13.05.1976
Sameinað þing: 91. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4326 í B-deild Alþingistíðinda. (3644)

Almennar stjórnmálaumræður

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Á aðeins tveimur árum hefur óreiðuskuld ríkisstj. við Seðlabankann aukist úr 630 millj. í 10 milljarða kr. Frv. ríkisstj. um nýja fjáröflun til að magna sukkið og vitleysuna er ný sönnun þess að hún er úti að aka og að landhelgisgæslan er bara yfirvarp. Ríkisstj. á að fara frá, og á því sviði er hver klukkutími dýrmætur. Og hver skyldi nú fella slíkan dóm yfir hæstv. ríkisstj. Auðvitað stjórnarandstæðingar, kunna menn að hugsa. Ónei, ekki er það nú aldeilis. Þetta mátti lesa í leiðara eins af málgögnum hæstv. ríkisstj., Dagblaðinu, nú fyrir nokkrum dögum. Engum dettur líklega í hug að Dagblaðið, Lítill Árvakur, eins og Vísir kallar þetta nýja afkvæmi félmrh., viðhafi slík ummæli að ástæðulausu.

Það er gamalt máltæki að svo lengi megi brýna deigt járn að bíti. Þessu er eitthvað álíka farið með hæstv. ríkisstj. annars vegar og almenning í landinu hins vegar. Ráðh. eru eins og hverfisteinn sem brýnt hefur og sorfið svo að öllum almenningi í landinu að nú er svo komið að nánustu aðstandendur og stuðningsmenn ríkisstj. krefjast þess að þessari nær tveggja ára martröð ljúki og stjórnin fari frá.

En það er nú eitthvað annað en hæstv. ráðh. séu á þeim buxunum. Þeir virðast hinir ánægðustu þótt allir aðrir telji auðsætt að þeir eigi að víkja.

Um tvö ár eru nú liðin frá því að Sjálfstfl. barðist hér um á hæl og hnakka í stjórnarandstöðu og sýndi þá af sér það eindæma ábyrgðarleysi að neita að taka þátt í afgreiðslu nauðsynlegustu mála eins og vegáætlun. Slík var nú reisnin yfir þingliði þessa stærsta stjórnmálaflokks landsins þá. Þá héldu þessir hv. þm. fjálglegar ræður hér á Alþ. um þá óráðsíu í stjórn fjármála og efnahagsmála þjóðarinnar sem þeir töldu þá vera. Þá töldu þessir hv. þm. Sjálfstfl. þensluna í útgjöldum ríkissjóðs svo stórkostlega að núv. hæstv. fjmrh., sjálfur höfuðpaurinn, ásamt nafna sínum, hæstv. sjútvrh., fluttu frv. um lækkun útgjalda ríkissjóðs og þar með skattheimtu um 4.5 milljarða kr. Þessi upphæð samsvarar nú um 81/2 milljarði kr. sem þessum tveim fjármálaséníum Sjálfstfl. fannst algerlega ofaukið í ríkisútgjöldum.

Síðan þessi minnistæðu fyrirheit um stórfellda og auðvelda lækkun ríkisútgjalda voru flutt þingi og þjóð eru nú tvö ár, og þann tíma hafa þessir hæstv. ráðh. haft alla möguleika til að koma í framkvæmd þessum sínum fögru fyrirheitum. Og hefur nú þróunin ekki verið í þessa áttina hjá hæstv. ríkisstj.? Nei, það er nú eitthvað annað en að svo sé. Samkv. áætlun, sem birtist í frv. sem nýlega var afgreitt hér á Alþ., hafa ríkisútgjöld hækkað frá fjárlögum ársins 1974 um nær 38 milljarða kr. ef tekið er tillit til tilfærslu á útgjöldum til sveitarfélaga sem samþ. var í árslok 1976. Þessi gífurlega útgjaldaaukning hefur átt sér stað langt umfram tekjur ríkissjóðs. Slíkur stórfelldur halli og skuldasöfnun hefur m.a. valdið mikilli hækkun vaxtagreiðslna og afborgana. Sífellt stærri hluta skattheimtunnar, sem ekki hefur staðið á hjá hæstv. ríkisstj., er varið til greiðslu þessara útgjaldaliða. T.d. má geta þess að vaxtagreiðslur í A-hluta fjárlaga, sem námu 714 millj. kr. 1975, eru í fjárl. þessa árs áætlaðar 1656 millj. kr. eða hafa hækkað um næstum einn milljarð kr. á einu ári. Ekki amalegt það, miðað við fyrri fyrirheit! Sé miðað við fjárlög 1974, þá munu vextir á þessu ári nema samtals 4 milljörðum 564 millj. kr. og hafa hækkað um nær 3 milljarða kr. frá árinu 1974 — um nær 3 milljarða á tveimur árum, og er þetta vegna hinnar gífurlegu skuldasöfnunarstefnu hæstv. ríkisstj., enda hafa færri fjálglegar yfirlýsingar um lækkun ríkisútgjalda gengið fram af munni hæstv. ráðh. hin síðustu tvö ár en áður var.

