13.05.1976
Sameinað þing: 91. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4305 í B-deild Alþingistíðinda. (3639)

Almennar stjórnmálaumræður

Magnús T. Ólafsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Þrátt fyrir lokaorð Steingríms Hermannssonar var auðheyrt af hinum málefnalega hluta ræðu hans að hann á heima í hópi okkar stjórnarandstæðinga, og býð ég hann velkominn þangað. Ég vissi fyrir löngu að Steingrímur gerir sér far um að hlusta á rödd fólksins, og auðheyrt var af máli hans, framan af sér í lagi, að hann veit hvaða hug framsóknarmenn á Vestfjörðum bera til núv. stjórnarsamstarfs.

Frést hefur að þegar embættismenn og forustumenn stjórnarflokkanna tóku á sínum tíma að ráðgast um fjáröflunarleiðir til að mæta þörfum Landhelgisgæslunnar hafi einn embættismannanna stungið upp á því að fjárins yrði aflað með álagi á tekjuskatt, sérstökum landhelgisskatti yrði bætt á greiðendur tekjuskattsins. Hermt er að við þessa uppástungu hafi stjórnmálamennirnir fórnað höndum og sagt að allt annað teldu þeir æskilegra við fjáröflun til Landhelgisgæslunnar og reyndar annarra þarfa ríkissjóðs, sem um var fjallað, en slíkan tekjuskattsauka.

Eins og mönnum ætti að vera í fersku minni varð niðurstaðan sú að stjórnarflokkarnir ákváðu álögur í ýmsum myndum til að afla vænnar fúlgu til ríkisþarfa. Uppistaðan í þeirri skattheimtu er innflutningsgjald á tæpan helming vöruinnflutnings og nokkrar innlendar framleiðsluvörur. Vörugjaldið átti samkv. því, sem ríkisstj. hafði áður boðað, að lækka á árinu niður í 6%, en rýkur nú í þess stað upp í 18% og slagar því hátt upp í söluskattinn þar sem það kemur niður. Afleiðingarnar af þessari skattheimtu eru svo aukin dýrtíð og magnaðri verðbólga. Er gert ráð fyrir að framfærsluvísitala verði, einkum sökum þess að vörugjald hefur verið hækkað, a.m.k. 10 stigum hærri en orðið hefði ef vörugjaldið fengi að lækka eins og til stóð. Mestallan þennan verðbólguvöxt og þá keðjuverkun á fjármál og atvinnumál, sem af honum hlýst, hefði mátt forðast ef fært hefði þótt að leggja á landhelgisskatt eftir sömu reglum og tekjuskatt og í viðbót við hann. En sú fjáröflunarleið þótti ekki skoðunarverð, heldur var hafnað þegar í stað.

Ástæðurnar fyrir þeirri afstöðu segja mikla og ófagra sögu um það ástand sem ríkir í fjármálum íslenska ríkisins og gjaldheimtu þess af landsmönnum. Grundvöllur heilbrigðs og virks skattkerfis er jöfnuður í innheimtunni, að gjaldþegnarnir geti treyst því að gjöldin, sem þeim er gert að greiða í sameiginlegan sjóð, gangi jafnt yfir eftir þeim reglum sem gilda um hvert og eitt. Stighækkandi tekjuskattur á samkv. því að leggjast á eftir tekjum og hafa áhrif til tekjujöfnunar í þjóðfélaginu. Alræmt er orðið að þessu er síður en svo að heilsa hér á landi. Við hverja álagningu kemur skýrar og skýrar í ljós að tekjuskatturinn er fyrst og fremst og að sumra dómi næstum einvörðungu orðinn launaskattur. Dæmin sanna að fyrirtæki og einstaklingar, sem hafa rekstur með höndum, sleppa með lítinn skatt eða engan, og ranglætið í skattheimtunni er orðið slíkt að launafólk í heilum byggðarlögum hefur risið upp og krafist allsherjarathugunar á skattarangsleitninni sem blasir við augum.

Þegar ófremdarástand sem þetta ríkir telja þeir sem ábyrgð bera á fjármálum ríkisins að ógerlegt sé með öllu að afla fjár með tekjuskattsálagi enda þótt þarfirnar, sem uppfylla á, séu brýnar og viðurkenndar af öllum. Gjaldheimta, sem hlýtur að verka eins og olíugusa á verðbólgubálið, er tekin fram yfir álag á þann tekjustofn ríkisins sem ef rétt væri á haldið ætti þó að tryggja að framlögum til sameiginlegra þarfa sé dreift eftir greiðslugetu gjaldenda án þess að óheillavænleg keðjuverkun breiðist um hagkerfið allt.

