13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4208 í B-deild Alþingistíðinda. (3609)
258. mál, kjarasamningar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Ég mun flytja mjög stutta ræðu um þetta stóra mál. Hún er aðeins til þess að gera grein fyrir því að ég hef gengið frá brtt. sem mig langar til að biðja hv. fjhn.-menn að gera svo vel að hafa í huga við meðferð málsins nú fyrir 2. umr. Ég skýri frá þessu nú við 1. umr. til þess eins að spara tíma þingsins. Ég held að það geti verið hagkvæm vinnubrögð að slík till. komi strax til athugunar hv. nefndar.
Þessi till. mín er við 24. gr. frv., 1. mgr. hennar, og hljóðar svo:
„Í stað orðanna „helmingur atkvæðisbærra ríkisstarfsmanna“ komi: 3/4 atkvæðisbærra ríkisstarfsmanna. — Til vara: 65% atkvæðisbærra ríkisstarfsmanna.“
Sú hugsun, sem liggur að baki þessari till. minni, er hugsun sem áreiðanlega hefur leitað á marga árum saman. Þegar til deilna kemur á vinnumarkaði, þá er það því miður oft svo að þar taka of fáir ákvarðanir fyrir of marga. Ég velt að forustumönnum launþegasamtaka er það mikið kappsmái að bæta kjör meðlima sinna samtaka, og það er að sjálfsögðu viðleitni sem ber að stuðla að að takist. Ég er þeirrar skoðunar að hún nái bestum árangri með því að stuðla að því að launþegarnir sjálfir hugsi um kjör sín og taki þátt í að ákveða þau, m.a. með því að ganga út frá því að einstakir félagsmenn taki í ríkara mæli heldur en nú er í ýmsum samtökum þátt í ákvörðun um hugsanlega vinnustöðvun, svo afdrifarík aðgerð sem það kann að vera. Þess vegna er þessi till. mín fram borin, og leyfi ég mér að benda hv. fjh.- og viðskn. á að þessi till. liggur fyrir hv. deild.