Þessi fjármálastjórn í ríkisfjármálum, stórfelldur hallarekstur og skuldasöfnun, er með slíkum eindæmum að allur almenningur er hættur að undrast ný afrek hæstv. ríkisstj. á þessu sviði. Í þessu ráðleysi, sem ríkt hefur í ríkisfjármálum hjá hæstv. ríkisstj., hefur Seðlabankinn verið látinn halda ríkisbúinu gangandi með stöðugri seðlaprentun og þrotlausum lánveitingum ríkissjóðs. Á fyrsta heila árinu í stjórnartíð hæstv. ríkisstj., á árinu 1975, jókst skuld ríkissjóðs við Seðlabankann úr 3 milljörðum 866 millj. kr. í 9 milljarða 932 millj. kr. eða um 6 milljarða og 66 millj. Það svarar til þess að skuldaaukningin hafi numið 17 millj. kr. á hverjum degi allt árið, þ.e.a.s. þeir nafnarnir í hæstv. ríkisstj., sem fluttu sparnaðarfrv. fyrir tveimur árum um 4500 millj. kr. niðurskurð ríkisútgjalda, juku skuldir ríkissjóðs við Seðlabankann um 700 þús. kr. á hverri klukkustund allt árið 1975. Vel hafði nú þótt að verki staðið hér ef aðeins mætti miða við unnar klukkustundir hjá hæstv. ráðh., en dæmið kemur svona út þótt svefntími hæstv. ráðh. sé einnig reiknaður, og sést af því hversu miklu meira afrek hér er á ferðinni en líklega nokkurn hefði órað fyrir. En slíkt hefur nú verið ástand heilabúsina hjá hæstv, ráðh. að því er varðar fjármál ríkisins. Og bað er engin furða þó að hv. þm. Framsfl., Halldór Ásgrímsson, hafi verið gráti næst hér áðan þegar hann sagði: Ríkisstj. setti sér það mark að stuðla að hægfara bata í efnahagsmálum. — En þrátt fyrir þetta ástand í ríkisrekstrinum hrúgar nú hæstv. ríkisstj. á borð alþm. frv. á frv. ofan sem öll stórauka útgjöld ríkisbáknsins. Má þar nefna fjölgun bankastjóra — ekki mátti það nú bíða, fjölgun biskupa og fjölgun alls konar sérfræðinga. Hér er um að ræða milli 40 og 50 nýjar stöður á ríkisjötunni. Hefur ekki einhver heyrt hæstv. ríkisstj. prédika um sparnað? Það fer ekki saman við þessi áform hæstv, ráðh.

En hvernig er þá ástandið á öðrum sviðum hjá hæstv. ríkisstj.? Er það ekki með þeim hætti að óstjórnin í fjármálum ríkisins fyrirgefist? Ó nei, ekki er nú svo vel að þann veg sé farið. Ég nefni t.d. landhelgismálið. Hæstv. ríkisstj. hefur sýnt þann eindæma liðleskjuhátt að láta af hendi af fúsum vilja aflamagn til vesturþjóðverja og annarra sem nemur stórum hluta þess sem við sjálfir megum afla og samhliða afsala til útlendinga ýmsum af okkar fengsælustu fiskimiðum, á sama tíma og atvinnuleysi er að skella yfir í sjávarbyggðum vegna algerrar ördeyðu á fiskislóðum. Munið þið, hlustendur góðir, ekki hinar fjálglegu yfirlýsingar sumra ráðh. núv. ríkisstj., þ. á m. hæstv. sjútvrh., þar sem viðtöl voru við hann höfð í sumum málgögnum ríkisstj. með flennifyrirsögnum þar sem hæstv. ráðh. lýsti því yfir, að engir samningar um veiðiheimildir útlendingum til handa kæmu til greina innan hinnar nýju fiskveiðilögsögu nema bókun $ um fullkomin tollfríðindi kæmi til framkvæmda? Minnast menn ekki þessa? Jú, að sjálfsögðu. Ekki fór svo lítið fyrir slagorðunum í þá tíð. En hver varð reyndin? Nutum við ekki tollfríðinda um leið og samningurinn við vestur-þjóðverja tók gildi? Ekki aldeilis. Hæstv. ríkisstj. og stjórnarliðar allir hér á Alþ. tóku ekki nærri sér að kyngja öllum stóru orðunum og sömdu án þess að bókun 6 öðlaðist gildi. Þá var sagt að hér væri aðeins um að ræða samning til 5 mánaða, að þeim tíma liðnum yrði samningnum frestað væru tollfríðindi ekki þá gengin í gildi. Nú er sá tími liðinn án þess að bókun 6 hafi tekið gildi og án þess að samningnum hafi verið frestað. Slík er niðurlæging hæstv. ríkisstj. að með eindæmum má teljast. Þessa niðurlægingu kóróna svo stjórnvöld með því að nánast Lýsa þá ósannindamenn sem reynt hafa að koma á framfæri upplýsingum um lögbrot þýskra togara innan landhelginnar, jafnvel á friðuðum svæðum, sbr. atburðina úti fyrir Austfjörðum nú fyrir nokkrum dögum.

Öllum er einnig ljóst hver vilji áhrifaafla innan stjórnarliðsins var og er til samninga við breta um landhelgismálið. Hingað til hefur almenningsálítið í landinu sem betur fer komið í veg fyrir að þessi samningaöfl innan ríkisstj. þyrðu að framkvæma vilja sinn. Enginn vafi er á því að almenningsálitið krefst þess að öllum tiltækum ráðum, stjórnmálalegum sem öðrum, sé beitt til þess að stöðva í eitt skipti fyrir öll innrásarstyrjöld breta á Íslandsmiðum. Enginn vafi er á því að stórkostleg hætta er á ekki síst nú að þau öfl innan ríkisstj., sem umfram allt vilja semja, nái yfirhöndinni. Slíkt ber með öllum tiltækum ráðum að koma í veg fyrir. Einnig verður með öllum tiltækum löglegum ráðum að knýja ríkisstj. til að standa við fyrri yfirlýsingar varðandi samningana við vestur-þjóðverja og að þeir samningar verði úr gildi numdir þegar í stað og engir samningar verði gerðir við aðrar þjóðir um veiðar innan fiskveiðilögsögunnar.

Það verður með engum hætti réttlætt í því ástandi, sem fiskstofnar við Ísland eru nú í, að heimila öðrum þjóðum afnot fiskimiðanna, ekki síst þegar hafðar eru í huga þær hugmyndir stjórnvalda að stöðva veiðar íslendinga sjálfra um lengri eða skemmri tíma eða taka upp kvótaskiptingu á hin ýmsu byggðarlög.

Sá veikleiki, sem hrjáð hefur hæstv. ráðh, í baráttunni við erlenda yfirgangsmenn, hefur valdið íslenskum almenningi miklum vonbrigðum, og þeir fjölmörgu íslendingar, sem hlynntir hafa verið aðild Íslands að vestrænni samvinnu, hafa orðið fyrir sárum vonbrigðum. Þessum veikleika hæstv. ráðh. verður að linna. Engu er líkara en þeir, sem stjórna NATO, og bandaríkjamenn, sem með sérstökum samningi eru skuldbundnir til að verja Ísland og hafa þar að auki með viðbótarsamningi við Ísland skuldbundið sig til samvinnu um vörslu landhelginnar, og hæstv. ríkisstj. ætli sér að halda með þeim hætti á þessu máli að yfirgnæfandi meiri hl. íslendinga verði andvígur aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu og vestrænni samvinnu. Er ekki tími til kominn að hæstv. ráðh. fari að standa uppréttir gagnvart ráðandi öflum NATO, segi: hingað og ekki lengra, geri þessum aðilum grein fyrir því í eitt skipti fyrir öll að íslendingar ætlist til annars og meira af Atlantshafsbandalaginu og ekki síður af Bandaríkjunum en að þessir aðilar líði hinar heiftarlegu árásaraðgerðir breta gegn íslendingum? Er ekki mælirinn fullur eftir þá atburði sem gerðust úti fyrir Vestfjörðum í gær þegar Nimrod-þota hótaði að skjóta niður íslenskt varðskip? Enginn vafi er á því að hæstv, ríkisstj. yrði mikið fyrirgefið — ég segi ekki allt af axarsköftunum sýndi hún slíkan manndóm. En því er vart fyrir að fara.

