13.05.1976
Sameinað þing: 91. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4283 í B-deild Alþingistíðinda. (3633)
Almennar stjórnmálaumræður
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Umræðan fer þannig fram, að hver þingflokkur fær til umráða hálfa klukkustund. Umferðir verða tvær, 20 mínútur í þeirri fyrri, 10 mínútur í þeirri síðari, eða 15 mínútur í hvorri ef flokkar kjósa heldur þann þátt.
Röð flokkanna verður þessi: Alþb., Sjálfstfl., Alþfl., Framsfl. og SF.
Ræðumenn flokkanna verða: Fyrir Alþb. í fyrri umferð Garðar Sigurðsson, 5, þm, Suðurl., og Stefán Jónsson, 5. þm. Norðurl. e., og í síðari umferð Lúðvík Jósepsson, 2. þm. Austurl. Fyrir Sjálfstfl. í fyrri umferð Matthías Bjarnason sjútvrh. og í síðari umferð Ólafur G. Einarsson, 5. þm. Reykn. Fyrir Alþfl. í fyrri umferð Sighvatur Björgvinsson, 8. landsk. þm., og í síðari umferð Jón Árm. Héðinsson, 1. landsk. þm. Fyrir Framsfl. í fyrri umferð Steingrímur Hermannsson, 2. þm. Vestf., og í síðari umferð Halldór Ásgrímsson, 5. þm. Austurl. Fyrir SF í fyrri umferð Magnús T, Ólafsson, 3. landsk. þm., og í síðari umferð Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf.
Hefst nú umr. og tekur fyrstur til máls hv. 5. þm. Suðurl., Garðar Sigurðsson, og talar af hálfu Alþb.