13.05.1976
Efri deild: 106. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4142 í B-deild Alþingistíðinda. (3473)
58. mál, veiting ríkisborgararéttar
Frsm. (Ingi Tryggvason):
Herra forseti. Frv. það um veitingu ríkisborgararéttar, sem hér liggur fyrir, hefur verið rætt á fundum allshn., en eins og að undanförnu voru þau vinnubrögð viðhöfð til að flýta fyrir afgreiðslu málsins að formönnum allshn. Ed og Nd. var falið ásamt skrifstofustjóra Alþ. að athuga frv., athuga umsóknir, sem fylgdu því, og umsóknir þær sem bárust eftir að frv. var lagt fram.
Í frv. sjálfu eru till. um 18 erlenda ríkisborgara sem sækja um íslenskan ríkisborgararétt, og er n. sammála um að mæla með því að þeir fái umbeðinn ríkisborgararétt. En auk þess flytur n. á sérstöku þskj. till. um að 37 erlendum ríkisborgurum til viðbótar verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Ágreiningur varð ekki, hvorki í undirnefnd né allshn. Ed., um afgreiðslu umsókna.
Ég tel rétt að vísa hér til þeirra reglna, sem prentaðar eru með nál. um veitingu ríkisborgararéttar, en þær reglur, sem n. hefur unnið eftir eru í stuttu máli þessar: Í fyrsta lagi hafi umsækjandi óflekkað mannorð og sé að áliti tveggja valinkunnra manna starfhæfur og vel kynntur þar sem hann hefur dvalist. Útlendingar, aðrir en Norðurlandabúar, hafi átt lögheimili í 10 ár hér á landi, en Norðurlandabúar 5. Karl eða kona, sem giftist íslenskum ríkisborgara, fær ríkisborgararétt eftir 3 ára búsetu frá giftingu, enda hafi hinn íslenski ríkisborgari haft ríkisborgararétt ekki skemur en 5 ár. Erlendir ríkisborgarar, sem eiga íslenskan ríkisborgara að foreldri, fá ríkisborgararétt eftir 3 ára búsetu ef annað foreldrið er Norðurlandabúi, annars eftir 5 ár. Íslendingar, sem hafa gerst erlendir ríkisborgarar, fá ríkisborgararétt eftir eins árs búsetu, og íslensk kona, sem misst hefur ríkisfang sitt við giftingu, en hjónabandinu slitið og hún hefur öðlast heimili hér, fær ríkisborgararétt á fyrsta dvalarári hér, enda lýsi hún því yfir að hún ætli að dveljast áfram í landinu, og gildir hið sama um börn sem hafa náð 16 ára aldri.
Að öðru leyti tel ég ekki, herra forseti, ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál.