14.05.1976
Efri deild: 111. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4332 í B-deild Alþingistíðinda. (3646)

236. mál, skotvopn

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég lýsti yfir ánægju minni með þetta frv. í aðalatriðum við 1. umr., en gat þess þá að ég mundi í samráði við vitra menn og kunnuga e.t.v. leggja fram brtt. við það. Það skal játað að því hef ég ekki komið í verk enn, en ég þykist sjá að enn séu nokkrir ágallar á frv. Ég sakna þess að ekki skuli vera þar ákvæði um það með hvaða hætti skotvopn og skotfæri skuli geymd í verslunum og í heimahúsum til þess að draga úr hættu í fyrsta lagi á slysum og í öðru lagi á því að skotvopn með skotfærum lendi í höndum þeim sem síst skyldi. Ég sé enn fremur þann annmarka á frv. að ekki skuli kveðið á um það að bönnuð sé sala á sjálfvirkum byssum, þ.e.a.s. skotvopnum sem hlaða sig sjálf. Og í þriðja lagi vildi ég gjarnan sjá í þessu frv. ákvæði sem stemmi á nokkurn hátt stigu við því að stundað sé skytterí út um bílglugga, eins og á sér stað núna og veldur m.a. nokkru um það hvað friðunarlög fugla eru brotin á varptíma. En brtt. í þessa átt mun ég koma á framfæri fyrir 3. umr.