Þetta eru afrekin varðandi landhelgismálið. En hvað með annað? Hvað með hina margrómuðu byggðastefnu? Þar hlýtur þó eitthvað jákvætt að hafa gerst. Við skulum taka nýjasta dæmið. Nú liggur fyrir Alþ. till. til þál. um vegáætlun fyrir árin 1976–1979. Samkv. þessari áætlun er gert ráð fyrir nákvæmlega sömu krónutölu í framkvæmdum og er í gildandi vegáætlun. Það þýðir að framkvæmdir í vegamálum eru skornar niður um 25%, og hefur þá núv. ríkisstj. tekist að skera niður framkvæmdir í vegamálum um 56% þau tvö ár sem hún hefur setið að völdum. Á hverjum bitna þessi afreksverk ríkisstj. fyrst og fremst? Þessi forsmán hæstv. ríkisstj. bitnar fyrst og fremst á því fólki sem byggir þá staði landsins, sem eru hvað einangraðastir varðandi samgöngur. Þetta bitnar á svæðum eins og Vestfjörðum, Austfjörðum og Norðurlandi, Þeir staðir úti á landi, þar sem stórátak þyrfti að gera til að koma á akvegasambandi milli byggðarlaga, eru með þessum óskapnaði hæstv. ríkisstj. sveltir varðandi framkvæmdir í vegamálum. En ekki nóg með það, samkv. vegáætluninni er helmingur þess fjár, sem ætlað er til nýbyggingar vega, settur í svokallaðar hraðbrautir. Og hvar er slíka vegi fyrst og fremst að finna á Íslandi? Er það á Vestfjörðum, Austfjörðum eða Norðurlandi? Nei, slíka vegi er fyrst og fremst að finna á svæðum sem í daglegu tali eru kölluð Stór-Reykjavíkursvæði og suðvesturhorn landsins. Á þessi svæði er fjármagninu fyrst og fremst beint, en landsbyggðin er í þessu sem öðru sett hjá og með dreifbýlisfólk farið sem annars eða þriðja flokks þjóðfélagsþegna.

Hér hefur aðeins verið nefnt eitt dæmi um þá þróttmiklu byggðastefnu sem þeir framsóknarforingjarnir með sjálfan brúasmiðinn, hæstv. samgrh., í broddi fylkingar voru að lofa og prísa um síðustu helgi á fundi Framsfl. Og að því er best verður séð gátu vart vatni haldið af velþóknun og ánægju yfir þessu hróplega ranglæti. Margt fleira væri ástæða til að nefna, en tíminn leyfir það ekki. En eitt er víst, að engin fyrirgefning fæst til handa hæstv. ríkisstj. út á þetta.

Þá skal aðeins vikið að samskiptum ríkisstj. við verkalýðshreyfinguna og launafólk í landinu. Fyrir röskum tveim mánuðum lauk einni víðtækustu vinnudeilu sem háð hefur verið frá upphafi íslenskrar verkalýðsbaráttu. Við upphaf þessarar deilu lá fyrir að verðbólgustefna ríkisstj. mundi á þessu ári valda 17% viðbótarkjaraskerðingu þótt laun stæðu í stað að krónutölu, og var þá miðað við áætlanir frá ríkisstj. sjálfri. Þessi staðreynd leiddi til þeirrar sameiginlegu niðurstöðu verkalýðsfélaganna og verkalýðsflokkanna að nú bæri að freista þess að knýja fram raunhæfar stjórnmálaaðgerðir til að stöðva verðbólguþróunina. Og verkalýðshreyfingin lét ekki sitja við orðin tóm, heldur lagði fram skýrar till. í þessu efni, till. sem hefðu getað gerbreytt efnahagsástandinu jafnt til hags þjóðinni sem heild og alþýðu manna. Ríkisstj, skellti skollaeyrum við þessu og sló þar með á framrétta hönd verkalýðshreyfingarinnar til lausnar vandanum. Með þetta í huga og það, sem síðar hefur gerst, er ljóst að ríkisstj. ætlaði ekki að taka mið af hagsmunum launafólks og alls almennings í landinu við ákvarðanir í efnahagsmálum. Í aðgerðum ríkisstj. skyldu ráða hagsmunir peningaaflanna, braskaranna og stórpólitíkusanna innan raða núv. stjórnarflokka.

