hefur nú ákveðið með atkvgr. í gær að kollvarpa, að því er flm. sjálfir segja í því skyni að forðast glundroða í stafsetningarkennslu og stafsetningarmálum, og mun ekki meira öfugmæli hafa verið mælt innan þessara veggja síðan Alþingishúsið reis. En þegar upp var hafinn andróður gegn þeim stafsetningarreglum, sem settar voru í tveimur áföngum haustið 1973 og vorið 1974, og þá sérstaklega gegn afnámi z í skólastafsetningu, þá sendi stafsetningarnefnd, sem þá starfaði, frá sér grg. þar sem hún gerði grein fyrir sínum sjónarmiðum og svaraði helstu rökum sem fram höfðu komið gegn niðurstöðu hennar. Í þessari n. störfuðu, — það hefur áður verið rakið hér, en ég tel ástæðu til að það fylgi með í þessum umr., — prófessor Halldór Halldórsson, Baldur Ragnarsson kennari, Gunnar heitinn Guðmundsson skólastjóri, Indriði Gíslason kennari, og Kristinn Kristmundsson skólameistari, allt valinkunnir móðurmálskennarar, flestir ef ekki allir með áratuga farsæla reynslu í því starfi. En þegar deilur þessar hófust, sem enn standa hér í hv. d., hafði stafsetningarnefndin þannig skipuð þetta að segja, með leyfi hæstv. forseta, og birtist grg, þeirra í málgagni hæstv. menntmrh. um miðjan vetur 1973:
Yfirskrift yfir mál þeirra stafsetningarnefndarmanna er: „Um afnám z, rök stafsetningarnefndar.“ Og þessi grg. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Undanfarnar vikur hefur töluvert verið rætt opinberlega um afnám bókstafsins z úr íslensku ritmáli samkv. auglýsingu útgefinni af menntmrn. 4. sept. s.l. Allmikill tilfinningahiti hefur einkennt umr. þessar af hálfu andstæðinga þessarar ákvörðunar, og hefur þá viljað fara sem oftar að stórt hefur verið tekið til orða, en málefnaleg rök lent utan garðs. Að athuguðu máli teljum við undirritaðir, sem áttum sæti í Stafsetningarnefnd, því nauðsynlegt að almenningur kynnist nánar þeim rökum, sem lágu til þess að n. lagði til að bókstafur þessi yrði niður felldur úr íslenskri stafsetningu.
Í erindisbréfi n. er lögð áhersla á að till. hennar um breytingar á stafsetningarreglum skuli vera til einföldunar á stafsetningunni. Ljóst er, að breytingin eitt tákn (bókstafur) í stað tveggja um sama hljóð felur í sér einföldun. Ef slík einföldun er framkvæmanleg án umtalsverðrar skerðingar á gagnsæi hins ritaða máls, þ.e. þeim einkennum þess sem auðvelda mönnum að átta sig á skyldleika orða og orðmynda, virðist hún í fyllsta máta eðlileg og æskileg. Er afnám z réttlætanleg samkv. þessum forsendum? Við teljum hiklaust að svo sé. Bókstafurinn z hefur lengi táknað sama hljóð og s, athugun leiðir í ljós að ritun s í stað z dregur lítið sem ekki úr gagnsæi málsins, í langsamlega flestum tilvikum eru tengsl fyrrverandi z- orða við skyld orð og orðmyndir jafnljós eftir sem áður. Hér breytir engu um þótt t.d. einstöku sagnir falli saman í rithætti í lýsingarhætti þátíðar við slíka breytingu, svo sem í „draumurinn hefur ræst“ og „hann hefur ræst bílinn“. Samhengið gerir augljóst að í fyrri setningunni er um að ræða sagnorðið að rætast og í hinni síðari sagnorðið að ræsa. Ljóst er að samruni þessara sagnmynda veldur ekki heldur misskilningi í tali og það er að sjálfsögðu merkingarlegt samhengi orðanna sem einnig þar sker úr. Um orð, sem áður voru rituð með z í stofni, er svipað að segja. Gagnsæi þeirra skerðist sjaldan þótt s sé ritað í stað z. Flestum mun fljótlega ljóst af merkingarlegum orsökum að t.d. gæsla hlýtur að vera skylt gæta, neysla skylt neyta o.s.frv. þótt ekki sé þar rituð z. Má fullyrða að þau orð munu vandfundin þar sem z ein hefur verið það leiðarljós sem eitt tengdi þau við önnur skyld orð.
