13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4191 í B-deild Alþingistíðinda. (3594)

Umræður utan dagskrár

Karvel Pálmason:

Hæstv. forseti, Ég hef greinilega ekkert mælt um of þegar ég sagði áðan að mér virtist þetta mál hafa verið talsvert hitamál. A.m.k. virðist mér að hv. 9. þm. Reykv. hafi hitnað heldur betur í hamsi við það að ég talaði þó þau saklausu orð sem ég sagði áðan í minn beiðni, hvað þá hefði ég nú tekið upp efnislegar umr. um málið eins og hann gerði, hvað hefði þá gerst?

Ég tók það fram að ég væri ekki kunnugur þingsögunni, en hv. 9. þm. Reykv, bætti úr því að því er hann sjálfan varðaði. Hann sagði að í gær hefði verið gert samkomulag við formann stærsta stjórnarandstöðuflokksins um að kvöldfundur yrði ekki í gærkvöld og sagði að það væri augljóst að mér væri ekki kunnugt um þetta samkomulag. Það er alveg rétt. Mér er ekki kunnugt um þetta samkomulag. Hv. 9. þm. Reykv. er innar í því búri en ég greinilega hvaða samkomulag er gert á milli Alþb. annars vegar og stjórnarflokkanna hins vegar eða hæstv. forsela. En ég skildi hann svo að það væri ekki einu sinni að þarna væri samkomulag við Alþfl.. Það kom ekki fram. Þetta var bara samkomulag Alþb. annars vegar og hæstv. forseta hins vegar. (Gripið fram í.) Má vera, það kemur þá fram núna.

Ég sagði ekki áðan að ég teldi að óhæfilega langur tími hefði farið í þetta mál. Ég sagði að þetta mál eitt hefði verið tekið út úr að því er varðar önnur mál en þau sem hæstv. forsrh. óskaði eftir að færu í gegn. Og ég ítreka það og því bið ég hv. 9. þm. Reykv, að taka eftir, að ég var á engan hátt — og tók það fram — á engan hátt að reyna bregða fæti fyrir að þetta mál fengi eðlilega meðferð í þinginu og hlyti eðlilega afgreiðslu, síður en svo. Hann sagði áðan að hann minntist þess ekki á sinni löngu þingmannsævi að hér hefði verið haldið uppi málþófi um eitt einasta mál til þess að hindra að það næði fram að ganga. Nú er það orðið mjög sjaldan — aldrei, sagði hv. þm. áðan. Ég vil minna þennan hv. þm. á að það er ekki lengra síðan en vorið 1974 að þetta gerðist, og það gerði meðreiðarsveinn hv. 9. þm. Reykv. sem flm. að þessu frv., hv. þm. Sverrir Hermannsson. Þá hélt hann hér uppi málþófi, talaði linnulaust í fimm og hálfan klukkutíma vegna þess að hann var að gera tilraun til þess að hindra að ákveðin mál færu í gegn sem ekki tókst. (Gripið fram í.) Ég þykist vita að þó að einhverjum hv. þm. úr stjórnarandstöðunni dytti í hug að reyna að halda hér uppi málþófi til þess að koma í veg fyrir að þetta mál nái fram að ganga, þá fer málið í gegn eigi að síður, mér er það alveg ljóst.

En það, sem vakti fyrir mér, var þetta, að ég tel að hér sé a.m.k. um óvenjulega aðferð að ræða til þess að mál nái fram að ganga. Ég vænti þess að hv. 9. þm. Reykv. sé mér sammála um að þetta þmfrv. hefur hlotið aðra og kannske veglegri meðferð heldur en mörg önnur þmfrv. frá hv. þm.

Þetta var fyrst og fremst það sem ég vildi gera aths. við í máli hv. 9. þm. Reykv. Ég ítreka eindregið ósk mína um það að hæstv. forseti breyti þeirri ákvörðun sinni sem hann tilkynnti í upphafi fundar í dag um fund hér í hv. d. í kvöld eða nótt um þetta mál vegna þeirra ástæðna sem ég greindi frá áðan. Ég vænti þess að við því verði orðið. Ég hef ekki, a.m.k. ekki oft, óskað eftir því að málum væri frestað eða umr. vegna þess að ég hafi ekki getað verið við þær staddur, en núna stendur svona á, því miður. Ég hefði ekkert á móti því að sitja hér í kvöld eða nótt undir umr. um þetta mál. En því miður mun ég líklega ekki geta það ef við þetta verður haldið. Og hvað sem um það má segja að helmingur þingflokks SF hafi haldið hér uppi málþófi og umr. og teygt þetta mál í marga daga í umr., þá sýnir það bara einn af þeim fjölmörgu hæfileikum sem innan þessa þingflokks búa, að það er ýmislegt hægt að gera þó að þingflokkar séu litlir, umfram það sem virðist vera í sumum sem eru stærri, þannig að það ættu hv. þm. að íhuga, þeir sem gagnrýna mjög þennan hv. þm., Magnús T. Ólafsson, fyrir ósæmilegar aðfarir hér til að hindra mál. (Forseti: Ég bið hv. ræðumann um að ljúka máli sínu mjög skjótt. Ég hef ekkert við það athuga að hér sé rætt um meðferð mála, en slíkar umr. verða að vera mjög stuttorðar.) Já, ég skal verða við því, hæstv. forseti. En ég tel að hv. 9. þm. Reykv. hafi gefið tilefni til þess að ég varð þó þetta langorður. Það er hans sök þá, en ekki mín, og það hefði átt að bitna á honum, en ekki mér. Ég ætlaðist ekki til þess í upphafi að verða langorður eða hefja hér upp almennar umr. um þetta mál, enda var ég mjög stuttorður, og ég skal ljúka máli mínu nú þegar, hæstv. forseti. En ég vil ítreka þessa ósk mína, að hæstv. forseti verði við þeirri beiðni minni að fundur í d. í kvöld verði ekki haldinn vegna þessara ástæðna sem ég hef þegar greint frá. Og ég vil aðeins bæta því við, áður en ég lýk máli mínu, að þó að hv. 9. þm. Reykv. sé gjörla kunnugt um það sem gerst hefur milli Alþb. annars vegar og hæstv. forseta hins vegar, þá er ýmsum hv. þm. Alþb. ekki kunnugt um þetta loforð eða samkomulag. En vera má að samböndin séu betri í ýmsar áttir heldur en til eigin þm. flokksins.