14.05.1976
Neðri deild: 110. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4360 í B-deild Alþingistíðinda. (3707)
192. mál, jafnrétti kvenna og karla
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Ég á sæti í þeirri n. sem hefur haft þetta frv. til meðferðar og ég stend að þeim brtt. sem gerðar eru, en sagði frá því í n. að ég gerði fyrirvara á tveimur brtt., þ.e.a.s. breytingunni á heiti frv. og orðalagi í 5. gr., en mundi þá að því leyti til áskilja mér rétt til þess að fylgja brtt. þar að lútandi. Ég hef þar að auki leyft mér að flytja sérstaklega tvær brtt. við þetta frv. og skal vera mjög stuttorður að geta þeirra.
Í fyrsta lagi er lagt til að síðari málsl. 4. gr. falli niður. Í þeirri setningu segir, með leyfi forseta:
„Í slíkri auglýsingu er óheimilt að gefa til kynna að fremur sé óskað starfsmanns af öðru kyninu en hinu.“
Út úr þessari setningu hefur mjög verið snúið. Menn hafa nokkuð hæðst að innihaldi þessa ákvæðis og fullyrða að auðvelt sé að fara í kringum þetta ákvæði og það muni í reynd verða óvirkt. Til þess að fyrirbyggja þessar skoðanir hvort sem það teljast útúrsnúningar eða réttmætar fullyrðingar, þá held ég, að tilgangi þessarar gr. sé náð með því að láta fyrri málsl. standa einan sér, en hann hljóðar svona:
„Starf, sem auglýst er laust til umsóknar, skal standa opið jafnt konum sem körlum.“
Með þessari setningu er það tryggt að jafnræðis sé gætt við auglýsingar þegar störf eru laus til umsóknar og óþarfi að setja í lög og erfitt að setja í lög ákvæði sem banna að gefið sé til kynna að fremur sé óskað starfsmanns af öðru kyninu en hinu.
Síðari brtt. mín er sú, að 8. gr. falli niður. Sú gr. hljóðar svo:
„Auglýsendum er óheimilt að birta nokkrar þær auglýsingar í orðum eða myndum er orðið geti öðru kyninu til minnkunar eða lítilsvirðingar.“
Nú má auðvitað vel vera að það sé æskilegt, að auglýsingar séu ekki til minnkunar eða lítilsvirðingar fyrir einn eða neinn. Allir geta sjálfsagt orðið sammála um það. Ég held hins vegar að slík ákvæði eigi ekki heima í lögunum. Þetta er matsatriði hverju sinni, sem ég get ekki séð að jafnréttisráð né aðilar geti metið svo að fullgilt geti talist, þetta verði að þróast eftir smekk manna, tilfinningum, sambúð og venjum í þjóðfélaginu. Þess vegna tel ég að þetta ákvæði sé óþarft og ekki til þess fallið að binda það í lögum. Ég legg því til að gr. falli niður.