Rittáknið z hefur alltaf verið óþarft í íslensku. Það táknaði í elsta ritmáli að fram væri borið tannhljóð plús s (ts), en vitanlega var ekkert auðveldara en tákna hljóðasambandið með tákni tannhljóðsins og s í elstu handritum er ýmist ritað ts eða z. Elsti og frægasti málfræðingur íslendinga, höfundur Fyrstu málfræðiritgerðar Snorra-Eddu, vildi hafa þennan hátt á og var því andvígur z. Í ýmsum fornum handritum er z notuð á allt annan hátt en tíðkaðist eftir reglunum frá 1929, t.d. er algengt, þegar fram kemur á 13. öld, að rita z til að tákna miðmynd sagna og efsta stig lýsingarorða ef ekki fór beygingarending á eftir stigsendingunni. Og jafnvel í elstu skinnbókum er z rituð í eignarföllum nafnorðs og lýsingarorðs, ekki aðeins ef rót endar á tannhljóði, heldur einnig á nn eða 11. Málfræðinga greinir á um það, hvað þessi ritháttur táknar. Síðar verður fullkominn ruglingur á notkun z, t.d. í Nýa testamenti Odds Gottskálkssonar og Guðbrandsbiblíu.
Sérstakar reglur um notkun z komu ekki fram fyrr en í bók Rasmusar Kr. Rasks: Lestrarkveri handa heldri manna börnum, snemma á 19. öld. Allmiklar umr, urðu seint á öldinni um stafsetningu eftir framburði og bar þar hæst dr. Björn M. Ólsen sem vildi afnema z. Um aldamótin kom svo fram blaðamannastafsetningin svonefnda, en þar var mjög dregið úr notkun z og 1918 var hún alveg felld niður með auglýsingu frá ráðh. Jóni Magnússyni.
Af þessu yfirliti má sjá að lengi höfðu menn ekki verið á eitt sáttir um þennan staf og hélst það ósætti áfram. Fór svo að z-regla Rasks var aftur tekin upp 1929 með auglýsingu um íslenska stafsetningu í Lögbirtingahlaðinu 28. febr. það ár. Var reglum um ritun z síðan fylgt við kennslu í skólum þar til á þessu skólaári, nema hvað barnaskólar fengu undanþágu frá því að kenna þær 1934, svo sem nánar verður að vikið. Fullyrða má að reglurnar frá 1929 styðjast engan veginn við forna ritvenju og bera sumar hverjar vitni um sprenglærðan afkáraskap og kjánalæti. Það væri t.d. gaman að færðar yrðu sönnur á að borið hafi verið fram mæðist, en rithátturinn mæðzt er talinn eiga rætur í þessu formi, og fleiri dæmi mætti nefna um endurgerðar orðmyndir sem enga stoð eiga í heimildum né í heilbrigðri skynsemi. Og fullyrða má að reglurnar frá 1929 eiga enga forna hefð á bak við sig. Ef skrifa ætti z í samræmi við fornan rithátt á sama hátt og y, ý, ey — og ef menn vilja tvenns konar æ þyrfti að gera betri bæn og gerbreyta reglunum frá 1929, en hver yrði að bættari með því.
45 ár eru nú liðin frá því z var formlega innleidd í íslenska stafsetningu. Öll þessi ár hefur gífurlegum tíma verið varið árlega í efstu bekkjum skyldunámsstigs og að einkum í 3. og 4. bekk gagnfræðastigs, svo og í menntaskólum og öðrum framhaldsskólum, til kennslu í notkun þessa bókstafs. Um árangurinn geta kennarar í þessum skólum best vitnað. Meginþorri nemenda hefur aldrei náð verulegum tökum á notkun z- reglna, og jafnvel þeir, sem talist hafa góðir stafsetjendur, háfa þar iðulega gert villur, annaðhvort vegna ónógrar þekkingar eða í fljótfærni. Alkunnugt er að allstór hópur manna, sem að öðru leyti hefur kappkostað að vanda stafsetningu sína sem mest, hefur viljandi ekki notað z. Í raun hefur mátt skipta mönnum í tvo flokka eftir því hvort þeir hafa kunnað eða viljað nota eða ekki. Þessi staðreynd hefur svo leitt til þess að almennt hefur verið litið á z sem eins konar „lærdómsstaf sem aðeins örfáir hafa kunnað að nota rétt. Dagblöð, tímarit, sjónvarpstextar fyrir breytinguna og jafnvel prófarkalesnar bækur hafa sýnt og sýna í ríkum mæli handahofskennda notkun z sem vitnar ótvírætt um vanþekkingu og óvissu manna um notkun hennar. Stafsetningarnefnd taldi því miklu betra að fella z niður með öllu.
