13.05.1976
Efri deild: 107. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4166 í B-deild Alþingistíðinda. (3510)

219. mál, Háskóli Íslands

Frsm. (Axel Jónsson):

Herra forseti. Menntmn. þessarar hv. d. hefur haft þetta mál til meðferðar, og eins og fram kemur á þskj. 748 leggur n. til að frv. verði samþ. eins og það kemur nú frá Nd., en fjarverandi afgreiðslu málsins voru þeir Steingrímur Hermannsson, Jón Árm. Héðinsson og Ingi Tryggvason.

Eins og hæstv. menntmrh. tók fram í framsöguræðu sinni, þá er hér fyrst og fremst um þrjár breytingar að ræða á gildandi lögum um Háskóla Íslands: Í fyrsta lagi rektorskjör og stjórn deilda, í öðru lagi stofnun nýrrar félagsvísindadeildar og í þriðja lagi breytt próffyrirkomulag.

Hér er gert ráð fyrir allmiklu umfangsmeiri kosningu rektors heldur en áður var, þ.e.a.s. að stúdentar taka nú að meira leyti þátt í rektorskjöri en áður og einnig þeir prófessorar sem hafa verið settir, en áður var það bundið við að menn væru skipaðir. Eins og hæstv. menntmrh. tók fram varðandi stofnun nýrrar deildar, þá á það ekki að leiða af sér aukinn kostnað. Þessar greinar voru áður í öðrum deildum, eins og raunar kemur fram í aths. við frv. Í þriðja lagi er það svo varðandi próffyrirkomulagið. Eins og hæstv. ráðh. tók fram í sinni framsöguræðu mun sú breyting, sem hér er lögð til leiða af sér nokkurn sparnað, eins og hann tók fram 7–8 millj.

Ég ætla að leyfa mér, herra forseti, að víkja aðeins að því, sem segir um þetta nál. frá menntmn. Nd., en þar segir svo orðrétt, með leyfi forseta:

„N. hefur leitað álits einstakra háskóladeilda um frv. svo og stúdentaráðs og fengið til viðtals rektor Háskóla Íslands, Guðlaug Þorvaldsson prófessor. Það skal tekið fram að eigi bárust álitsgerðir frá öllum háskóladeildum, en það er sammerkt með þeim álitsgerðum, sem bárust, að deildir Háskólans lýsa sig í meginatriðum samþykkar efni frv. Þó kemur í ljós að innan Háskólans eru að einhverju leyti skiptar skoðanir um prófdómarafyrirkomulagið. Samt virðist einsýnt að mjög almennt á sú stefna frv. fylgi að fagna að fækkað verði þeim tilfellum þar sem prófdómarar eru skipaðir til starfa. Jafnframt er lögð áhersla á að kennarar Háskólans geti óskað skipunar prófdómara þegar þeim þykir sérstök ástæða til. Hefur nokkur ágreiningur staðið um skýrleik orðalags frv. um það tiltekna atriði. Til að taka af tvímæli leggur menntmn. til að orðalagi 10. gr. 2. mgr. í. f. verði breytt svo að í staðinn fyrir orðalagið: „Einnig getur kennari, telji hann til þess sérstaka ástæðu, óskað skipunar prófdómara í einstöku prófi“ komi: Einnig getur kennari óskað skipunar prófdómara í einstakri prófgrein eða prófþætti ef hann telur ástæðu til þess.“

Þetta var sú breyting, sem menntmn. Nd. gerði á frv. og kemur þar mjög til móts við þær óskir sem fram um þetta höfðu komið í umsögnum frá hinum einstöku deildum Háskólans.

„Með þessu orðalagi ætti að vera ljóst að kennari á þess kost að óska skipunar prófdómara til þess að dæma um úrlausnir allra stúdenta í hlutaðeigandi prófgrein eða prófþætti, en ekki einungis eins stúdents eða fárra, eins og orðalag frv. gaf tilefni til að ætla.

Stúdentaráð er meðmælt samþykkt frv. Forseti heimspekideildar, Bjarni Guðnason prófessor, gerir þá sérstöku aths. við 1. gr. frv., að sér finnist að svonefndir „hlutadósentar“ og „hlutalektorar“ í læknadeild, sem skili 37% vinnu til Háskólans, ættu ekki að hafa atkvæðisrétt við rektorskjör.“

Ég sé ekki ástæðu til þess, að vitna frekar til umsagna þeirra sem fyrir liggja frá hinum ýmsu deildum Háskólans. Ég hafði hugsað mér að fá Guðlaug Þorvaldsson háskólarektor á fund n., en þá var hann erlendis. En við höfðum þessar umsagnir.

Ég vil aðeins láta þess getið að eftir að menntmn. gekk frá í þessu áliti hafði prófessor Ólafur Björnsson samband við mig og lýsti í fyrsta lagi óánægju sinni yfir því heiti sem hin nýja deild fengi, þ.e. félagsvísindadeild, og hann var einnig, eins og kom raunar fram í umsögn viðskiptadeildar, óánægður með ákvæði frv. um prófdómarafyrirkomulagið. En með þeirri breyt. sem gerð var á frv. í Nd. og eins og það liggur nú fyrir, þá var hann þó ánægðari með það eins og það er nú. — Ég vildi láta þessa getið, herra forseti, en eins og fram er tekið á þskj. 748 leggur menntmn. til að frv. verði samþ. eins og það liggur nú fyrir frá Nd.