Það, sem verið hefur að gerast síðan samningar voru undirritaðir, styrkir enn frekar þá skoðun að það,sem verkalýðshreyfinguna skortir nú hvað mest, er að tryggja sér hér á Alþ. þau áhrif sem ein eru þess megnug ekki bara að verja áunna sigra og réttindi, heldur og að tryggja aukin réttindi og betri lífskjör launþegum til handa. Staðreyndin er sú að á skömmum tíma hefur allt verðlag í landinu hækkað um 7–8% að meðaltali, og samtímis þeirri verðlagsþróun, sem runnin er undan rifjum ríkisstj., er allt áróðurslið ríkisstj. og peningaafla hennar sett á fulla ferð til að reyna að sannfæra fólk um, að verðhækkanirnar séu bein afleiðing kjarasamninganna og það sé sönnun þess að kjarabarátta sé einskis virði og hún sé jafnvel andstæð hagsmunum launafólks. Hér er að undirlagi hæstv. ríkisstj. vegið svo að grundvelli verkalýðshreyfingarinnar að mönnum hrýs hugur við slíku afturhaldssjónarmiði nú á 20. öldinni. Þetta voga áróðursmeistarar ríkisstj. og hennar lið sér að staðhæfa þrátt fyrir þær óhrekjanlegu staðreyndir sem nýlega hafa verið birtar af hálfu verkalýðssamtakanna um að af 7.3% verðlagshækkunum verði aðeins 1.3% rakið til launahækkana, en 6% hins vegar til beinna pólitískra ákvarðana ríkisstj. Sá blekkingaráróður ríkisstj., sem áður var vitnað til, er til þess ætlaður að hræða verkalýðshreyfinguna frá því að halda í horfinu. Það á með hefndaraðgerðum að berja það inn í hugi almennings að barátta verkalýðssamtakanna sé minna en einskis virði. Gegn þessum lævísa blekkingaráróðri verður launafólk að taka upp harðskeytta baráttu. Öllum sönnum verkalýðssinnum ber skylda til að hrinda af höndum sér þeim ósóma sem áróður hæstv. ríkisstj. er. En það eitt er ekki nægilegt. Það verður jafnframt að vega að þeirri raunverulegu meinsemd sem valdið hefur þessari óstjórn efnahagsmála hér á landi síðustu tvö árin. Sú meinsemd er ríkisstj. sjálf og hennar stefna. Ef koma á í veg fyrir algera kollsteypu efnahagsmála hér á landi, þá verður að vega að rótum þessarar meinsemdar. Meðan það er ekki gert heldur sýkingin áfram að grassera í þjóðarlíkamanum.

Herra forseti. Ég lýk nú senn máli mínu, enda komið að lokum þess tíma sem ætlaður er til almennra umr. hér á Alþ. í kvöld um þjóðmálin í viðri merkingu þess orðs. Hins vegar mun áfram verða haldið hér í nótt umr. um þjóðmálin í þrengri mynd, þ.e.a.s. það mikla þjóðfélagslega vandamál, sem hvað hæst ber hér á Alþ. nú þessa dagana, hvort skrifa skuli z í íslensku ritmáli eður ei.

Ég hef hér með örfáum dæmum sýnt fram á vanmátt, getuleysi og óstjórn þá sem ríkt hefur í tíð núv. hæstv. ríkisstj. Aðeins hefur verið stiklað á stóru. Öllum er ljóst að óstjórn þessari og ringulreið verður að linna. Ríkisstj. á því að fara frá og á því sviði er hver klukkutími dýrmætur. — Ég þakka þeim, sem hlýddu. Góða nótt.