Því hefur verið haldið fram að z hafi aldrei notið sin til jafns við aðra stafi af því að barnaskólarnir hafi brugðist þeirri skyldu sinni að kenna reglur um þennan staf, en allt hefði fallið í ljúfa löð ef z hefði notið þar „jafnréttis“ við aðra stafi. Kennarar barnaskólanna tóku snemma þá stefnu að færast undan að kenna um z í þeim skólum og sóttu það mál svo fast að menntmrh. veitti undanþágu fyrir þeirri kennslu þegar árið 1934. Rök barnakennaranna voru m.a. þau, að ærið nóg verkefni barnaskóla væri að kenna um önnur atriði stafsetningar en z þar sem stafsetningarkennsla yrði aldrei unnin nema að nokkru leyti í þeim skólum, enda bæði nauðsynlegt og skynsamlegt að sinna þar fremur öðrum þáttum móðurmálsins. í annan stað sýndist mönnum að hin þyngri fræði um z væru ekki við hæfi barna þar sem nám þeirra krefðist meiri kunnáttu í málfræði en raunhæf væri á barnaskólastigi. En ekki var reynt að kenna z af því að þeim nemendum veitti ekki af að verja öllum sínum námstíma til annars sem talið var nauðsynlegra, enda með öllu óvíst um árangur af z-kennslu. Þessi umræddi bókstafur varð því til þess öllum bókstöfum fremur að nemendur skiptust í flokka, og getur slíkt komið illa við tilfinningar unglinga.
Margir kennarar eru þeirrar skoðunar, að heldur eigi að draga úr atafsetningarkennslu í skyldunámsskólum, en leggja þeim mun meiri áherslu á aðra þætti móðurmálsins. Mikið hefur verið rætt og ritað um stafsetningarstagl og ekki með öllu að ástæðulausu. Kennslu í stafsetningu hættir oft til að verða leiðigjörn og á eflaust sinn þátt í margnefndum námsleiða. Þess í stað vilja kennarar að nemendur noti orðabækur meira en áður og haldi þeim sið eftir að skóla lýkur. Nú fer það saman, að stafsetningarkennslan minnkar til mikilla muna við brottfall z, og einnig hitt, að z var „slæmur orðabókarstafur“. T.a.m. er auðvelt að ganga úr skugga um það í orðabók hvort rita skuli y í orði eða ekki. Allt öðru máli gegnir um z því hún var langoftast rituð í beygingarendingum sagna, en þær endingar eru ekki sýndar í almennum orðabókum.
Sumir halda því fram að auðvelt hafi verið að læra að skrifa z rétt, jafnvel mjög auðvelt, en fáir munu þeir nemendur og kennarar í unglinga- og gagnfræðaskólum sem aðhyllast þá skoðun. Og margur stúdentinn hefur kvatt menntaskólann ekki sterkur í þessum fræðum og þó átt langa glímu að baki. Áð vísu er oftast auðvelt að rita z rétt í stofni orða, og gat þó oft að líta z í orðunum reynsla, brennsla og í fleiri slíkum orðum. Í endingum sagna reyndi hins vegar allvíða til muna á kunnáttu í málfræði. Tvær orðmyndir voru oft samhljóða, önnur rituð með s, hin með z, t.a.m. lýsingarorð (eða atviksorð) og sagnorð: vænst-vænzt, gerst-gerzt, grennst-grennzt. Þá var sama sagnorðið ýmist með s eða z eftir því hvað hátt var um að ræða — og þó samhljóða: annast-annazt, hallast–hallazt, ætlast–ætlazt, eða t greindi að samhljóða orðmyndir: lézt– létzt, sezt–setzt, ázt–atzt. Einnig hefur margur nemandinn verið í vafa um hvar z skyldi standa í boðhætti miðmyndar: minnstu, keppstu, skjóztu, seztu o.s.frv. Þessi örfáu dæmi nægja til að gefa í skyn, að álitamál getur verið hvort auðveldara var að læra reglur um z en önnur þau atriði í íslenskri stafsetningu sem helst valda erfiðleikum. Það liggur í augum uppi hversu skynsamlegt hefði verið að halda öllum þessum fræðum fast að 12 ára börnum eða enn yngri nemendum.