Nú er svo komið að allir viðurkenna að við svo búið má ekki lengur standa. Skattamisréttinu verður að linna ef ekki á að stefna í algert óefni. En raunhæfar aðgerðir láta á sér standa. Skömmu eftir að vinstri stjórnin tók við völdum 1971 hófst endurskoðun á tekjuöflun hins opinbera og tillögugerð um úrbætur í skattamálum. Heildstæðar till. lágu fyrir skömmu áður en sú ríkisstj. missti starfhæfan þingmeirihl., en vorn illu heilli ekki lagðar fram þar sem vonlaust þótti um samþykkt þeirra eins og komið var. Núv. ríkisstj. tók við þessum till. og hefur margsinnis boðað umbætur í skattamálum, en athafnir dragast enn á langinn. Ég fullyrði að voði er á ferðum ef lengur er látið reka á reiðanum í þessum efnum.

Fyrsta og árangursríkasta skrefið til að koma einhverju lagi á ríkisfjármál og gera tekjuskiptingu í þjóðfélaginu viðunandi er að afnema óþolandi skattamisrétti. Ekki fer milli mála að það, sem tafið hefur og tefur enn leiðréttingu á því hróplega misræmi að launatekjur eru skattlagðar, en rekstrarhagnaður og sölugróði sleppur lítt skattlagður eða ekki, eru sérhagsmunir og málafylgja þeirra sem hafa meiri eða minni hag af ríkjandi ójafnaðarkerfi. Þótt svo sé í pottinn búið er ég þess fullviss að yfirgnæfandi meiri hl. landsmanna í öllum flokkum skipar sér í þá fylkingu sem krefst að gefin fyrirheit um gagngerða endurskoðun skattalaganna með jafnrétti gjaldþegnanna fyrir augum verði efnd undanbragðalaust og án frekari tafar. Sýnt er að úr þessu gerist það ekki á þessu þingi, því miður. En skattamálin hljóta að verða höfuðviðfangsefni næsta þings.

En reynsla síðustu missira vottar að kerfisbreytingar eru orðnar aðkallandi á fleiri sviðum en í skattamálum. Ríkisstj. undir forustu Sjálfstfl., flokksins sem fyrir síðustu kosningar kvaðst hafa á takteinum samræmdar aðgerðir í efnahags- og fjármálum til að kippa í lag því sem þyrfti í þjóðarbúskapnum, hefur nú setið að völdum í þrjú missiri og haft við að styðjast rúmlega 2/3 hluta Alþ. Hún hefur afgreitt tvenn fjárlög og sérstakar efnahagsaðgerðir oftar en tölu verður á komið. Og hver er árangurinn? Halli ríkissjóðs á síðasta ári nam metfjárhæð. Fjárfestingarsjóðir stóðu fyrir útlánum langt umfram áætlanir á síðasta ári og með þeim afleiðingum að ströng takmörk á útlánum sjóðanna í ár koma þeim mun harðar niður. Þrátt fyrir samdrátt neyslu á síðasta ári tókst ekki að rétta við geigvænlegan halla á viðskiptum við önnur lönd. Erlendar skuldir til skamms tíma og langs hrannast upp, og er nú svo komið að fyrirsjáanleg greiðslubyrði á næstu árum nemur fimmta hluta af líklegu aflafé þjóðarinnar í viðskiptum við útiönd.

En þessi geigvænlega mynd af stöðu þjóðarbúsins segir aðeins hálfa sögu. Það er ekki nóg með það að bundnir hafi verið firnaþungir greiðslubaggar sem axla verður í náinni framtíð. Þar á ofan blasir við að möguleikar þjóðarinnar til að rýmka hag sinn með því að ganga í helstu auðsuppsprettu Íslands að fornu og nýju,sjávaraflann á miðunum umhverfis landið, virðast alls engir um allmörg næstu ár. Ástand fiskstofna helstu nytjafiska er svo herfilegt að hrun þeirra vofir yfir nema dregið sé úr sókn veiðiflotans í þessa stofna. Því er það að hagstæð þróun verðlags á útflutningsmörkuðum okkar. sem hingað til hefur orðið til bjargar að loknum verðfalls- og sölutregðutímabilum, sem yfir hafa gengið, og leyst þjóðarhag úr skulda- og samdráttarviðjum, getur ekki gegnt slíku hlutverki í nándar nærri sama mæli og oft áður við þau skilyrði sem nú hafa skapast. Þótt fiskverð hækki og eftirspurn fjörgist er okkur ekki lengur stætt á að hagnýta þann bata á viðskiptakjörum með því að herða sókn og auka útgerð til að hagnýta hagstæða markaðssveiflu. Við ríkjandi aðstæður væri það að fórna framtíðarmöguleika þjóðarinnar til að sjá sér farborða fyrir stundarábata. Nú er því svo komið að greiða verður niður skuldabagga hallatímabilsins af þjóðartekjum sem ekki er lengur verjandi að auka á hefðbundinn hátt með því að draga fleiri fiska úr sjó. Skuldagreiðslurnar verða að koma af lítt breyttum þjóðartekjum komi ekki aðrar atvinnugreinar til og taki við af útgerðarafrakstrinum. Þar staðnæmast menn helst við möguleika iðnaðarins, en hann er frá fyrri tíð hornreka um rekstrarkjör og fjármagnsútvegun, miðað við hina hefðbundnu atvinnuvegi.

