14.05.1976
Efri deild: 113. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4374 í B-deild Alþingistíðinda. (3729)
270. mál, ábúðarlög
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 632 er frv. til ábúðarlaga Nú eru í gildi ábúðarlög fyrst frá 1884, í öðru lagi frá 1933, í þriðja lagi frá árinu 1951 og í fjórða lagi frá 1961. Lögin eiga við eftir því hvenær ábúð hefst. Þannig fer eftir l. nr. 1 frá 1884 um ábúð þeirra sem hófu búskap fyrir 1. jan. 1934. Samkv. lögunum er réttarstaða leiguliða mun verri heldur en eftir yngri ábúðarlögum. Þannig er lánardrottinn t.d. ekki skyldur til að kaupa hús er leiguliði hefur látið að gera, og er leiguliða þá heimilt að rífa hús og hafa með sér efni og önnur verðmæti úr þeim. Ábúðarlögin frá 1933, 1951 og 1961 eru í höfuðatriðum efnislega lík. Þessi mörgu lög nær um sama efni hafa hins vegar oft valdið miklum misskilningi vegna almennra reglna laga breyttra búshátta og þjóðfélagsaðstæðna.
Leitast hefur verið við að haga efnisskipan þessa frv. þannig að saman færi það sem saman á, stytta lögin eftir föngum án þess af þeim sökum að rýra þau að efnisgildi frá fyrri lögum. Var ákveðið eftir að hafa ráðgast við prófessor Gauk Jörundsson að gera till. um að fella úr gildi með þessum lögum eldri ábúðarlög svo að samningar samkv. þeim lögum haldi gildi sínu að svo miklu leyti sem annað leiðir ekki af ákvæðum frv. þessa ef að lögum verður. Rétt er talið að taka með í ábúðarlögin ákvæði um erfðaábúð sem hingað til hafa verið í sérstökum lögum sem eru frá 1962.
Frv. þetta var lagt fram fyrst 1973, en hlaut þá ekki afgreiðslu. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á frv., eins og það liggur nú fyrir, með tilliti til aths. og brtt. sem fram höfðu komið við frv. þegar það var lagt fram 1973.
Þetta frv. er í sjö köflum og glögg grg. fyrir frv. fylgir því, og þegar ég talaði fyrir því í hv. Nd. þar sem það var lagt fram, þá gerði ég grein fyrir meginmáli frv. Það fékk þá meðferð í hv. Nd. að það var samþ. í d. algerlega óbreytt. Ég vona að þetta frv. fái sömu afgreiðslu hér í hv. Ed. og vil leyfa mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. landbn. Ég efast ekki um af reynslu minni af hv. d. að þetta mál fái skjóta og góða afgreiðslu.