13.11.1975
Sameinað þing: 15. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 534 í B-deild Alþingistíðinda. (354)
Umræður utan dagskrár
Albert Guðmundsson; Herra forseti. Ég skal ekki blanda mér í þær umr. sem virðast vera að hefjast hér um þau ummæli sem Lúðvík Jósepsson kvað hafa haft eða ekki haft hér á Alþ. í gær. En þar sem vegið hefur verið að pólitískum andstæðingi mínum bæði í borgarstjórn og annars staðar, þá vil ég að það komi fram að ég hef hvorki reynt Alfreð Þorsteinsson fréttamann að siðleysi né skorti á almennum umgengnisvenjum í hans pólitíska starfi. Hafi eitthvað það staðið í Tímanum, sem ekki var sagt hér í gær, þá er það áreiðanlega vegna mistaka. Ég vil enn fremur segja að það er ástæðulaust að ráðast á þann hátt, sem hér hefur verið gert, á þá blaðamenn sem hér hafa verið þingfréttaritarar. Ég hef lesið þingfréttir eins og aðrir þm. og ekki fundið þá fyrr en nú ástæðu til að gera aths. við það.