13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4180 í B-deild Alþingistíðinda. (3587)
177. mál, námslán og námsstyrkir
Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Þetta frv. var lagt fram í Ed. og hefur fengið afgreiðslu þar. Það hefur tekið nokkrum breytingum. Geri ég út af fyrir sig engar aths. við þær.
Það er ekki ofmælt að lög um námslán og námsstyrki hafi verið nokkuð lengi í skoðun, og ætla ég ekki að rekja þá sögu hér. Gildandi löggjöf gerir ráð fyrir því að námsaðstoð sé að mestu leyti veitt í formi lána. Áður var þessu meira skipt í námslán og námsstyrki, en reynslan hefur orðið sú að lán þau, sem veitt eru samkv. gildandi lögum verða í framkvæmd sem styrkir væru þar sem lánin hafa verið óverðtryggð og greiðslufrestur langur. Af þessu leiðir að Lánasjóðurinn, sem svo er nefndur í daglegu tali, hefur yfir að ráða mjög takmörkuðu eigin fé. Þetta hefur orðið því tilfinnanlegra sem gífurleg aukning hefur orðið á eftirspurn eftir námslánum, sem er mjög eðlilegt þegar af þeirri ástæðu að lánin hafa í reynd nánast orðið styrkir. Þetta ár hefur ríkt mjög erfitt ástand um afgreiðslu úr sjóðnum, afgreiðslur hafa tafist æ ofan í æ til mikils óhagræðis fyrir lántakendur og auðvitað um leið alla þá sem að þessum málum hafa unnið.
Þessi þróun um viðgang lánasjóðs ísl. námsmanna gengur þvert á þann tilgang sem fólst í setningu gildandi löggjafar, eins og hún var formuð í byrjun, þ.e. 1961. Lesa má í þskj. frá þeim tíma að að því hefur verið stefnt að Lánasjóðurinn yrði nokkurn veginn sjálfum sér nógur á árinu 1978. Ég eyði ekki orðum að því hversu langt er frá að þetta mark hafi náðst því að eins og ég áðan sagði er eigið ráðstöfunarfé sjóðsins í dag, tveimur árum áður en þetta mark átti að nást, næsta lítið, það er því óhætt að segja að löggjafinn hefur verið miklu seinni en æskilegt hefði verið og nauðsyn bar til að taka þessa löggjöf til endurskoðunar og breyta henni til samræmis við fengna reynslu.
Megintilgangur þessa frv. er tvíþættur: annars vegar að tryggja það að allir námsmenn, sem þess þurfa, geti fengið fullnægjandi úrlausn sinna mála, og í öðru lagi og raunar tvinnast það algerlega saman að byggja upp Lánasjóðinn og efla hann þannig að hana geti að verulegu leyti, þegar tímar líða fram, byggt á eigin fjármagni, þó ég geri hins vegar ráð fyrir því að ævinlega þurfi að koma til mjög veruleg framlög úr ríkissjóði til námsaðstoðarinnar.
Ég held að það sé tæplega ástæða til þess að ég fari hér nú við 1. umr. í síðari d. að fara ítarlega inn á einstök atriði þessa frv. Meginbreytingarnar eru kannske í því fólgnar að það er tekin upp verðtrygging á lánunum, að endurgreiðslukjörin eru að verulegu leyti bundin við tekjur lánþega að námi loknu, en þó með ákvæðum um lágmarksendurgreiðslur, Ég held að í þessum atriðum felist meginbreytingarnar. En sem sagt, með tilliti til þess að við 1. umr. málsins í fyrri d. flutti ég nokkuð ítarlega framsöguræðu og rakti efni einstakra greina o.s.frv. og sú ræða hefur þegar verið prentuð og er komin í Alþt. á borð sérhvers alþm., leyfi ég mér að vera fáorður við þessa 1. umr. hér í síðari d. og fjölyrði ekki frekar um málið, en legg til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. menntmn.