Þess er áður getið að afnám z skerðir lítið sem ekki gagnsæi orða. Þó skal því ekki neitað að ritun z gaf að jafnaði nokkra beina vitneskju um stofn orða, sem reyndar liggur þegar fyrir af merkingarlegum orsökum, sbr. það sem áður er sagt. Z í orðinu vizka minnti á t í vit og z í stenzt á d í standa. En þessi vitneskja og áferðarskýrleikur var allt of háu verði goldinn að okkar hyggju. Ef sú stefna að sýna stofn orða eða uppruna sem skýrast í riti ætti að ráða mestu næðist meiri árangur í þessu sambandi með því að rita d, ð, t ásamt s í íslendska, heldstur, sættst. Þá bæri t.d. einnig rithátturinn breiðka, víðkar og gleiðka gleggra vitni um uppruna orðanna en sá ritháttur er nú tíðkast. Þótt sumar myndir nokkurra orða ólíkrar merkingar verði stafsettar eins eftir að z var aflögð er engu meiri hætta á misskilningi í riti en í mæltu máli þar sem framburður orðanna er og hefur verið hinn sami, og hefur áður verið að því vikið. Það er heldur engin ný bóla að óskyld orð séu rituð með sama hætti í íslensku máli. Eitt dæmi nægir. Merking eftirfarandi setningarbrots fer eftir framhaldinu, því merkingarlega samhengi sem orðið beðið stendur í: Hann hefur beðíð .... Halldór Laxness hefur ritað tugi bóka, og fáir munu þeir að sönnu vera sem telja sig skilja allt í bókum hans. Því hefur þó aldrei verið haldið fram að skilningur manna skerptist ef z væri sett í þessi frægu rit.
Þegar að því er horfið að rita s þar sem áður var z í íslensku máli kemur til álíta hvaða breytingar aðrar eru nauðsynlegar eða heppilegar. Til mála kæmi að rita d, ð, t ásamt s skv. uppruna: gætsla, handski, fariðst. En slíkur ritháttur hefur ekki tíðkast og er andstæður þróun málsins. Annar kostur er að skipta aðeins á s og z og hafast ekki annað að. Þá yrði t. a. m. ritað hitst, sætst og stytst. Um þann rithátt er það að segja að hann er hvorki í samræmi við framburð né stofna þessara orða: hitt, sætt og stutt. Hvort tveggja yrði þá talið rangt: að rita hist, sæst og styst í samræmi við framburð og hittst, sættst og styttst með hliðsjón af stofni. Ef þessi leið yrði valin er hætt við að margur námsmaðurinn þættist litlu bættari og ritvillur yrðu álíka margar og á dögum z.
Stafsetningarnefnd valdi þann kostinn að láta framburð ráða: rita hist, sæst, styst o.s.frv. Sá ritháttur er langauðveldastur því þá má styðjast við auðlærða reglu: Aldrei skal rita t eða td næst á undan endingunni st.
Þeir, sem 1929 sömdu reglur þær um z sem gilt hafa þar til í sept. s.l., ákváðu að rita ekki z á eftir s eða ss. Við lýsingarhátt sagna, sem enda á st eða sst í germynd, var í miðmynd bætt endingunni st: festst, lýstst, hreestst, kysstst.
Rithátturinn feazt, lýszt, hresszt og kyaszt hefði híns vegar verið í samræmi við aðrar reglur um z. Ekki verður sagt að endingin stst fari vel í íslensku máli, enda hefur hún vart verið borin fram, nema þá að stafsetningin hafi leitt til einhvers fikts í því efni. Menn hafa sagt orðin fest og festst með sama hætti. Í námi þvældist þessi stafsetning fyrir nema nemandinn kynni glögg skil á germynd og miðmynd. Stafsetningarnefnd lagði því til, að „einfalt“ st yrði látið nægja í báðum myndum í samræmi við framburð.
