14.05.1976
Neðri deild: 110. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4335 í B-deild Alþingistíðinda. (3658)

115. mál, íslensk stafsetning

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Virðulegi forseti. Eins og ég hef áður tekið fram, þá tel ég fráleitt að Alþ. setji með löggjöf reglur um stafsetningu og greinarmerki og er þegar af þeirri ástæðu andvígur því frv. sem hér er til afgreiðslu. Ígræðslu botnlangans, þ.e. endurreisn z-unnar, er ég einnig andvígur eins og málum er nú komið. Ég hef gagnrýnt breytingarnar frá 1973 og 1974, ekki síst vegna þess að ég tel að þær hafi verið afgreiddar með of skjótum hætti án nægilegrar kynningar. Þetta frv. hefur verið til meðferðar hjá menntmn. þessarar hv. d. Það er ekki sent til umsagnar til eins eða neins, engin hreyfing virðist á málinu þar til meiri hl. gefur út nál. nú fyrir skömmu, þegar ætla má að örskammt sé til þingloka. M.ö.o.: sagan frá 1973 og 1974 virðist þannig endurtaka sig. Ég er því mótfallinn samþykkt þessa frv. af mörgum ástæðum og segi nei.