Þessar stórbreytingar á grundvallaraðstæðum í þjóðarbúskapnum blasa nú við og hafa gert um nokkurt skeið. En ekki örlar enn á neinum viðhlítandi viðbrögðum til að mæta aðsteðjandi erfiðleikum á nokkurn þann hátt sem ætla má að bægi frá stórfelldum háska. Umhugsunarfresturinn er ekki langur. Mér er nær að halda að hann sé þegar úti og nú sé óhjákvæmilegt að hefjast handa, ef ekki á illa að fara. Í sem fæstum orðum sagt virðist mér að íslenska þjóðin sé nú að reka sig heldur en ekki óþyrmilega á takmörk hagvaxtarins. Það er ekki hlutskipti okkar einna á þessum tímum. Ýmsar aðrar þjóðir eru síst betur eða jafnvel mun verr settar og er þetta meginundirrótin að því samdráttartímabili sem nú virðist ríkja um mikinn hluta heims. Áhrif hins tæknivædda framleiðslukerfis á náttúruna og búsetuumhverfi manna eru orðin svo gagnger og yfirþyrmandi að tæknivæðingin er á tilteknum sviðum hætt að skila ábata, heldur veldur meira tjóni og erfiðleikum en arðurinn nemur sem af starfseminni fæst.

Verkefni íslenskra stjórnvalda, sem vilja heita verki sínu vaxin, væri að réttu lagi flestu fremur að leggja á ráð um stefnumótun sem koma á að gagni til að bjarga þjóðinni yfir á nýtt skeið við ný kjör framleiðslu og nýja lífshætti við breyttar aðstæður með sem minnstri röskun á högum manna. En það er öðru nær en núv. stjórn hafi gripið á þessu vandasama en veglega verkefni að nokkru gagni. Að sumu leyti ráða því aðgerðarleysi, ef ekki andvaraleysi, ytri aðstæður sem við fáum ekki við ráðið. Þar ber að sjálfsögðu hæst ofsafengnar tilraunir breskrar togaraútgerðar og breskra stjórnvalda til að ryðja togaraflota Bretlands braut á ofveidd fiskimið við Ísland með fallbyssukjöftum og flugvélasprengjum. En það, sem ég vil fyrst og fremst vekja athygli á, er að þeir sérstöku erfiðleikar, sem eru á að sinna brýnum framtíðarverkefnum vegna utanaðkomandi aðstæðna, réttlæta hvergi nærri hve lítið er aðhafst. Ekki skortir vitneskju því að aðvarirnar eru nægar. Það skortir árvekni og getu til að líta yfir hið stærra svið frá verkefnum líðandi dags. Ekki stafar þessi deyfð gagnvart örlagamálum lands og þjóðar af því að ráðh. og aðrir forustumann stjórnarflokkanna viti ekki eða geti ekki gert betur. Meinið felst í því að innviðir stjórnarsamstarfsins voru feysknir í öndverðu og hafa fúnað síðan til þess var efnt.

Rangt væri að halda því fram að forustumenn og þinglið stjórnarflokkanna hafi ekki í öndverðu gert sér grein fyrir hvað þeir færðust í fang, hversu erfið viðfangsefni þeir tóku að sér. En í stað þess að láta sitja í fyrirrúmi viðureignina við hagræn og siðræn úrlausnarefni þjóðfélagsins hefur valdabrölt og hagsmunatogstreita innan stjórnmálaflokkanna, hvors um sig og milli þeirra, sett svip sinn á stjórnarsamstarfið þótt um þverbak hafi keyrt frá síðustu áramótum. Komið hefur ótvírætt í ljós að harðskeytt valdabarátta fer fram innan Sjálfstfl. og lenda skot og lög í þeirri hríð einatt á áhrifamönnum í Framsfl. Hér á Alþ. er ástandið þannig þessa daga að ráðh.telur sig verða að snupra formenn, sem stjórnarflokkarnir hafa sett yfir þn., fyrir að leggjast á mál sem ráðh. telur hin brýnustu og vill fyrir hvern mun fá afgreidd. Einmitt í dag varð ljóst í Nd. að forseti hennar teflir í tvísýnu vænni kippu af frv. í því skyni að knýja í gegn á sem skemmstum tíma þmfrv. tveggja gæðinga sinna sem lagt hafa í það metnað sinn að koma móðurmálskennslu skólanna á ringulreið með því að kollvarpa með lagasetningu þriggja ára gömlum stafsetningarreglum. Mundi slíkt frumhlaup valda glundroða sem seint yrði bættur í málræktarstarfi skólanna.

Herra forseti. Þau vettlingatök, sem núv. ríkisstj. hefur tekið viðfangsefni sem mörg hver munu ráða miklu um hag þjóðarinnar um ófyrirsjáanlega framtíð, þurfa að taka enda áður en óbætanlegur skaði er skeður. Fólkið í landinu þarf að láta heyra frá sér, veita það aðhald sem dugir. — Þökk þeim, sem hlýddu.