Stafsetning, sem mjög tekur mið af uppruna, gerir ávallt þá kröfu að menn viti svo og svo mikið um málið, málfræði þess og form. Þar eru z-reglur síður en svo undantekning. Þær krefjast drjúgs tíma við fremur ófrjótt nám. Reynslan hefur aftur á móti sýnt að færni í z-reglum og stafsetningu almennt er ekki einhlít til þess að menn geti kallast sendibréfsfærir, geti stílað skammlaust mál sitt eða komið fyrir sig orði svo að viðunandi sé. Stafsetning er ekki málið sjálft, heldur búningur þess í riti, kunnátta í stafsetningu tryggir engan veginn málhæfni. Með því að rýmka nokkuð um hina formbundnu stafsetningu vinnst tími til að sinna betur málinu sjálfu og notkun þess. Af þeim sökum og öðrum, sem nú hafa verið greindar, er það því skoðun okkar, að afnám z úr íslensku máli sé spor í rétta átt, átt til málverndar og málræktar. Vegna ýmissa ummæla og umr., sem spunnist hafa um niðurfellingu z, höfum við undirritaðir talið rétt, eins og getið var í upphafi, að birta helstu röksemdir okkar um þessa ákvörðun og teljum málið hér með útrætt af okkar hálfu. Halldór Halldórsson, Baldur Ragnarsson, Gunnar Guðmundsson, Indriði Gíslason, Kristinn Kristmundsson.“
Þessi grg. stafsetningarnefndar er, eins og menn sjá, mjög gagnorð. Þar eru hvergi málalengingar um einstök atriði, heldur leitast nm. við að setja fram í stuttu og skýru máli sjónarmiðin sem lágu því til grundvallar að þeir ákváðu að leggja til haustið 1973 að sú breyting yrði þá þegar gerð á stafsetningarreglum að z yrði felld niður í skyldustafsetningu í skólum. Sú málaleitan n. barst mér í hendur í ágúst 1973 og var á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Ég leyfi mér hér með að skýra yður frá, herra menntmrh., að n., sem þér skipuðuð með bréfi, dags. 11. maí 1973, til þess að endurskoða núgildandi stafsetningu og greinarmerkjasetningu, hefur starfað allmikið í sumar. N. hefur komist að niðurstöðu um ýmis atriði í væntanlegum till. sínum, en vill ekki, fyrr en hún hefur athugað málið betur, gera nú nema eina till. til yðar. Í n. varð samkomulag um að stafurinn z skuli, ef menntmrn. samþykkir, vera brottnuminn úr íslenskri stafsetningu og í hans stað skrifað s. Í því sambandi ber þó vegna fyrri reglna að athuga eftirfarandi:
1. Í stofnum fallorða skal tannhljóð haldast á undan s hvort sem svo er borið fram eður el, t.d. lofts, lats; lands, skorts o.s.frv.
2. Í orðstofnum skal tannhljóð haldast á undan s ef svo er fram borið, t.d. reiðstu, gleðstu, hefur mæðst, græðst, dáðst; greiðsla, breiðsla o.s.frv.“
(Forseti: Má ég spyrja hv. ræðumann hvort hann eigi mikið eftir af ræðu sinni?) Hæstv. forseti. Mig langar að lesa þetta bréf til loka, en ég mun geyma mér þangað til síðar frekari málsatriði sem ég á mörg ótalin enn. (Forseti: Hugmyndin er að hafa fund í Sþ. núna kl. 4 og fresta þessum fundi.) Það er aðeins hálf síða sem mig langar að lesa áður en ég fresta máli mínu. (Forseti: Þm. heldur áfram ræðu sinni.)
„3. Ef stofn endar á tt skal því sleppt hvaða orðflokk sem um er að ræða, ef endingin st fer á eftir, t.d. (hefur) sest, flust, breyst, hist, stystur (af stuttur).
4. Ef lýsingarháttur þátíðar í germynd endar á st eða sst skal miðmyndarendingu sleppt, t.d. (hefur) leyst (af leysast), breyst (af breytast), kysst (af kyssast).
Ef menntmrn. er samþykkt ofangreindri breytingu telur n. eðlilegt að það tilkynni skólum um þetta atriði, svo að það geti komið til framkvæmda á næsta vetri. Þyrfti slík tilkynning að koma fyrir 15. september í haust.“
Og undir þetta bréf ritar, fyrir hönd stafsetningarnefndar Halldór Halldórsson prófessor. — [Frh. — Fundarhlé.]