13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4196 í B-deild Alþingistíðinda. (3601)

91. mál, umferðarlög

Frsm. minni hl. (Sighvatur Björgvinsson):

Virðulegi forseti. Ég hefði vænst þess að bættar umferðarslysavarnir yrðu kannske frekar til þess að skila bifreiðaeigendum árangri heldur en tryggingarfélögunum, en þar greinir mig auðsjáanlega á við minn ágæta meðnm., hv. þm. Pál Pétursson.

Það er talsverður ósiður þegar tiltölulega stuttar umsagnir um ákveðin mál berast til þn. að í nál. skuli ekki vera getið um hvers eðlis þessar umsagnir eru, og þá því fremur þegar svo vill til að álit meiri hl. n. stingur gersamlega í stúf við umsagnir þær sem n. hafa borist.

Hv. þm. Páll Pétursson, sem mælti hér fyrir meiri hl. allshn., lagði á það mikla áherslu, enda er það gert í nál. meiri hl., að það sé alls ekki ástæða til þess að ef þessi breyting verði samþ., þá geti tryggingarfélög notað hana til þess að rökstyðja beiðnir um iðgjaldahækkanir. Hins vegar er hvorki í framsögu n. né í nál. meiri hl. svo mikið sem orði að því vikið að n. hefðu borist umsagnir um þessi mál. Og hverjar skyldu nú umsagnirnar vera?

Önnur umsögnin er frá Sambandi ísl. tryggingafélaga, þeim aðilum sem hv. þm. Páll Pétursson sagði að mundu alls ekki geta rökstutt beiðnir um iðgjaldahækkanir vegna þessa gjalds. Og hvað segir Samband ísl. tryggingafélaga í umsögn sinni? Það segir svo orðrétt, með leyfi forseta:

„Vér teljum því eðlilegra að veita Umferðarráði fé á fjárlögum svo að fylgst verði með þörfum ráðsins á hverjum tíma og hvernig fé þess er ráðstafað. Ef aftur á móti til samþykkis þessa frv. kemur óskum vér eftir því að tekið verði tillit til þessarar prósentu við ákvörðun iðgjalda.“

Hér setur Samband ísl. tryggingafélaga fram þá kröfu að ef frv. þetta verði samþykkt og þetta gjald lagt á, þá verði því velt beint yfir á tryggjendur bifreiða með hækkuðum iðgjöldum. Sjálfsagt verða tryggingafélögin ekki í neinum vandræðum með að rökstyðja óskir sinar um þau efni við a.m.k. núv. hæstv. ríkisstj. ef marka má verk hennar í sambandi við slík mál þar sem hún er nýbúin að veita tryggingafélögum 60% hækkun á iðgjöldum af ábyrgðartryggingum.

En það var ekki aðeins Samband ísl. tryggingafélaga sem sendi allshn. umsögn um þetta mál sem meiri hl. n. og frsm. meiri hl. þótti af einhverjum ástæðum ekki þurfa að geta um. Landssamband vörubifreiðastjóra sendi einnig allshn. umsögn um þetta mál, dags. 16. mars 1976. Þar segir m. a. svo, með leyfi forseta:

„Efni frv. er á þá leið að viðurkennd vátryggingafélög skuli greiða 1.5% af iðgjaldatekjum vegna ábyrgðartrygginga ökutækja til umferðarslysavarna er renni til Umferðarráðs. Landssambandið telur út af fyrir sig brýna nauðsyn á að efla umferðarslysavarnir og auka fjárframlög til Umferðarráðs. Á hinu leitinu álítur sambandið skattálagningu í frv. ósanngjarna því að hún muni einfaldlega leiða til þess að iðgjöld bifreiðaeigenda verði hækkuð og verði þeir þannig hinir raunverulegu skattgreiðendur þótt að formi til sé lagt á vátryggingafélögin.“

Hér liggur sem sé fyrir n. staðfestur vitnisburður í umsögn tveggja aðila, annars vegar neytendaaðila, ef svo má segja, tryggjanda, þar sem er Landssamband vörubifreiðastjóra, og hins vegar þess sem þjónustuna veitir og á að skattleggja með þessu frv. þar sem er Samband ísl. tryggingarfélaga. Báðir þessir aðilar, bæði tryggjendurnir og hinir tryggðu, lýsa því yfir við allshn. að verði gjaldtaka þessi samþykkt, þá muni hún leiða einfaldlega til þess að gjaldinu verði velt beint yfir á tryggjendur í formi hækkaðra iðgjalda.

í ljósi þessa tel ég að það þurfi talsverða kjarkmenn til þess að segja, eins og meiri hl. allshn. gerir í áliti sínu, að það sé alís ekki ástæða til að ætla að tryggingafélögin geti rökstutt beiðnir um iðgjaldahækkanir vegna þessa gjalds, enda uggir mig að þeir meirihlutamenn í allshn. séu svolítið blendnari í þeirri trú heldur en fram kemur í bæði því, sem frsm. n. meiri hl. hefur hér sagt, og því, sem í nál. stendur.

En það er ekki aðeins í þessu fólgin ósanngjörn hækkun til bifreiðatryggjenda. Ég tel hana ósanngjarna vegna þess að ég tel að það sé fyrirséð að ef þessi breyting verður samþ., sem frv. gerir ráð fyrir, þá sé um að ræða nýja skattlagningu á bifreiðatryggjendur í viðbót við þær háu iðgjaldahækkanir sem nýlega hafa komið. En það er ekki aðeins það sem gerir það að verkum að við í minni hl. n. leggjum til að frv. verði fellt. Okkur þykir einnig mjög óeðlilegt að sá háttur sé hafður á um starfsemi umferðarráðs að því sé ætlaður markaður tekjustofn. Okkur finnst að þetta ráð eigi að lúta sömu reglum og flestar aðrar svipaðar stofnanir, að leggja fyrir fjvn. og Alþ. till. sínar og hugmyndir um fjárveitingar og till. um það og hugmyndir hvernig með það fé eigi að fara og síðan taki fjvn. og Alþ. afstöðu til beiðna n. um fjárveitingar eins og vaninn er að gert sé um flestar hliðstæðar stofnanir sem slíkum og þvílíkum verkefnum sinna og raunar öllum öðrum þeim verkefnum sem sérstakar stofnanir eru settar til þess að hafa umleikis fyrir ríki og ríkissjóð eins og hér er um að ræða. Okkur finnst það mjög óeðlileg leið, þó við viljum allt gera til þess að efla umferðarslysavarnir og m.a. að auka ráðstöfunarfé Umferðarráðs, þá finnst okkur mjög óeðlilegt að til þess ráðs sé gripið í því skyni sem gert er hér, að því sé ætlaður fyrir fram einhver tekjustofn sem breytist svo með tilliti til hækkunar eða lækkunar eftir ákvörðunum um iðgjöld á ábyrgðartryggingum bifreiða, en hins vegar sé ekkert tillit í þessu sambandi tekið til þeirra verkefna, sem Umferðarráð er að vinna, né heldur að þeir sem fara með með opinbert fé, eins og fjvn. og Alþ., eigi rétt til þess varðandi Umferðarráð eins og aðrar slíkar og þvílíkar stofnanir að fá að sjá frá ráðinu till. þess og hugmyndir um, hvernig það ætli að verja því fé sem það er að biðja um, og Alþ. og fjvn. að sjálfsögðu að taka síðan afstöðu til þeirra beiðna. Þessi tvö atriði, sem ég hef hér lýst, valda því að minni hl. n. leggur til að frv. þetta verði fellt.