13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4203 í B-deild Alþingistíðinda. (3606)
91. mál, umferðarlög
Frsm. meiri hl. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Mér fannst þetta nú langsótt röksemd hjá hv. þm. Sighvati Björgvinssyni með freigáturnar. Honum vex þetta mál mjög í augum sýnilega. Hann hefði átt að minnast þess að um daginn var til umr. einmitt hugmynd um að afla fjár til Landhelgisgæslunnar og þá höfðu menn eitt og annað við þá hugmynd að athuga. M.a. fór svo að menn fá líklega kauphækkun út á það þegar öll kurl koma til grafar. Ég hef hið besta traust á hv. fjvn. Alþ. Það má ekki skilja orð mín öðruvísi. Ég held að það sé allt í lagi að létta af henni því erfiði að meta þarfir Umferðarráðs, og ég held að það sé líka allt í lagi að létta Umferðarráði af ríkiskassanum og þar með úr vösum almennings og láta vátryggingafélögin fóðra Umferðarráðið. Það er nú þegar að þessu nokkurt fordæmi, því að eitt tryggingafélag, Samvinnutryggingar, ver talsverðu fé til umferðarslysavarna. Þær hafa á sínum snærum eitthvað sem heitir klúbbarnir Öruggur akstur. Ég er alveg viss um t.d. að hv. 5. þm. Vestf., sem er ákaflega viljugur og duglegur félagsmálamaður, bæði bindindismaður, þingflokksformaður og ég veit ekki hvað og hvað, ætti sér virkilega góða daga í slíkum klúbbi.