13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4210 í B-deild Alþingistíðinda. (3613)

259. mál, kjarasamningar opinbera starfsmanna

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, varðar breyt. á l. nr. 46 frá 24. maí 1973, um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Í rauninni er frv. þetta til komið vegna breytinga þeirra á samningsréttarmálum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja sem gert er ráð fyrir í frv. því sem ég mælti fyrir áðan.

Eins og ég gat um í framsöguræðu minni fyrir því frv. náðist ekki samkomulag við Bandalag háskólamanna um breytingar á gildandi kjarasamningalögum að því er félagsmenn þeirra varðar, og munu því l. nr. 46/1973, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, gilda áfram um félagsmenn Bandalags háskólamanna og Læknafélags Íslands. Með þessu frv. er lögð til sú ein breyt. á l. nr. 46/1973 að félagsmenn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja falli ekki lengur undir þá löggjöf.

Ég legg svo til, virðulegi forseti, að frv. þessu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.