17.05.1976
Efri deild: 116. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4386 í B-deild Alþingistíðinda. (3756)

274. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv. til l. um breyt. á l. nr. 93 frá 1971, um Framkvæmdastofnun ríkisins þó að ég sjái á því ýmsa annmarka sem snerta mitt kjördæmi, y. e. Reykjavík og höfuðborgarsvæðið Reykjanes. Þar sem ég á sæti í fjh.- og viðskn. mun ég ekki ræða þetta mál frekar nú á þessu stigi málsins.